Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988.
Viðskipti________________________________________________________________________________________pv
Siglfírðingurinn í Luxemburg:
Birkir Baldvmsson stendur i da-
góðum viðskiptum hér heima
Birkir Baidvinsson, 48 ára Siglfirð-
ingurinn sem býr í Luxemburg og
rekur þar umsvífamikil flugvélavið-
skipti sem teygja sig viða um heim,
hefur fjárfest nokkuð á íslandi síð-
ustu þrjú árin. „Þetta eru að verða
dágóðar upphæðir sem ég hef fjárfest
fyrir heima,“ sagði Birkir við DV í
gær.
Birkir keypti efstu hæðina í Lág-
múla 5 fyrir um einu og hálfu ári.
Þaö er fyrirtæki hans hér heima,
Birkir Baldvinsson hf., sem á eign-
ina. Þetta fyrirtæki er fjárfestingar-
fyrirtæki, rekstur þess gengur út á
að kaupa fasteignir og veröbréf á ís-
landi.
Að sögn Birkis hefur hann fiárfest
í Kringlunni. Hann á þar verslunar-
húsnæði sem hann leigir aftur út.
Hvort um sé að ræða húsnæði
margra verslana vildi Birkir ekki
gefa upp.
„Ég hef mikinn áhuga á íslenskum
fyrirtækjum. En því miður er hluta-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 18 20 Ab
Sparireikningar
3jamán uppsógn 18 23 Ab
6 mán. uppsogn 19 25 Ab
12mán. uppsögn 21 28 Ab
18mán. uppsögn 28 Ib
Tékkareikningar, alm. 8 10 Ab.Sb
Sértékkareikningar 9 23 Ab
Innlan verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6mán. uppsögn 4 Allir
Innlán með sérkjörum 19-28 Vb
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 6-6.50 Vb.Sb
Sterlingspund 6.75 8 Úb
Vestur-þýsk mörk 2.25 3 Ab
Danskarkrónur 8-8,50 Vb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv.) 30 32 Bb.Lb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 31 34 Bb.Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(vfirdr) 33 35
Utlan verðtryggð
Skuldabréf 9.5 Allir
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 29.5 34 Lb
SDR 7.50 8,25 Lb
Bandarikjadalir 8.75-9.5 Úb
Sterlingspund 9.75-10,25 Lb.Bb. Sb.Sp
Vestur-þýsk mork 5-5,75 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 44,4 3.7 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. mai88 32
Verðtr. maí 88 9,5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala maí 2020 stig
Byggingavisitalamaí 354 stig
Byggingavísitala maí 110,8stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 6% 1. april.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Avöxtunarbréf 1.5273
Einingabréf 1 2,763
Einingabréf 2 1,603
Einingabréf 3 1,765
Fjölþjóðabréf 1.268
Gengisbréf 1,0295
Kjarabréf 2.803
Lifeyrisbréf 1.389
Markbréf 1.460
Sjóðsbréf 1 1,363
Sjóðsbréf 2 1.272
Tekjubréf 1.383
Rekstrarbréf 1.0977
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 128 kr.
Eimskip 215 kr.
Flugleióir 200 kr.
Hampiðjan 144 kr.
Iðnaðarbankinn 148 kr.
Skagstrondingur hf. 189 kr.
Verslunarbankinn 105kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 174 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavixla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skanrfmstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Birkir Baldvinsson, 48 ára Siglfirðingur, sem er umsvifamikill á erlendri
grund í viðskiptum með flugvélar og flugvélavarahluti.
bréfamarkaðurinn heima vanþróað-
ur og erfiður. Það er bráðnauðsyn-
legt að hlutabréf fái sömu
skattfríðindi og verðbréfin. Þangað
til verður mjög erfitt að fá almenning
og athafnamenn til að kaupa hluta-
bréf á almennum hlutabréfamark-
aði. Ég hef ennfremur áhuga á að
ísland opnist á fiármagnsmarkaðn-
um. Við getum ekki lokað okkur af
uppi á skerinu.“
Birkir býr bæði í Luxemburg og
Arizona í Bandaríkjunum. Hann á
jafnframt hús á íslandi. Hans aðal-
starf erlendis er að kaupa og selja
flugvélar og flugvélavarahluti.
„Ég er mest í einkaþotum og einka-
vélum núna. Það er svo hátt verð á
farþegaþotum í dag að mjög lítiö er
upp úr þeim markaði að hafa.“
Birkir segir loks að verkföll
skemmi fyrir íslendingum á fiár-
magnsmarkaðnum erlendis. „Það að
landinu skuli vera lokað eins og gert
var í nýafstöðnu verkfalli fælir út-
lendinga frá að fiárfesta á íslandi.
