Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1988, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 22.04.1988, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 1988. 19 Dansstaðir ABRACADABRA, Iaugavegi 116 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. ÁRTÚN, Vagnhöfða 11, sími 685090 Gömlu dansamir föstudagskvöld kl. 21-3. Danssporið ásamt söngvurun- um Ömu Karlsog Grétari. Á laugar- dagskvöldið nýju og gömlu dansamir, hljómsveitin Danssporið ásamt Örnu Karls og Grétari. BÍÓKJALLARINN Lækjargötu 2, sími 11340 Hlynur, Daddi og Kiddi stjórna nýja diskótekinu fóstudags- og laugar- dagskvöld kl. 22-03. BROADWAY, Álfabakka 8, Reykjavik, sími 77500 Lokað föstudagskvöld fyrir almenn- ing vegna einkasamkvæmis. Allt í gamni mfð Ríó á laugardagskvöld. CASABLANCA, Skúlagötu 30 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. DUUS-HÚS, Fischersundi, sími 14446 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. Á sunnudagskvöld leikur Tríó Kristjáns Magnússonar í Heita pott- inum. EVRÓPA v/Borgartún Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. GLÆSIBÆR, Álfheimum Hljómsveitin Goðgá leikur fyrir dansi fóstudags- og laugardagskvöld. Opið kl. 22.00-3.00. HOLLYWOOD, Ármúla 5, Reykjavík . Á fóstudagskvöldið spilar hljómsveit- in Lonly Blue Boys fyrir dansi. Á laugardagskvöld leikur hljómsveitin Sveitin milli sanda fyrir dansi. HÓTEL BORG, Pósthússtræti 10, Reykjavík, sími 11440 Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. HÓTEL ESJA, SKÁLAFELL, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, sími 82200 Dansleikir föstudags- og laugardags- kvöld. Lifandi tónlist. Tískusýningar öll fimmtudagskvöld. Opið frá kl. 19-1. HÓTEL ÍSLAND Rokksýningin Allt vitlaust fóstu- dagskvöld. KK-sextett leikur á laugardagskvöld. HÓTEL SAGA, SÚLNA- SALUR, v/Hagatorg, Reykjavík, sími 20221 Á föstudags- og laugardagskvöld verður sýndur söngleikurinn „Næt- urgalinn - ekki dauður enn“ sem byggist á tónlist Magnúsar Kjartans- sonar í gegnum tíðina. Á Mímisbar leika Einar Júliusson og félagar. LEIKHÚSKJALLARINN, Hverfisgötu Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. LENNON v/Austurvöll, Reykjavík, sími 11630 Diskótek fóstudags- og laugardags- kvöld. LÆKJARTUNGL, Lækjargötu 2, sími 621625 í kvöld og annað kvöld snýst tónlist tunglsins í takt \ið tilveruna undir stjórn þeirra Hlyns og Dadda. ÚTÓPÍA, Suðurlandbraut Diskótek föstudags- og laugardags- kvöld. ÞÓRCAFÉ, Brautarholti, s. 23333 Bob Christy frá Radio Luxemburg þeytir skífunum föstudags- og laugar- dagskvöld. ÖLVER Álfheimum 74, s. 686220 Opiö frá kl. 18-3 fóstudags- og laug- ardagskvöld. Markó Póló spilar frá kl. 21 fimmtudaga til sunnudaga. AKUREYRI SJALLINN „Rokkskór og bítlahár" í Sjallanum fóstudags- og laugardagskvöld. Evrópa: Honey B and the T-Bones Finnska hljómsveitin Honey B and the T-Bones kemur til með að skemmta gestum veitingahússins Evrópu í kvöld og annað kvöld. Hljómsveitin er vel þekkt í Finn- landi og kom þar fram um það bil 250 sinnum á dansleikjum og tón- leikum á síðasta ári. Honey B and the T-Bones var stofnuð í byrjun þessa áratugar, komst fljótlega á samning hjá EMI útgáfufyrirtækinu og hefur sent frá sér fjórar stórar hljómplötur. Hljómsveitin hefur ferðast víða til tónleikahalds og er vel þekkt á sínu sviði í Skandinavíu og á meginl- andinu. Honey B. and the T-Bones leggja mikið upp úr því að vera alþjóðleg hljómsveit og telja reynd- ar að tónlistin sé hið aíþjóðlega tungumál. Þau flytja alla texta sína og kynningar á enskri tungu. Honey B and the T-Bones er tríó, skipað skörulegum kvenmanni sem leikur