Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1988, Side 26
42
FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1988.
Andlát
Hildur Eggertsdóttir, Frakkastíg 21,
Reykjavík, lést á Landspítalanum 28.
apríl síðastliðinn.
Bergsveinn Guðmundsson, bygg-
ingameistari, Eskihlíð 18a, lést í-
Borgarspítalanum 26. apríl.
Ingimundur Hjörleifsson, Austur-
túni 12, Álftanesi, lést í St. Jósefsspít-
alanum 38. apríl.
Stefanía Jakobsdóttir þerna, Eiríks-
götu 17, lést í Borgarspítlananum 27.
apríl.
Bjarni Viggósson, Hafnargötu 13,
Stykkishólmi, lést í Borgarspítalan-
um 27. apríl.
Þórður Jónsson, fyrrverandi bóndi á
Þóroddsstöðum, Ólafsfirði, er látinn.
Gísli Jónsson, fyrrum togarasjómað-
ur, Skólabraut 3, Höfn í Homafiröi,
lést miðvikudaginn 27. apríl í Skjól-
garði.
Gisli Bjarnason, fyrrverandi versl-
unarstjóri, Efstalandi 8, Reykjavík,
lést í Hátúni lOb þann 27. apríl.
Jarðarfarir
Andrés Magnússon bóndi, Vatnsdal,
Fljótshlíð, er lést 20. apríl, verður
jarösunginn frá Breiðabólstaðar-
kirkju laugardaginn 30. apríl kl.
14.00.
Hrefna Eiríksdóttir, Norðurbrún 1,
Reykjavik, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju laugardaginn 30.
apríl kl. 14.00.
Katrín Ólafsdóttir lést 18. apríl síð-
astliðinn, Hún fæddist í Viðey 21.
nóvember 1904, dóttir Vilborgar
Lausafjáruppboð
Nauðungaruppboð á lausafé í eigu þrotabús Kaupfélags Vestur-Barðstrend-
inga fer fram laugardaginn 30. apríl 1988 kl. 13.30 að Aðalstræti 62,
Patreksfirði.
Selt verður meðal annars: Vefnaðarvörur, fatnaður, leikföng, skór, og jóla-
skraut. 'Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaður Barðastrandarsýslu.
Olafsvík
Óskum eftir að ráða umboðsmann sem fyrst. Upplýs-
ingar gefa Linda Stefánsdóttir, Mýrarholti 6 A,
Ólafsvík, og afgreiðslan í Reykjavík í síma 91 -27022.
REYKJKMIKURBORG
JLacuan Sfödun
ÞJÓNUSTUÍBÚÐIR ALDRAÐRA,
DALBRAUT 27
Starfsfólk óskast til starfa í eldhúsi, sumarafleysingar
og framtíðarstörf.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377.
Auglýsing
um bann við notkun matarleifa til skepnufóð-
urs
Vegna hættu á búfjársjúkdómum og samkvæmt lög-
um nr. 28/1928, um varnir gegn því að gin- og
klaufaveiki og aðrir alidýrasjúkdómar berist til lands-
ins, er hér með bannað að nota til skepnufóðurs
matarleifar sem aflað er utan heimilis. Þetta gildir þar
til öðruvísi verður ákveðið.
Landbúnaðarráðuneytið
26. apríl 1988
K
A
I
A ft
BLAÐ
BURÐARFÓLK
á öMtAsyvi, ófi/uxötT
é eýfi/Ctatfiyv /weAsjjL -•
I t •
i i il
Siðumúla
Suðurlandsbraut 2-16
Sogaveg 100-út
Tunguveg 11—út
Selvogsgrunn
Sporöagrunn
Brúnaveg
Bollagaröa
Hofgarða
Lindarbraut
AFGREIÐSLA
ÞVERHOLTI 11
t i
t t
4 4
A A
1 t
I i
4 4
ft A
i I
i i
íl I ! I
SIMI 27022
Menning
litill Shakespeare
Bandaríski hljómsveitarstjórinn
Larry Newland, sem stjómaði sin-
fóníutónleikunum í gærkvöldi,
mun ekki síst vera þekktur í sínu
heimalandi fyrir aö stjóma nýrri
tónlist. Hefur hann fengið verðlaun
fyrir slíkt oftar en einu sinni, sem
vonandi sannar að hann kann og
getur meira en lítið í faginu. Þar
fyrir utan hefur Newland stjórnað
New York Philharmonic og fleiri
hljómsveitum af þeirri frægðar- og
stærðargráðu, sem segir ömgglega
einhveijum eitthvað. Hingað var
hann fenginn til að stjórna fiðlu-
konsertinum eftir Tsjækofskí og
músík úr Rómeó og Júlíu eftir Pro-
koffiev, sem bendir reyndar ekki
til sértakrar ævintýramennsku í
efnisvali. Hins vegar flýgur sú saga
aö hann hafi óskað eftir aö fá að
stjóma í.þ.m. einu íslensku verki
en fengið neitun. Frá hveijum? Ja,
það fylgir nú ekki sögunni.
