Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. Ötlönd Felldu eigin hentienn Kúbanir viðurkenndu í gær að hafa fellt tuttugu og sex af sínuxn eigin hermönnum í Angóla, þar á meðal einn af fremstu herforingj- um sínum. Mennirnir féllu þegar kúbönsk loftvarnasveit skaut nið- ur flugvél þeirra í suðurhluta Angóla. Þetta mun vera mesta áfall sem herlið Kúbana í Angóla hefur oröið fyrir frá því þeir fyrst sendu her til stuðnings stjórnvöldum í landinu fyrir þrettán árum. í tiikynningu kúbanska hersins segir að meðal hinna fóllnu hafi veriö Francisco Cruz Bourzac sem var liösforingi í Svínaflóaátökunum árið 1961. Bourzac var aðstoðarráöherra vigbúnaðarmála á Kúbu og átti sæti í miöstjóm kúbanska kommúnistaflokksins. Zaire —v Atlants- ' haf V- ANGÓLA Zambií: ^ Namibía ^ Heimsstyrjöldin verst Keisarinn veifar tii aðdáenda sinna við höllina i Tokýo i gær. Sfmamynd Reuter Hirohito Japanskeisari varð átta- tíu og sjö ára gamall í gær og í viötölum aö tilefni afmælisins sagði hann að verstu minningar hans væru tengdar heimsstyrjöld- inni síðari og aðild Japana aö henni. Hvatti forsetinn japönsku þjóðina til að sýna samstööu og halda friðinn. Keisarinn átti fund með frétta- mönnura fyrir nokkrum dögum. Hann sagði þá að styijöldin væri það versta sem drifiö hefði á daga sína. Sagðist hann ennfremur fagna því að japanska þjóðin hefði náð að vinna saman eftir stríðið og hann vonaðist til þess aö hörmung- ar styrjaldaráranna gleymdust ekki. Sprenging í flugvél Sprengingin varð um borö í Boeing 737 þotu frá ffugfélaginu Aloha Airl- ines. Simamynd Reufer Eins farþega er saknað og nær sextíu eru meiddir eftir að sprenging varð um borð í Boeing 737 farþegaþotu á fiugi yfir Hawaii-eyjum í gær. Sprepgingin reif stórt gat á skrokk þotunnar og neyddust flugmenn hennar til þess aö nauölenda á Kahului-flugellinum á eyjunni Maui. Að sögn sjónarvotta var þotan illa skemmd og mátti sjá farþega hennar í sætum sínum við lendinguna auk þess að leiðslur og annaö brak lafði út um gatið á skrokk hennar. Sprengingin varö þegar þotan var á leið milli tveggja eyja. Þotan var í tuttugu og íjögur þúsund feta hæð, um tjörutíu kílómetra suður af Maui. Farþegar í þotunni skýrðu frá þvf í gær aö sprengingin hefði verið svo mikil að þak þotunnar hefði hreinlega fokið af. Ekki var vitað i morgun hvað olli sprengingunni. Viðræðumar strandaðar Samningaviðræður fulltrúa þrettán aðildarríkja OPEC, sam- taka olíuframleiðsluríkja, stöðvuð- ust snemma í morgun án þess að fulltrúunum tækist að koma sér saman um viðbrögð við tilboöum olíuframleiðslurikja sem eru utan samtakanna. Ríkin höfðu boðist til að draga úr framleiðslu sinni í því skyni að hækka olíuverð og gera það stöðugra. Myrtu sextán manns Sextán manns voru í gær myrtir í þorpum i Punjab-héraöi á Ind- landi og er talið að morðsveitir öfgafúlira sikka hafi staöiö að til- ræöunum. Meðal hinna látnu voru þrír unglingar. Átök sikka og hindúa hafa nú kostaö um sjö hundruð og þrjátíu mannslíf í Punjab á þessu ári einu. Samningamenn OPEC-ríkja hafa ekki komið eér saman um hvernig bregðast skuli við boöum annarra oliuframleiðslurikja. Sfmamynd Reuter Þúsundir heimilis- lausar eftir eldsvoða Boðað til fleiri verkfalla í Póllandi Þúsundir íbúa fátækrahverfis í Manila á Filippseyjum eru nú heim- ilislausir eftir að eldur herjaði á kofaræksni þeirra í gær. Um leið og kólnað hafði í glóðunum f morgun hófu margir þeirra aö setja saman nýja kofa úr krossvið, pappa og báru- járni á meðan börnin sátu á því sem bjargað varð og horfðu á. Talið er að um sjö til átta hundruð kofar hafi orðið eldinum að