Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Síða 6
30
FÖSTUDAGUR FEBRÚAR 1989.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir
í þokumistrinu (Gorillas in the Mist), sem sýnd er í Bíóborg-
inni, er byggð á ævisögu Dian Fossey sem var þekkt nátt-
úruvemdarkona og sérstaklega vom górillur henni hug-
stæðar og barðist hún fyrir því að þær fengju að vera í sínu
rétta umhverfi. Kvikmyndin er gerð í Afríku og er það Sigo-
umey Weaver er leikur Fossey og er það sammála álit að
hún hafi aldrei gert betur. Var hún verðlaunuð um síðustu
helgi fyrir leik sinn í myndinni og fékk Golden Globe verð-
launin.
Háskólabío sýnir þessa dag-
ana myndina Vertu stilltur
Johnny sem er ný bandarísk
kvikmynd og fjallar um Jo-
hnny Walker sem er stjama
í ameríska fótboltanum.
Hann á bjarta framtíð fyrir
sér sem atvinnumaður.
Hann er dýrkaður af fjöl-
skyldu sinni og vinsæll af
kvenfólki. En svona hæfi-
leikamikill íþróttamaður á
ekki alltaf sjö dagana sæla.
Það em öfund og græðgi
sem ráða gerðum margra
sem honum eru nákomnir.
Aðalhlutverkin leika Robert
Downey og Anthony Mic-
hael Hall.
Aðdáendur Michaels Jackson em margir og þeir hafa að undanfómu getað barið goðið
augum í Moonwalker sem er kvikmynd um Michael Jackson og gerð af Michael Jackson.
Væntanlegir áhorfendur ættu ekki að búast við miklum söguþræði, þess meira er lagt
upp úr dansi og söng.
Laugarásbíó frumsýndi í gær kvikmyndina Ótta (Fear) sem
Qallar um fjóra strokufanga. Þeir láta sér ekki allt fyrir
brjósti brenna. Eftir strokið taka þeir í gíshngu fjögurra
manna Qölskyldu sem er í sumarleyfisferð á stómm hús-
bíl. Þetta er spennumynd sem ekki er ætluð taugaveikluð-
um. Laugarásbíó sýnir einnig Bláa eðluna (Blue Iguana)
sem er sérstök sakamálamynd og er framleidd af Siguxjóni
Sighvatssyni.
Bull Durham, sem nú er sýnd í Regnboganum, en var í
Háskólabíói, fiaUar um sérstaka stúlku sem hefur það fyrir
sið að taka út einn hornaboltaleikara og taka hann upp á
arma sína í orðsins fyUstu merkingu. Áætlanir hennar
breytast nokkuð þegar hún hittir þjálfara nokkum sem hún
verður hrifin af. Kevin Kostner og Susan Sarandon leika
aðalhlutverkin í þessari ágætu gamanmynd sem er með
rómantísku ívafi.
KokkteiU (Cocktail) hefur notið geysivinsælda að undan-
fömu og er það ekki eingöngu vegna þess að hér er um
ágæta afþreyingu að ræða heldur hafa lög úr kvikmynd-
inni náð miklum vinsældum á undanfómum mánuðum og
þar með vakið athygh á myndinni sem fiallar um tvo lífs-
glaða barþjóna. Þá em vinsældir hennar kannski ekki síst
aðalleikaranum Tom Cmise að þakka en hann er einhver
allra vinsælasti leikarinn hjá yngri kynslóðinni.