Eins sú vitneskja að verkfall í heilan
mánuð ríði nánast fyrirtækjum að
fullu. Land með sífeildum verkföU-
um getur ekki verið mjög spennandi
kostur fyrir útlendinga sém vUja
fiárfesta í fyrirtækjum," segir Birkir
Baldvinsson, athafnamaðurinn og
Siglfirðingurinn í Luxemburg. -JGH
Skrifstofuhúsnæði
Til leigu hluti af „penthouse" í Lágmúla 5.
Upplýsingar í síma 689911 eða á skrifstofu
okkar, Lágmúla 5, 7. hæð.
Birkir Baldvinsson hf.
Þessi auglýsing birtist í einu dagblaðanna í vikunni. Birkir er kominn á kreik
á íslandi. Hér er hann að leigja hluta af efstu hæðinni í Lágmúla 5 sem
hann keypti fyrir um einu og hálfi ári.
Lítil Kringla við
hlið þeirrar gömlu
Atvinnumiðlun stúdenta:
Lítur verr
út en
i fyna
Sveinn Andrés Sveinsson,
formaður stúdentaráðs, segir að
minni eftirspurn sé eftir vinnu-
afli nú en í fyrra. Stúdentaráð
opnaði síðastliöinn mánudag at-
vinnumiðlun og þegar á fyrstu
þremur dögunum létu 120 stúd-
entar skrá sig.
„Þetta Mtur verr út en í fyrra.
Það er minni eftirspurn. í fyrra
útveguðum við tæplega 350
manns vinnu og þá var ástandiö
þannig að við önnuðum ekki eft-
irspurn, þaö var beðið um fleiri
í vinnu en við gátum útvegað."
Sveinn segir að atvinnumiðlun
stúdenta við háskólann hafi tekið
upp breytt vinnubrögð á skrif-
stofu sinni. „Nú er allt orðið
tölvuvætt sem þýðir að á auga-
bragði geta atvinnurekendur
fengið nákvæmar upplýsingar
um starfsreynslu viðkomandi."
-JGH
Kaupmannahöfh;
Tíu fyrirtæki
sýna í giugga
Standard
Bank
Tíu íslensk fyrirtæki munu
næstu sex mánuði stilla út vörum
sínum í Standard Chartered
Bank í Kaupmannahöfn. Bank-
inn bauð Útflutningsráði íslands
útstfihngargluggana til afnota
endurgjaldslaust í hálft ár. Sam-
tals er um að ræða 44 metra langa
gluggaröð á horpi Ráðhústorgs
og Vestervoldgade.
-JGH
Þessi bygging, sem er í smíöum,
er á milh Kringlunnar og Borgarleik-
hússins. Það eru Leó Löve, eigandi
ísafoldarprentsmiðju, og fleiri sem
byggja húsið sem á aö verða einhvers
konar lítil Kringla, lítil verslanamið-
stöð.
Til stendur að ísafoldarprent-
smiðja flytji starfsemi sína þangað
auk þess sem Nýja Kökuhúsið verði
með teríu í stíl Myllunnar sem er í
Kringlunni. Það verða því aðeins
nokkrir metrar á milli kökuhúsanna
- þó ekki innangengt. Þessi nýbygg-
ing tengist á engan hátt Kringlunni.
Þá verða í byggingunni skrifstofur
auk verslana að sjálfsögðu.
-JGH
Vinnur
lceland
Water með
Norway
Foods?
Nú eru á lokastigi samninga-
viðræður mfili Iceland Water og
Norway Foods um samstarf í
dreiflngu og sölu, aö sögn frétta-
bréfs Útflutningsráðs íslands. Ef
af verður þá er þetta líklegast
fyrsti samningur íslensks fyrir-
tækis af þessu tagi.
Helsti ávinningur Iceland Wat-
er er aðgangur aö miklu sölu- og
dreiflngarkerfi Norway Foods í
Bandaríkjunum auk þess sem
möguleikar vaxa til að auka starf-
semi fyrirtækisins, svo sem í
ferskfiskútflutningi.
-JGH
Akureyri:
Ekkert
saumað á
kvöldin
- þrjátíu sagt upp
Ákveðið hefur verið að leggja
niður kvöldvaktir við saumaskap
hjá Álafossi hf. á Akureyri og í
framhaldi af því var 30 starfs-
mönnum, sem unniö hafa á
vaktinni, sagt upp frá og með 1.
maí. Fólkinu er þess í staö boðin
vinna á daginn en ekki er vitað
hve margir þiggja hana, sam-
kvæmt upplýsingum hjá Álafossi.
Að auki verður fækkaö um tíu
störf tfi viðbótar í öðrum defidum
og eru þar á meðal verkstjórar,
sölumenn, skrifstofufólk og
starfsmenn í viðhaldi.
____________________-JGH
Á milli Kringlunnar og Borgarleikhússins. Þessi bygging verður verslana-
miðstöð og þvi eins konar lítil Kringla við hlið þeirra gömlu og stóru.
DV-mynd Brynjar Gauti