Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. 9 Utlönd aftur í tímann því bæði Chirac og Mitterrand hafa aö baki langa sögu sem ráðherrar og því auðvelt að tína til neikvæð atriði. Chirac var sérlega ágengur í samanburði sín- um og árásum á stefnu sósíalista þegar þeir voru við völd enda þurfti forsætisráðherrann fyrir alla muni að ná upp dampi eftir kosningaúr- slitin 24. apríl síðastliðinn í fyrri umferð forsetakosninganna þar sem hann fékk mun færri atkvæði en reiknað hafði verið með. Chirac var kraftmikill og stund- um beinlínis dramatískur og kallaði forsetann ávallt herra Mitt- errand. Forsetinn var yfirvegaður, lék rullu sína sem landsfaðir mjög vel, eins og hann hefur gert í allri kosningabaráttunni, og ávarpaði Chirac aldrei öðruvísi en herra for- sætisráðherra. Þar sem flestir spá Mitterrand sigri í kosningunum var nauðsyn- legt fyrir hann að halda sínu í einvíginu, hann hafði meiru að tapa og því er engin furða að hann hafi reynt að ýta frá sér ýmsum málum fortíðarinnar sem eru hon- um viðkvæm og líta fram á við til þess sem ber að gera eftir 8. m'aí. Um Le Pen var ekki mikið rætt en hins vegar talsvert um innflytj- endur og öryggismál. Litið nýtt kom þar fram, Mitterrand reyndi aö sannfæra Frakka um vifja sinn til að leysa þetta vandamál og Chirac reyndi að tæla til sín kjós- endur Le Pens án þess að segja of mikið. Það var helst í sambandi við athurðina á Nýju Kaledóníu og Bjami Himiksson, DV, Bordeaux: Sjónvarpseinvígi forsetafram- bjóðendanna tveggja, sem keppa munu um æðsta embætti franska lýðveldisins 8. maí, þeirra Jacques Chiracs forsætisráðherra og Francois Mitterrand, núverandi forseta, fór fram í gærkvöldi og má líkja viö knattspymuleik sem fer hægt af stað en býður svo áhorf- endum upp á fjörugar sóknir og talsverða boltafimi áður en honum lýkur með jafntefli. Um helmingur Frakka horfði á einvígið og samkvæmt fyrstu skoð- anakönnunum töldu rúmlega 30 prósent þeirra að Mitterrand hefði komið betur út úr þolrauninni en rúmlega 20 prósent voru ánægðir með Chirac. Á milli 20 og 30 pró- sent töldu úrshtin vera 0-0. Við- hrögð sfjórnmálamanna og dagblaða og skýringar þeirra eru í beinu samræmi við stjómmála- skoðanir viðkomandi því þetta einvígi snerist allt um framkomu og kappræðusnilld en minna um málefni. Einvígið varði í rúma tvo klukku- tíma og var skipt í fjóra hluta: Innanlandsmál og opinberar stofn- anir, Evrópa og vandamál af efnahags- og félagslegu tagi, þjóð- félagsbreytingar og að lokum utanríkisstefna og hermál. Báðir frambjóðendumir týndu sér stundum í talnaleik og mestur tími fór í að ráðast á það sem hinn hafði eða hafði ekki gert á undan- fómum sjö árum og jafnvel lengra Um helmingur frönsku þjóðarinnar er talinn hafa fylgst með sjónvarpseinvígi þeirra Mitterrands og Chiracs í gærkvöldi. Simamynd Reuter frönsku gíslana í Líbanon sem framhjóðendumir æstu sig. Chirac kvaö sósíahsta bera ábyrgð á ofbeldi undanfarinna daga á Nýju Kaledóníu en Mitter- rand sakaði andstæðing sinn hins vegar um að hafa sleppt írönskum hryðjuverkamönnum úr haldi í Frakklandi til að ná fram samning- um við írönsku stjórnina um lausn frönsku gíslanna. Án þess að einvígið færi nokkum tíma úr böndunum og þátttakend- umir slepptu fram af sér beishnu vom sum augnabUk hlaðin raf- magni og greinfiega UtiU kærleikur á miUi þessara manna. LUdega breytir þetta einvígi Utlu um fylgi frambjóðenda. Einvígi af þessu tagi hafa hingað til haft UtU áhrif í Frakklandi nema annar þátttakendanna hafi greinUega yfirburði. í gærkvöldi var ekki svo þótt stundum virtist sem Chirac hefði viðurkennt aö hann myndi að öllum líkindum tapa fyrir Mitt- errand 8. maí. I Gríska lögreglan leitar nú ákaft tveggja manna sem skutu arm- enskan skæruliðaforingja tíl bana í einu af finni úthverfum Aþenu í gær. Mennimir tveir gerðu skæra- Uðaforingjanum Hagop Hagop- ian, sem var stoínandi skæruliða- hreyfingar er nefnir sig leynUegan frelsisher Armeníu, fyrirsát og skutu hann með haglabyssum. . SkæruUðahreyfing þessi hefur rekið blóðuga baráttu gegn Tyrkjum í fimmtán ár Hún krefst þess að stofnað verði sjálfstætt ríki í hinum armenska Úuta Tyrklands. Þá krefst hreyfingin þess enn- fremur aö opmberlega verði viðurkennt að hálf önnur milljón Armena hafi verið myrt af tyrk- neskum stjórnvöldum í fýrri heimsstyijöldinni. Stjómvöld í Frakklandi segja að Hagopian hafi í raun heitiö Bedros Havanassian og hann hafi verið sá sem skipulagði sprengju- tUræði sem framið var við af- greiöslu tyrkneska flugfélagsins á Orly flugveUi við París í júh 1983. Átta manns létu Ufið f til- ræði þessu og fimmtíu og fimm særðust. TaUð er aö Hagopian hafi átt mikiö samstarf við öfgafyllsta arm frelsishreyfingar Palestínu- manna, þaö er fylkingu þá sem leidd er af Abu Nidal. Hagopian var myrtur fyrir utan heimiU sitt af tveim grimuklædd- um mönnum. Lögreglan segist fiiar vísbendingar hafa í málinu, , GoldStar Goldstar myndbandstœki GHV-1245P Framhlaðið - HQ (High Quality) 14 daga upptökuminni á 4 mismunandi tímum 32 stöðva minni - Þráðlaus fjarstýring - Kyrrmynd Hraðspólun með mynd - Sjálfvirk endurspólun GoldStcir -guCCtryggðyczðatæki ! i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.