bráð og að tvö þúsund og fimm hundruð manns hafi misst heimili sín. Þeir einu sem urðu fyrir meiðslum voru ílækingar sem íbúarnir réöust á er þeir reyndu að stela því sem bjargað var úr eldinum. Ekki er óalgengt að eldar herji í fátækrahverfum Manila en þessi eldsvoði er talinn vera sá versti frá 1978 þegar um þúsund heimili urðu eldinum aö bráð. Litil stúlka gætir aleigu fjölskyldu sinnar. Hún var ein af mörgum þúsundum sem misstu heimili sitt í eldsvoða í Manila á Filippseyjum í gær. Símamynd Reuter Verkfalhð í Lenínstáliðjuverinu í Krakow í Póllandi hefur nú staðið yfir í þrjá daga og boðaö hefur verið til verkfalls í stáliðjuverinu Stalowa Wola í suðausturhluta Póllands í dag. Þar vinna um átján þúsund verka- menn en í Lenínstáliðjuverinu, þar sem starfsmennimir era um þrjátíu og tvö þúsund, hafa fimmtán þúsund lagt niður vinnu til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um kaup- hækkun. Fréttir bárust í gær af samúöarverkfalli í saltnámum ná- lægt Krakow þar sem þrjú hundrað manns lögðu niður vinnu. Nefnd Samstöðu, hinnar ólöglegu hreyfingar pólskra verkamanna, við Stalowa Wola stáliöjuveriö boöaði til verkfalls til þess að kreíjast endur- ráðningar tveggja meðlima samtak- anna sem reknir voru eftir fjölda- fund í síðustu viku. Lögreglan handtók samt sem áöur einn þekktan meðlim Samstöðu við Stalowa Wola í gær og tók jafnframt skilríki af þrjú hundruð verkamönnum sem taldir eru vera stuðningsmenn samtak- anna. Er talið að það hafi verið gert til þess að þeir kæmust ekki inn í stáliðjuverið í dag. Samstaða hefur barist mánuöum saman við að ná áhrifum í Stalowa Wola. í febrúar síðastliðnum var beiðni samtakanna um aö verða við- urkennd sem löglegt verkalýðsfélag hafnað af hæstarétti og kvarta nú nefndarmenn undan ofsóknum lög- reglunnar og þungum sektum. I gær handtók lögreglan í Varsjá þrjá leiðtoga Samstöðu og einnig pró- fessor sem var á leið á fund í austur- hluta Lublin. Einn leiðtoganna var látinn laus en seint i gærkvöldi voru hinir enn í haldi. Stjórnendur Lenínstáliðjuversins neituðu í gær að taka upp aftur samningaviðræður eftir aö fulltrúar verkfallsmanna höfnuðu boði at- vinnurekenda á miðvikudaginn. Tilkynning hefur verið sett upp í stáliðjuverinu þar sem segir að verk- fallið sé ólöglegt og aö þátttakendur geti átt von á allt aö þriggja ára fang- elsi fyrir að æsa til óeirða á almanna- færi. Stúdentar við Jagielionienháskólann í Krakow efndu tii fundar í gær til aö lýsa yfir stuðningi sínum við verkfallsmenn. Simamynd Reuter Ennþá mikil geislavirkni eftir Tsjemobylslysið Geislavirkni í Svíþjóð er enn allt að tíu sinnum meiri en eðli- legt telst nú þegar tvö ár eru liðin frá Tsjernobyl-slysinu í Sovét- ríkjunum. Þetta kemur fram í skýrslu sænskra yfirvalda sem kynnt var í gær. Um mestalla Svíþjóð er geisla- virknin tvisvar sinnum meiri en eðlilegt telst og allt að tíu sinnum meiri á þeim svæðum sem verst urðu úti eftir slysið. Sænska stjórnin hefur varið fimm hundruð milljónum sænskra króna til aðgerða eftir kjarnorkuslysið. Eru þar inni- ( Finnland Sovetnkin faldar bætur til fyrirtækja, vís- indalegar tilraunir og upplýs- ingaherferðir. Einnig hefur milljónum sænskra króna verið varið til bóta til bænda og fiski- manna eftir að afurðir þeirra voru lýstar hættulegar neytend- um og ekki neysluhæfar vegna geislavirkni. Það voru sænsk yfirvöld sem fyrst tilkynntu um kjarnorku- slysiö í Tsjernobyl en það uppgötvaðist er ekki virtist allt með felldu við Forsmark kjarn- orkuverið um hundraö kOómetra fyrir norðan Stokkhólm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.