Nú varð að fella Tsjækofskíkon-
sertinn niður.á síðustu stundu því
frægur japanskur fiðluleikari vildi
ekki hætta á að verða hér innlyksa
í verkfallinu. í staðinn léku sys-
tumar Judith og Miriam Ketils-
dætur sömu verkin og á fjölskyldu-
tónleikunum um daginn, A dúr
fiðlukonsertinn eftir Mozart og
Rókókó, sellótilbrigðin eftir Tsjæ-
kofskí og geröu það á sinn hátt
yndislega vel og fallega. En heldur
var þetta nú biUeg lausn og auð-
fundin þó eflaust megi verja hana
með tilþrifum á alla kanta.
Hljómsveitin lék Mozart og Tsjæ-
TónJist
Leifur Þórarinsson
kofskí öllu skár en um daginn. En
ekki var leikur hennar samt sér-
lega upplífgandi og stundum ekki
nema í meðallagi samtaka. Hins
vegar var talsverður kraftur í leið-
inlegri svítu Prókoffievs, sem er
alveg á takmörkunum að sé boðleg
músík í alvöru sinfóníutónleikum,
þó má vissulega hafa gaman af aö
spekúlera í hvað sé eftir Prókoffiev
og hvað eftir pákuleikarann í
Bolsoj en Sjostakóvíts segir að sá
hafi oft hlaupið undir bagga þegar
tónskáldið var í tímahraki. Fjöl-
fróður tónlistarmaður hér í
bænum fullyrðir þó að í þessu til-
felli hafi það veriö túbuleikarinn
sem vakti dag og nótt viö aö klára
verkið fyrir frumsýninguna á með-
an „höfundurinn" sat á krá og
tefldi skák. Sem er vonafidi rétt. í
það minnsta var Rómeó og Júlíu-
ballettinn aldrei bannaöur í Sovét-
ríkjunum en Stalín hafði eins og
kunnugt er mestu ánægju af lúðra-
sveit fyrir utan kór rauða hersins.
Hins vegar hataðist hann við Sha-
kespeare, enda er litið af honum í
þessu verki nema þá nafnið.
LÞ
Rómeo og Júlia á sinfóníutónleikum.
Jónsdóttur og Ólafs Ólafssonar. Olaf-
ur féll frá þegar Katrín var ungbarn-
og ólst hún þá upp hjá Hólmfríði
Rósenkranz og Þórunni Finnsdóttur.
Ung að árum fór Katrín til Kaup-
mannahafnar til náms í tónlist. Hún
giftist Árna Péturssyni þann 25. júní
1924. Þau eignuðust 3 börn, Jón R.,
Þórunni, og Hólmfríði, Uppeldisdótt-
ir þeirra er Svala Eyjólfsdóttir. Útfor
Katrínar fer fram frá Dómkirkjunni
í dag kl. 15.00.
Leifur Ingólfsson forstjóri lést 20.
apríl. Hann var fæddur 4. janúar
1935. Foreldrar hans voru Helga
Jessen og Ingólfur B. Guömundsson.
Leifur fór í húsasmíöi og vann síðan
ævina við það. Hann gerðist fram-
kvæmdastjóri í Söginni, fyrirtæki
fóður síns, eftir hans dag. Leifur
kvæntist eftirlifandi konu sinni,
Önnu Pétursdóttur Dam, 9. nóvemb-
er 1959. Börn þeirra eru fjögur. Útfór
Leifs fer fram frá Hallgrímskrikju í
dag, fóstudag, kl. 15.00.
Einar Þorleifsson pípulagninga-
meistari lést 18. apríl síöastliðinn.
