Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988. 13 Lesendur Iffl m\ Bréfritari býður blýlaust bensin velkomið á markaðinn. Blýlaust bensín: Furðuleg árátta hjá Islendingum Sigurjón Helgi Kristjánsson skrifar: Eg las grein í lesendadálki DV íostudaginn 22. apríl sl. Var hún eftir Hjört Jónsson og fjallaöi um blýlaust bensín og hef ég þetta að segja um hana: Þaö hefur ætíö veriö venja ís- lendinga að grípa alla ósiöi á lofti og temja sér þá en láta góö fordæmi fara forgörðum. Ef háttvirtur greinarhöfundur hef- ur nokkru sinni lesið fyrirmæh þau er rituð eru á mörgum bílum, þá stendur þar: „Use unleaded fuel only“, en það þýðir: Notið eingöngu blýlaust bensin. Það hefur einnig verið venja íslendinga, einkum og sér í lagi þó stjórnmálamanna, að þagga niður allt sem miður fer og helst ekki horfast í augu við vanda- málin (sérstaklega þegar þau eru þeim að kenna). Vil ég persónulega bjóða hið blý- lausa eldsneyti velkomið á markað- inn þar sem það dregur úr - ekki bara menguninni, sem Uá ófull- komnum bruna stafar, heldur minnkar það einnig öll óæskileg efnahvörf sem af blýlausu eldsneyti stafa. Boy George: Hvers vegna „fyrirbærið"? M.B.H. skrifar: Kæri lesendadálkur. Ástæöan fyrir því að ég skrifa til þín er sú að ég er ekki sammála ummælum Dagfara sem hann reit í DV hinn 11. apríl sL um Boy George. í byijun segir hann: „Fyrir- bæri, sem kallar sig Boy Ge- orge.,.,“ - hvers vegna? Kannski vegna þess að hann klæðist fi num fótum og málar sig? Er Dagfari ef til vill með minnimáttarkennd, vegna hallærislegs klæðnaðar eða annars? Dagfari vill meina að enginn veröi maöur með mönnum nema hann hafi fyrst verið dópisti og náð sér svo á strik aftur. Hvers vegna heldur þú, Dagfari, að Boy George hafi sagt frá þessu? - Jú, vegna þess að hann haföi lært af mistökunum. Hann sá, hvers virði lífið er. Ef hann heföi þrætt fyrir (i viötali við DV) að hafa nokkum tima notað heróín hefðir þú eflaust skrifað í reitinn þinn að Boy væri lyginn, ómerkilegur, o.s.frv. Er óeðlilegt aö maðurinn tali svona mikið um sína reynslu af heróíni þegar allir ijölmiðlar eru svo áhugasamir um hans einka- hagi sem raun ber vitni? Boy er ekki dáður vegna þess að hann hætti eiturlyfjaneyslu. Nei, ónei. Hann er dáður vegna góðrar tón- listar. Dagfari segir líka að allir sem ekki hafa „dópað“ og orðiö frægir af séu bara eins og aumingjar sem enginn frægðarljómi stafi af og enginn nenni að tala við í út- varpsþáttum, hvað þá að bjóða þeim aö syngja. Ég segi nú bara það aö ef Dagfari héldi tónleika í heríóínvímu í „höllinni“, myndi ég ekki gera svo lítiö úr mér að sækja þá. Ég mæli nú samt með því aö þú, Dagfari, talir við þann yndis- lega mann, Bobby Harrison, og spyrjir hann hvort þú hafir ekki möguleika á að hafa smátónleika í Höllinni. Aö sjálfsögöu á þinn kostnað. Boy George. - Er Dagfarl með minnimáttarkennd gagnvart goðinu? ISLENSKAR GETRAUNIR Iþróöamiðstöðinni v/Sigtún - sími 84590.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.