Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1988, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 10. FEBRUAR 1988. 7 Steingrímur um verðsiýringuna: Sammála land- búnaðarráðherra - „fáránlegt 4 að breyta búvömlögunum „Ég er sammála því sem land- búnaðarráðherra hefur gert í þessu máli,“ sagði Steingrímur Hermanns- son utánríkisráðherra, aðspurður um skoðun hans á verðstýringu á eggjum og kjúklingum. Steingrímur sagði að þessi mál hefðu ekki verið rædd sem slík innan Framsóknarflokksins og því gæti hann ekki sagt til um aðrar skoðanir þar í þessu máli fyrir utan það sem komið hefði fram hjá Guðmundi G. Þórarinssyni. „Stjórnleysi hefur ráðið allt of lengi í þessum málum og þó að ég telji aö markaðurinn eigi að ráða í flestum tilvikum þá er engin bót í því að láta eignir þessara manna eyðast upp. Lög leyfa þetta en ég vona auðvitað að verðstýring á þessu verði í sem stystan tíma. Ég er hins vegar ósammála Guð- mundi um aö það sé sjálfsagt að í hefðbundnum landbúnaði sé opinber verðstýring, það er hlutur sem hlýt- ur að breytast eins og annað þegar vandamál hans hafa veriö leyst enda eiga stjómvöld ekki að hafa afskipti af þessum málum um lengri tíma.“ Ráðherra sagöi að honum þætti „fáránlegt" að tala um aö breyta lög- unum. Þegar jafnvægi hefði náðst í þessum málum þyrfti kvóti ekki iengur að gilda enda sagðist hann aldrei hafa verið hrifmn af kvóta. -SMJ Ályktun frá Alþingi: Dounreay mótmæit Alþingi hefur ákveðið að mótmæla stækkun endurvinnslustöðvarinnar fyrir úrgang frá kjarnorkuverum í Doúnreay í Skotlandi. Verður ríkis- stjóminni falið að koma mótmælun- um til skila. Það voru þingmenn Alþýðubandalagsins sem voru flutn- ingsmenn tillögunnár. I máli Hjörleifs Guttormssonar kom fram að flutningur állögunnar væri til að tryggja vemdu.i íslenskra hafsvæða gegn mengun. Ríkjandi hafstraumar sæju til þess að öll sú geislun, sem læki út við stöðina, bærist hingað. Friðrik Sophusson iðnaðarráö- herra sagði frá því að í nýlegum viðræðum sínum við orkumálaráð- herra Breta, Cecil Parkinson, hefði hann lýst áhyggjum íslendinga af stöðinni. Utanríkisráðherra, Stein- grímur Hermannsson, sagðist fagna þessari umræöu og benti á þá hættu sem stafaði af feröum kjarnorkukaf- • báta. Sagði hann að erfitt hef?! verið að fá upplýsingar um feröir þessara báta hjá stórveldunum. -SMJ Þingmenn greiða atkvæði á Alþingi. DV-mynd GVA Stjómmál RíkisskattsQöri athugar söluskattsskil: Eftiriitssveit- ir á kreik á næstunni Eftirlitssveitir á vegum rannsókn- ardeildar ríkisskattstjóra með aðild skattstofanna munu síðar í þessum mánuði hefja sérstakt eftirlit með söluskattsskilum fyrirtækja og geta fyrirtæki búist við því að fá eftirlits- mennina í heimsókn fyrirvaralaust. Samkvæmt upplýsingum, sem DV fékk hjá Indriða H. Þorlákssyni, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneyt- inu, er gripið til þessara sérstöku aögerða vegna þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á skattheimtunni. Sagði Indriði aö nú væri unnið að því að koma eftirlitinu í gang og reikna mætti með að það hæfist síðar í þessum mánuði. Munu þá eftirlits- mennimir fara í fyrirtæki og skoða söluskattsskil og bókhald og gætu þeir allt eins mætt fyrirvaralaust í fyrirtækin og skoðað þar gögn. -ój r • „Original“ hemlahlutir í alla japanska bíla. • Innfluttir beint frá Japan. • Einstaklega hagstætt verð ®I Stilling Skeifunni 11,108 Reykjavik Slmar 31340 & 689340 'B.LEÓS § i LOKAÐ I DAG V NA VERÐBREÝTINGA EGI 51, S IJNNI. S- W Ti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.