Hann fæddist 6. júlí 1927, sonur hjón-
anna Guörúnar Matthíasdóttur og
Þorleifs Einarssonar. Einar fluttist
úr Helgafellssveit til Keflavíkur 18
ára gamall. Einar lauk prófi í pípu-
lögnum og starfaði í fjölda ára hjá
Keflavíkurverktökum sem verk-
stjóri. Hann kvæntist Ingibjörgu
Garöarsdóttur árið 1954 og eignuöust
þau tvo syni, Garðar og Þorleif. Einar
verður jarðsunginn frá Keflavíkur-
kirkju í dag kl. 14.00.
Steinunn Bragadóttir frá Bláhvammi
er látin. Hún var fædd 18. apríl 1945.
Hún giftist Jóni Frímanni og átti með
honum íjögur böm. Steinunn verður
jarðsungin frá Grenjaöarstaðar-
kirkju í dag kl. 14.00.
Friðný S. Möller er látin. Hún var
fædd á Akureyri 16. október 1918.
Foreldpar hennar voru hjónin Bald-
ur Benediktsson og Kristín Guð-
mundsdóttir. Friðný giftist Alfreð
Möller árið 1937. Útfór hennar fer
fram frá Akureyrarkirkju í dag kl.
13.30.
Guðmundur Ingimarsson lést 19.
apríl síðastliðinn. Hann fæddist 24.
júlí 1928, í Hnífsdal. Foreldrar hans
voru Sigríður Guðmundsdóttir og
Ingimar Finnbjömson. Guðmundur
kvæntist Arnþrúöi G. Guðmunds-
dóttur árið 1955. Þau eignuðust einn
son, Öm Guðlaug. Útfór Guðmundar
fer fram frá Kópavogskirkju í dag
kl. 13.30.
Permavinir
Tvítug, frönsk stúlka
óskar eftir að eignast íslenska pennavini.
Hún hefur lært íslensku í tvo mánuöi auk
þess sem hún kann þýsku, ensku og að
sjálfsögðu frönsku. Heimilisfangið henn-
ar er: Sophie Reghem
55, rue du Gal de Gaulle
57140 Woippy
France
Happdrætti
Ferðahappdrætti handknatt-
leiksdeildar Vals
Dregið hefur verið í ferðahappdrætti
handknattleiksdeUdar Vals. Vinningar
féUu þannig. 1. Ferð tU Mílanó nr. 784,
2. Ferð til Zurich nr. 395,3. ferð tíl Amst-
erdam nr. 70, 4. ferð til Amsterdam nr.
240,5. ferð tU Hamborgar nr. 32. Vinninga
má vitja í Valsheimilinu.
Félagsvist
Húnvetningafélagið í Reykja-
vík
Félagsvist verður laugardagmn 30. aprU
kl. 14:00, í félagsheimilinu Skeifunni 17 á
vegum Húnvetningafélagsins í Reykja-
vik.
Sýningar
Málverkasýning
Jón Ferdinands sýnir 10 málverk í Bóka-
safni Kópavogs. Sýnin stendur til 18. maí.
Tilkynningar
Úrslit spurningakeppni fram-
haldsskólanna
Vegna deUna um lokaúrsUt í spuminga-
keppni framhaldsskólanna 22. aprU, þar
sem kepptu tU úrsUta Uð Menntaskólans
í Reykjavik og Menntaskólans við Sund,
hefúr verðir staðfest að Uð Menntaskól-
ans í Reykjavík hafi sigrað. Þessi niður-
staða fékkst á sameiginlegum fundi með
fuUtrúum Ríkisútvarpsins og liðum og
Uðsstjórum beggja skólanna. Ágreining-
ur varð um úrsht í myndagetraun í lok
keppninnar. Samkvæmt leikreglum
máttu Uðin telja upp 12 nöfn. í umræddu
tílviki mistaldi dómari og stöðvaði Uð
Menntaskólans í Reykjavík, án þess að
gefa þeim tækifæri til að ljúka svarinu.
Fjórir nýskipaðir sendiherrar
aflientu forseta Islands trúnaðarbréf sín
að viðstöddum Steingrimi Hermannssyni
utanríkisráðherra. Þeir eru hr. Jacques
Mer, sendiherra Frakklands, prófessor
S.H.K. Eusufzai, sendiherra Bangladesh,
hr. Thomas Benjamin Sam, sendiherra
Ghana, og hr. Carlos Rafío, sendiherra
Perú. Sendiherramir þágu síðan boö for-
seta íslands að Bessastöðum ásamt fleiri
gestum.