Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1988, Síða 8
jí FÖSTÚDAGUR 3. FEBRÚÁr’1989‘1 Það fór eins og allir bjuggust við, spennumyndin Fatal Attraction tók fyrsta sætið með trompi og mun sjálfsagt ekki láta það af hendi á næstunni. Það hefur komið í ljós að þekktar og nýjar sakamála- myndir virðast tolla lengst á listan- um. Nánar er fjallað um Fatal Attraction hér á síðunni. Annars koma þrjá nýjar myndir inn á listann, Wall Street með þeim Michael Douglas og Charlie Sheen í aðalhlutverkum, leikstýrt af Oh- ver Stone, sakamálamyndin Colors með þeim Sean Penn og Robert Duval í aöalhlutverkum, en henni er leikstýrt af Dennis Hooper, og gamanmyndin Moonstruck með Cher í aðalhlutverki. DV-LfSTiM^ 1. (2) Fatal Attraction 2. (1) Baby Boom 3. (5) Vice Versa 4. (4) Suspect 5. (3) Three Men and a Baby 6. (6) Shakedown 7. (-) Colors 8. (-) Moonstruck 9. (10) The Principal 10. (-) Wall Street Ævintýri í Népal THE NIGHT TRAIN TO KATMANDU Útgefandi: Háskólabíó Leikstjóri: Robert Wiemer Aðalhlutverk: Pernell Roberts, Eddie Castrodad og Milla Bandarisk, 1988 - Sýningartimi 87 min. Leyfð öllum aldurshópum The Night Train to Katmandu er ævintýramynd sem best er lýst með þeirri klassísku byrjun: Einu sinni var prins... Nafnið á myndinni á aðeins við um byrjunina. Kennarahjón ein eru á ferð í næturlest til ævintýra- borgarinnar Kathmandu í Nepal. Þau eru með tvö böm sín með sér, stúlku á táningsaldri og ungan dreng. Krakkarnir eru langt í frá ánægðir með að vera að fara á þennan afkima á hjara veraldar. Þetta breytist þó, sérstaklega hjá ungu stúlkunni, þegar í ljós kemur að laumufarþegi er með lestinni, ungm og myndarlegur strákur. Krakkamir koma þvi svo fyrir að pilturinn er ráðinn á heimili þeirra sem þjónn. Fljótlega kemm í ljós að hér er enginn venjulegm piltm á ferðinni og ungu stulkuna fer að gruna að þjónninn þeirra sé Leövtn^ a <3j»ting M«|>r«í»8ión I3 TKE NICHT TRAIN TO il mmmmm prins i dulargervi, sérstakiega þeg- ar einn eldri kennaranna segir þeim frá þjóðsögunni um borgina sem sé í fjöliunum og sé ósýnileg nema á margra ára fresti... The Night Train To Kathmandu er hugljúf fjölskyldumynd, ekkert sérstakiega vel gerð, heldur ekki slæm, og hún er blessunarlega laus við að reyna að sýnast meira en hún er sem oft er gallinn á ódýrum myndurm -HK Vondur, verri, verstur THE ELEVENTH COMMANDMENT Útgefandi: Laugarásbió Bandarísk, 1988 - Sýningartimi 93 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára Hvað ellefta boðorðið er í sam- nefndri kvikmynd verðm aldrei ljóst en hér er fjaUað um mannfólk sem fáir mundu vilja kynnast; hvort sem það er geðveikm ungm maðm sem tryliist þegar Biblían er tekin frá honum eða ættingjar hans sem reyna aö múta lögreglu- manni til að drepa hann í stað þess að ná honum. Lögreglumaðurinn, sem ávallt er blindfuUm, hefm þó réttlætiskenndina á sínum. stað enda er pilturinn sálsjúki í lagi inn við beinið þegar sá gállinn er á honum. The Eleventh Commandment er ekki merkileg mynd, klisjukennd, illa leikin og gleymist um leið og lokið er sýningu. -HK ★ Dýrkeypt framhjáhald FATAL ATTRACTION Útgefandi: Háskólabió Leikstjóri: Adrian Lyne Aðalhlutverk: Michael Dougtas, Glenn Close og Anne Archer Bandarísk, 1987 - Sýningartími 119 mín. Bönnuð börnum yngri en sextán ára. Mikið hefm verið rætt og skrifað um Fatal Attraction. Þessi magn- aða sakamálamynd, sem var ein mest sótta kvikmynd hér á landi í fyrra, er áhrifamikil lýsing á því hvemig framhjáhald, sem í fyrstu lítur út fyrir að vera smáævintýri, breytist í martröð. Micahel Douglas leikm heimil- isfoðurinn Dan GaUager sem er í góðu starfi og lifir hamingjusömu fjölskyldulífi. Þegar nýr starfsmað- m hjá bókaútgáfu, er hann vinnm hjá, Alex, gefm greinUega í skyn að hún sé tilkippileg stenst GaUag- er ekki freistinguna enda Alex hinn áUtlegasti kvenmaður. Það sem hann heldur vera smáhUðarspor verðm að martröð fyrir hann og fjölskyldu hans, martröð sem breytist í leik upp á líf og dauða. Fatal Attraction er geysispenn- andi kvikmynd sem sannarlega heldur áhoifandanum við efnið. Glen Close sýnir sniUdarleik í hlut- verki hinnar geðveiku Alex sem breytist úr freistandi kvenmanni í manneskju sem er ekki sjálfráð gerða sinna. Enn einn leiksigur hjá þessari frábæru leikkonu. Michael Douglas er einnig mjög góður sem hinn þjakaði eigin- maðm sem getur að vísu