Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1988, Síða 8
40
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1988.
Bflar_______________________________________________________dv
Bílar aftur orðnir hlutfallslega dýrir hér á landi:
Hlutur ríkisins í útsöluverði
hefur affcur farið vaxandi
- orðinn 35 til 40% af meðalstórum Qölskyldubíl
NÝ HAGSTÆÐ KJÖR ...
á nokkrum notuðum úrvals bílum!!!
Við getum nú boðið nokkra notaða úrvals bíla á betra verði og greiðslukjör-
um en áður hefur þekkst.
Dæmi: MAZDA 626, 4ra dyra, 2 0L GLX, árg. '85
verð.............................................kr. 490.000
útborgun 25%................................. kr. 122.500
eftirstöðvar................................. kr. 367.500
AFSLÁTTUR..........................................kr. 49.000
Eftirstöðvar greiðast með skuldabréfi á allt að 30 mánuðum með jöfnum
afborgunum..kr. 318.500.
Eftirfarandi bílar fást á sambærilegum kjörum:
Mazda 323 árg. ’88.
Nissan Cabstar árg. ’83.
Kiamaster, 9 manna, árg. ’86.
Mazda 626 GLX árg. ’85.
Mazda 323 station árg. ’87.
Mazda 323 árg. ’87.
Mazda 626 GLX árg. ’85.
Mazda 323 árg. ’87.
Mazda 323 árg. ’87.
Lancer árg. ’85.
Mazda 323 árg. '82.
Subaru 1800 árg. '85.
Mazda 929 station árg. ’82. Mazda 626 1.6 L árg. ’85. Toyota GT Twincam árg. ’84.
Fjöldi annarra bíla á staðnum
Opið laugardaga frá kl. 1-5
BILABORG HF.
FOSSHÁLSI 1, S. 6812 99.
Sú breyting, þegar tollur af fólks-
bílum var lækkaöur niöur í 30% í
kjölfar kjarasamninganna í febrúar
1986 og bifreiöagjald var fellt niöur á
minnstu bílunum, gerði þaö aö verk-
um aö mikil aukning var í bifreiða-
innflutningi miðað árin á undan.
Að sögn Jónasar Þórs Steinarsson-
ar, framkvæmdastjóra Bílgreina-
sambandsins, hefur bifreiðainn-
flutningur síðustu tveggja áratuga
einkennst mjög af miklum sveiflum,
eitt árið mikiU innflutningur og
næsta ár lítill. Slíkir toppar voru
áriö 1974 með mjög litlum innflutn-
ingi næstu tvö árin á eftir. Toppar
komu svo árin 1981 og 1982 með mjög
litlum innflutningi 1983. Aftur jókst
innflutningurinn síöustu tvö árin en
reiknað er með minnkun innflutn-
ings á þessu nýbyijaöa ári.
Ef litið er til lengri tíma er myndin
nokkuö öðruvísi. Til dæmis er með-
altalsinnflutningur' bíla á síðasta
áratug um 7.500 bílar á ári en meðal-
tal síðustu 10 ára er um 10.700 bílar.
Ef litið er á þetta í hlutfallivið heild-
arbílafjölda sést að myndin er
nokkuð svipuö. í árslok 1980 var
heildarbílafjöldinn í landinu 95.603
bílar og meðaltalsinnflutningur
næstu 10 ár á undan var 7,8% af því.
Ef sömu tölur eru teknar nú í árslok
1987 er heildarbílafjöldinn 133.500
bílar og meðalinnflutningur næstu
10 ára á undan um 8% af heildarbíla-
fjöldanum.
Ljóst er að ástand efnahagsmála
og önnur ytri skilyrði hafa mjög mik-
11 áhrif á bílainnflutning eins og
önnur atriði í neyslu landsmanna.
Greiniieg eru þau umskipti sem urðu
í kjölfar kjarasamninganna í febrúar
á bílainnflutninginn. Þó má segja að
áhrifin hafi verið meiri sökum þess
að árin á undan hafði bílainnflutn-
ingur verið mjög lítill miðað við
bflaeign og ekki síst þar sem verið
var að endumýja stóra árganga frá
árunum 1971-74. Þessi uppsafnaða
endumýjunarþörf og lækkun á bfl-
unum er ljós í innflutnihgi síðustu
ára. Breytingar hafa þó orðið frá
lækkun bílanna í mars 1986 þangað
til nú, því í október á síðasta ári var
bifreiðagjaid hækkað mjög og hækk-
aði í þeim sjö gjaldflokkum sem í
gildi em um 5 prósentustig á minnstu
bflunum en mest á stærstu bflunum,
um 23 prósentustig.
Þetta þýðir að stighækkun bifreiða-
gjaldanna er mun meiri núna en
nokkru tíma fyrr frá því að núver-
andi kerfi bifreiðagjalda var tekið
upp fyrir um 6 árum. Nokkrar um-
ræöur hafa orðið um áhrif svo
mikillar hækkurtnar og sitt sýnist
hverjum.
í dag eru aðflutningsgjöld bifreiða
á bilinu 15 til 65%, það er sérstakt
bifreiðagjald og tollur. Eftir tolla-
breytinguna um síðustu áramót em
bílarnir því orðnir aftur meðal þeirra
vara sem hæstan toll bera strax þeg-
ar komið er upp í algenga stærð bfla.
Þetta þýðir að hlutur ríkisins í út-
söluverði hefur aftur farið vaxandi,
þannig að nú er hanh orðinn 30% og
yfir 45% á stærstu hflum. Á meðal-
stómm íjölskyldubíl er hlutur ríkis-
ins í útsöluverði því orðinn um 35 til
40%. Á bfl, sem kostar kringum 300
þúsund, renna um 100 þúsund beint
til ríkisins. Af meðalstórum bílum,
sem kosta um 500 þúsund, tekur rík-
ið milli 150 og 200 þúsund. Með
þessari þróun emm við aftur að kom-
ast í hóp þeirra landa þar sem hlutur
ríkisins í útsöluverði er hvað hæstur
og emm við orðin hærri en mörg
nágrannalönd okkar. Ef litið er á öll
þau gjöld, sem lögð era á bíleigend-
ur, er ljóst að við erum aftur orðin
injög ofarlega á blaði með skattlagn-
ingu, ekki síst með tilliti til þess að
hér er um að ræða okkar aðalsam-
göngutæki og það í mjög ríkári mæli
en í nokkru nágrannalandanna.
BÍLAR í SÉRFLOKKI
Saab 900 GLE árg. 1984
Sjálfsk., vökvast., topplúga, raflæsingar,
sumardekk á felgum, Ijósblár, ekinn 97.000
km. Verð 510.000.
Opið virka daga
kl. 9-18
Laugardaga
kl. 13-17
Gtobus?
Lágmúli S, Reykjavík
Sími 91-681555