á bassa og tveimur körl- um. Lagalisti hljómsveitarinnar er með ólíkindum langur og breiður þannið að fjölbreytnin sem áhey- rendum er boðið upp á er meiri en menn eiga að venjast að öllu jöfnu. Rokkabillí, og blúsrokkuð danstón- list er allsráðandi á dansleikjapró- gramminu. Mikið af velþekktum lögum er á lagalistanum ásamt fjöl- mörgum frumsömdum lögum. Sviðsframkoman er eitt af aðals- merkjum hljómsveitarinnar. Ekki er óalgengt að sjá Honey B plokka bassann liggjandi á bakinu, fljúg- andi í loftinu eða í „spígat". Þráinn Sverrisson var annar af tveimur fulltrúum íslenskra barþjóna i keppni sem haldin var í Róm á siðasta ári. Barþjónaklúbburinn: „Long drinks" keppni Á sunnudag kl. 18 hefst í Súlna- sal Hótel Sögu „Long drinks" keppni Barþjónaklúbhs íslands. Keppendur verða starfandi bar- þjónar á hótelum og veitingahús- um. Gestir sem koma á keppnina dæma drykkina auk dómnefndar. Slík keppni er haldin á hverju ári en mismunandi er hvernig drykki á að blanda, 1989 verður til að mynda keppt í blöndun sætra drykkja en árið 1990 verður keppt í blöndun þurra drykkja. Sigurvegarar í þessum keppnum fara til Mexico og keppa þar á al- þjóðlegu móti sem haldið verður árið 1990. Nánari upplýsingar veitir Haf- steinn Egilsson í síma 29090. MÍR: Lenin 1918 Á morgun kl. 16.00 verður kvikmyndin „Lenin 1918“ sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Myndin er nær hálfrar aldar gömul, gerð árið 1939. Leik- stjóri er Mihaíl Tomm, sá sami og gerði myndina „Lenín í október" tveimur árum áður og markaði sú mynd tímamót í sovéskri kvikmynda- gerð, það er var hin fyrsta í röð fjölmargra sovéskra kvikmynda sem síðan hafa verið gerðar um ævi og störf Lenins. Skýringar með myndinni verða fluttar á ensku. Þórscafé: Plötusnúðurinn Bob Christy Það verður ýmislegt um að vera í Þórscafé um helgina. Þar mun plötu- snúðurinn Bob Cristy frá Radio Luxemburg stjórna diskótekinu. Bob hefur getið sér mjög gott orð á meginlandinu sem plötusnúður og hefur hróður hans borist víða. Hljómsveitin Burgeisar mun svo sjá um lifandi tónlistarflutning á efri hæðinni. Sviðsframkoma hljómsveitarinnar Honey B and the T-Bones er með ólíkindum lifleg. Heiti potturinn: Hljómsveitin „Styttri" ásamtUffe Markusson Á sunnudagskvöldið leikur hijómsveitin „Styttri" í Heita pott- inum í Duus-húsi. Þessi hljómsveit var stofnuð síðasthðið haust og hefur einbeitt sér að því að spila nýrri djass, það er lög eftir höfunda eins og Wayne Shorter, Richie Beirach og fleiri. Hljómsveitin dregur nafn sitt af þeim fyrrnefnda og á sunnudagskvöldið bætist hljómsveitinni liðsauki, danski saxófónleikarinn Uffe Markusson sem um þessar mundir spilar með Stórsveit RÚV. „Styttri“ skipa þeir Kjartan Valdimarsson píanó, Hilmar Jens- son gítar, Tómas R. Einarsson kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Wayne Shorter sem hijómsveifin dregur nafn sitt af. Sýningum á Don Giovanni fer nú fækkandi. Kristinn Sigmundsson: Syngur í Texas Kristinn Sigmundsson söngvari, sem nú um skeið hefur skemmt gestum íslensku óperunnar í hlutverki Don Giovanni, hefur nú lagt land undir fót. Góðar og gildar ástæður eru fyrir fjarveru Kristins. Hann er staddur í Texas og tekur þar þátt í „gala-konsert“, eða hátíðartónleikum, í ópe- runni í Austen. „Don Giovanni" verður þó ekki lengi fjarverandi því um helgina mun Kristinn ásamt fleiri söngvurum halda áfram að gleðja hjörtu óperugesta í Reykjavík. Nú eru fáar sýningar eftir á uppfærslu íslensku óperunnar á Don Giovanni og ætti enginn tónlistarunnandi að láta þessa skemmtun fram hjá sér fara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.