kennt sjálfum sér um hvemig fór. Adrian Lynne, sem á að baki kvikmyndirnar FlaShdance og 9 'A Weeks, hefur hér gert eina eftir- minnUegustu sakamálamynd seinni ára. Þótt ekki sé hún gaUa- laus er hún kraftmikU og óhugnan- leg. -HK Leikhús svindlara HOUSE OF GAMES Leikstjóri og handritshöfundur: David Mamet Framleiöandi: Michael Hausman Myndataka: Juan Ruiz Anchia. Aðalhlutverk: Lindsay Crouse og Joe Mantegna Bandarisk 1987 - Sýningartimi 98 mín. Bönnuð yngri en 16 ára Hér er á ferðinni sálfræðidrama með snjöUum samsærisþræði er gengm bara skemmtUéga upp. Myndin segir frá sálfræðingi af veikara kyninu sem er að deyja úr leiðindum. Þar kemm að hún hittir athyglisverðan náunga. Sá leggm fyrir sig aUs kyns svindl og svínarí en forðast þó ofbeldisglæpi. Sál- fræðingurinn heUlast af þessum heimi kappans og feUm um leið fyrir honum en lendir Ujótiega í vafasömu máli. Söguþráðurinn er mjög athyglis- verðm og inniheldm bæði spennu og dramatík. Mamet nær að skapa áhugaverðar persónur í tiestum hlutverkum með dyggri aðstoð leikara sem eru þó flestir óþekktir. Þeir sem muna eftir The Sting kannast sjálfsagt við þann skemmtilega breUuheim sem hér er lýst en undir niðri blundar þó meiri alvara en í þeirri ágætu mynd. Er skemmtUegt að fylgjast með því þegar sálfræðingurinn fær kennslu hjá glæpamönnunum í mannlegu atferli. Því er ekki að neita að myndin kemur verulega á óvart og ætti að vera hægt að mæla með henni við vandfýsna áhorfend- ur sem sækjast eftir spennu. -SMJ Úr sálarkirnunni JM CHOOSE ME Útgefandi: Skífan Leikstjóri og handritshöfundur: Alan Rudolph Framleiðendur: Carolyn Pfeffer og David Blocker Myndataka: Jan Kiesser Aðalhlutverk: Genevieve Bujold, Keith Carradine og Lesley Ann Warren Bandarísk 1984 - Sýningartimi 106 mín. Bönnuð yngri en 16 ára Þetta er önnur myndin eftir Rud- olph sem Skífan ræðst í að gefa út (hin var Trouble in Mind) og bygg- ir þessi mynd á svipaðri sálfræði- stúdíu. Þó að Rudolph sé umhugað að kafa í sálarkimur mannfólksins nær hann ekki nógu góöum ár- angri. Hann notar að nokkm leyti sama leikaralið (Bujold og Carrad- ine) og hef ég ekki séð Carradine í eins heppilegu hlutverki og hér í langan tíma. Myndin segir frá Evu sem á bar í skuggahverfi stórborg- ar. Hún þráir að hitta hinn eina rétta og dag einn birtist hann. Þau ná að sjálfsögðu ekki saman strax og inn í málið fléttast útvarpsráð- gjafi. Allt fer þó vel að lokum. Að mörgu leyti er hér um að ræða forvitnilega sálfræðistúdíu en því miður er kjaftavaðalhnn fuh- mikill. Myndataka höfðar, eins og í Trouble in Mind, mikið th tihinn- inga. Það skortir þó ákveðinn kraft i leikstjórn og skýrari hugsun til að myndin hafi einhvern slagkraft. -SMJ Barist um þrælana DRAGONARD og MASTER OF THE DRAGONARD HILL Útgefandi: Bergvik sf. Leikstjóri: Gerard Kikoine Aðalhlutverk: Oliver Reed, Eartha Kidd og Patrick Warburton Breskar, 1987 - Sýningartimi ca 90 min. og 93 mín. Bönnuð 16 ára og yngri Þaö er alveg ótrúleg framleiðsla sem þeir Cannon bræður, Golan og Glopus, láta frá sér fara. Allt er reynt á sem ódýrastan máta og er afraksturinn eitt heljarmikið sam- ansafn af myndum sem best væm ógerðar. Dragonard og Master of the Drag- onard Hhl em tvær shkar. Síðari myndin er í beinu framhaldi af þeirri fyrri og eru þær látnar ger- ast á Suðurhafseyjum á átjándu öld þegar stöðutáknið var að eiga nógu marga þræla. Aðalpersónan er hvítur þræll, Richard Abdee, sem hafði verið dæmdur th þrælahalds fyrir að stjóma uppreisn í Skotlandi. Hann fer að sjálfsögðu fyrir mikla pen- inga til fagurrar eiginkonu manns sem hefur yndi af að pína þræla sína. Það þarf ekki að fara miklu nánar út í söguþráðinn. Þrælhnn sleppm að sjáhsögðu og stjómar uppreisn gegn þrælahöldurunum. í seinni myndinni eru sömu per- sónur aö gera sömu hlutina. Sögu- þráðurinn er aðeins þynnri en inni- haldið það sama; spilhng þræla- haldaranna og sakleysi og frelsis- þrá þrælanna. Einu sinni var Ohver Reed virtur og dáður leikari sem lék í mörgum ágætum myndum. Ef mark er tak- andi á stöðu .hans sem leikara í Dragonard myndunum hefur leið hans legið mjög niður á við. Þá er hér fhkkað upp á söngkonuna Eartha Kidd og hún gerð að mehu- mömmu. Eini ljósi punkturinn í leikarahöinu er Herbert Lom sem bregður fyrir í seinni myndinni í hlutverki sjóræningjaforingja. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.