Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Page 6
30 FÖSTUDAGUR FEBRÚAR 1989. Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir í þokumistrinu (Gorillas in the Mist), sem sýnd er í Bíóborg- inni, er byggð á ævisögu Dian Fossey sem var þekkt nátt- úruvemdarkona og sérstaklega vom górillur henni hug- stæðar og barðist hún fyrir því að þær fengju að vera í sínu rétta umhverfi. Kvikmyndin er gerð í Afríku og er það Sigo- umey Weaver er leikur Fossey og er það sammála álit að hún hafi aldrei gert betur. Var hún verðlaunuð um síðustu helgi fyrir leik sinn í myndinni og fékk Golden Globe verð- launin. Háskólabío sýnir þessa dag- ana myndina Vertu stilltur Johnny sem er ný bandarísk kvikmynd og fjallar um Jo- hnny Walker sem er stjama í ameríska fótboltanum. Hann á bjarta framtíð fyrir sér sem atvinnumaður. Hann er dýrkaður af fjöl- skyldu sinni og vinsæll af kvenfólki. En svona hæfi- leikamikill íþróttamaður á ekki alltaf sjö dagana sæla. Það em öfund og græðgi sem ráða gerðum margra sem honum eru nákomnir. Aðalhlutverkin leika Robert Downey og Anthony Mic- hael Hall. Aðdáendur Michaels Jackson em margir og þeir hafa að undanfómu getað barið goðið augum í Moonwalker sem er kvikmynd um Michael Jackson og gerð af Michael Jackson. Væntanlegir áhorfendur ættu ekki að búast við miklum söguþræði, þess meira er lagt upp úr dansi og söng. Laugarásbíó frumsýndi í gær kvikmyndina Ótta (Fear) sem Qallar um fjóra strokufanga. Þeir láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Eftir strokið taka þeir í gíshngu fjögurra manna Qölskyldu sem er í sumarleyfisferð á stómm hús- bíl. Þetta er spennumynd sem ekki er ætluð taugaveikluð- um. Laugarásbíó sýnir einnig Bláa eðluna (Blue Iguana) sem er sérstök sakamálamynd og er framleidd af Siguxjóni Sighvatssyni. Bull Durham, sem nú er sýnd í Regnboganum, en var í Háskólabíói, fiaUar um sérstaka stúlku sem hefur það fyrir sið að taka út einn hornaboltaleikara og taka hann upp á arma sína í orðsins fyUstu merkingu. Áætlanir hennar breytast nokkuð þegar hún hittir þjálfara nokkum sem hún verður hrifin af. Kevin Kostner og Susan Sarandon leika aðalhlutverkin í þessari ágætu gamanmynd sem er með rómantísku ívafi. KokkteiU (Cocktail) hefur notið geysivinsælda að undan- fömu og er það ekki eingöngu vegna þess að hér er um ágæta afþreyingu að ræða heldur hafa lög úr kvikmynd- inni náð miklum vinsældum á undanfómum mánuðum og þar með vakið athygh á myndinni sem fiallar um tvo lífs- glaða barþjóna. Þá em vinsældir hennar kannski ekki síst aðalleikaranum Tom Cmise að þakka en hann er einhver allra vinsælasti leikarinn hjá yngri kynslóðinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.