Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988. 37 Bflar ur á litlum hraða og þar með aukin mengun í útblæstri. í venjulegu kveikjukerfi er bilið á milli odda í kertinu takmarkað við 0,8 millimetra til þess að neistinn hlaupi rétt á milli. í þéttakerfinu er hægt að auka þetta bil upp í 1,5 milli- metra. í öðrum kveikjukerfum, sem byggð hafa verið á þéttum og hafa verið reynd fram að þessu, hefur jafnmikið kertabil orsakað önnur vandamái. Þörf hefur verið á mun meiri ein- angrun og eins hefur álagið á hreyf- anlega hluti kveikjunnar verið mun meira. Þá er einnig hætta á útvarps- truflunum og ekki er hægt að ganga fram hjá hættunni á því að jafnhá spenna og 40 þúsund volt geti valdið hættu. Þettá eru meginástæðurnar fyrir því að þéttar liafa ekki verið notaðir í kveikjukerfum fram að þessu í stað venjulegra háspennukefla, en Saab Dl-kerfið leysir flest þessra vanda- mála. Nútímarafeindatækni Ein ástæðan til þess að þróun þess- arar nýju kveikjutækni hefur gengið jafnhægt og raun ber vitni er sú að fram að þessu hefur reynst nær óger- legt að stýra raunhæfu kveikjukerfi sem byggt er á þéttum. Hönnuðirnir hafa orðið að treysta á venjulegar mekanískar kveikjur með hreyfanlegum hlutum sem ekki hafa getað staðist kröfur um hraða og nákvæmni. Þá hefur það hamlað þróuninni að kveikjuhlutir byggjast á magni, að- eins hlutar sem framleiddir eru í nægilega miklum mæli hafa reynst ábatasamir. Með því að hagnýta sér nútíma rafeindatækni hefur reynst unnt að koma fram með nýja hönnun.'Krafan um að hlutimir séu framleiddir í miklu magni er ekki lengur fyrir hendi og það er örðið bæði tæknilega Dl-kerfið getur sent frá sér „fjölneista" eða marga kveikineista í einu til kertisins þegar þörf er á. Þetta er meðal annars nauðsynlegt við gangsetningu i kulda þegar erfiðara er að kveikja í eldsneytisblöndunni. og fjárhagslega hagkvæmt að fram- leiða slíka hluti í minni skömmtum. Þetta nýja Dl-kerfi er að öllu leyti hannað af tæknimönnum Saab- Scania og verður fjöldaframleitt í Svíþjóð. Háspennukefli á hvert kerti Tæknimenn Saab-Scania hafa þró- að tækni byggða á þéttum til smíöi nýja Dl-kerfisins en jafnframt komist hjá vanköntunum. Með því að láta hvert kerti fá sitt eigið háspennukefli af alveg nýrri gerð og sambyggja það kertinu hefur verið komist hjá spennutapi líkt og hætta er á í venjulegri kveikju með háspennuþráðum. Sérstök há- spennukefli fyrir hvert kerti hafa áður þekkst í bílum með tvígengis- ■vélar en áfram hefur verið hætta á spennutapi vegna þess að þá voru notaðir kertaþræðir. í Dl-kerflnu er spennan, sem fer til háspennukeflanna, til þess að gera lítil, um 400 volt, en ekki spennt upp í kveikispennu fyrr en um leið og þörf er á neistanum. Þetta kemur jafnframt í veg fyrir að kveikjan verði næm fyrir sveiflum Framhald á næstu síðu JÖFUR hf Pei geol 309 GR árg. 1987, dökk- gr«,**ns, vetrardekk, ekinn 30.000 km. Verð 480.000. Peugeot 205 GR árg. 1987, rauður, ekinn 8.000 km, bíll sem nýr. Verð 420.000. Volvo 144 DL árg. 1982, rauður, útvarp, vetrardekk, ekinn 90.000 km. Verð 375.000. Nissan Cherry árg. 1985, gullsans, sjállskiptur, ekinn 30.000 km. Verð 350.000. Chervolet Monza 1,8 árg. 1987, gullsans, 4ra dyra, vökvast., beinsk., ekinn 10.000 km. Verð 495.000. Peugeot 504 station árg. 1981, hvít- ur, 7 manna, ekinn 73.000 km. Verð 220P00. Notaðir bílar í úrvali Dodge Aries station árg. 1981, silf- urgrár, vel með farinn, ekinn 86.000 km. Verð 330.000. Lada Samara árg. 1986, rauður, ekinn 15.000 km. Verð 200.000. Galant 2000 GLX árg. 1986, silfur- grár, vökvast., rafmrúður og speglar, ekinn 30.000 km. Verð Nissan Cherry árg. 1983, blásans, ekinn 68.000 km. Verð 220.000. Daihatsu Charade turbo árg. 1984, dökkgrásans, topptúga, ekinn 65.000 km. Verð 350.000. Daihatsu Charade árg. 1982, sjálfsk., rauður, ekinn 67.000 km. Verð 200.000. 560.000. Ford Escort árg. 1982, 4ra dyra, grænsans, ekinn 60.000 km. Verð 255.000. Chrysler New Yorker turbo árg. 1985, einn glæsilegasti vagn höfuð- borgarinnar, búinn öllum hugsan- legum aukabúnaði, m.a. talandi mælaborði, rauðsans, ekinn 36.000 km, aukasett af sportfelgum með sumardekkjum fylgja ásamt nýjum vetrardekkjum. Verð 850.000. Chrysler Fifth- Avenue árg. 1984, ameriskur lúxusbill, sjálfsk., vökva- st., V-8, 318 cc. in. vél. rafm. í rúðum, centrallæsing, rafmsæti, leðurklæðning, útvarp/segulband, veltistýri, loftkæling o.fl., ekinn 14.000 km. Verð 950.000, góð kjör eða skipti. Mikið úrval af góðum notuðum Skoda bifreiðum. Opið í dag 1-5 Góð greiðslukjör. JÖFUR HF mm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.