Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Side 7
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988.
7
dv_______________________Atviimumál
Ólafsfjörður:
Hættir kavíar-
verksmiðjan?
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Ég reikna helst með því að kaví-
arverksmiðjan verði lögð niður,
menn ráða ekki við þetta lengur,“
segir Valtýr Sigurbjarnarson, bæjar-
stjóri á Ólafsíirði, en rekstur verk-
smiðjunnar hefur gengið miög illa.
„Staða verksmiðjunnar er mjög
slæm og það eru ýmsir þættir sem
spila þar inn í,“ sagði Valtýr. „Það
gekk seint og illa að koma verksmiðj-
unni af stað á sínum tíma, verð á
hrognum var mjög óhagstætt í fyrra
og þetta er of einhæfur rekstur. Þá
var farin sú leið að festa meginhluta
fjármagns fyrirtækisins í húsnæði,
þannig að rekstrarfé hefur verið af
skornum skammti og dæmið gengur
ekki upp.“
Miklar vonir voru bundnar við
þessa verksmiðju á sínum tíma, en
þar hafa starfað 12-15 manns þegar
framleiðsla hefur verið í fullum
gangi. Valtýr sagði aö þá hefði það
haft sitt að segja að niðursuðuverk-
smiðja K. Jónssonar á Akureyri hafi
tífaldað sína kavíarframleiðslu eftir
að Ólafsfirðingarnir hófu þennan
rekstur og stór verksmiðja hefði ver-
ið reist í Stykkishólmi.
„Hér hefur trúlega farið, eins og
oft áður hjá okkur íslendingum ef
menn telja möguleika á aö auka fjöl-
breytni í vinnslu sjávarafurða, þá
sækja fleiri á þau miö en æskilegt
væri,“ sagði Valtýr.
Sjómenn við vinnu á einum Vestfjarðatogaranum, Gylli trá Flateyri.
DV-mynd Reynir
Grálúðuveiðar á
„Hampiðjutorgi"
Reynir Traustason, DV, Flateyri:
Grálúðan er aðeins farin að gera
vart við sig á hefðbundnum miðum
70 sjómílur vestur af Bjargtöngum
og hafa Vestíjarðatogarar verið að fá
frá 130 til 150 tonn eftir vikuna. Menn
vænta þess að meiri kraftur færist í
veiðina nú í maíbyijun að venju.
Veiðar þessar eru varla arðbærar
nema skipin nái fullfermi á 4-5 dög-
um vegna hins gífurlega veiðarfæra-
tjóns sem þarna á sér stað, eins og
nafn miðanna „Hampiðjutorg" gefur
til kynna. En nafngiftin vísar til þess
fjörkipps sem færist í framleiðslu
Hampiðjunnar h/f við aukna sókn á
þessar slóðir.
Humarvertíðin:
Ryðgaðar tunnur og
málaðar bannaðar
- Ríkismatið vill plasttunnur um borð
því að erfitt sé að hifa plasttunnurn-
ar upp úr lestum bátanna. Ef menn
geta ekki leyst slíkt smámál, hvemig
leysa þeir þá stóru vandamáhn?"
sagði Halldór Árnason, fram-
kvæmdastjóri Ríkismats sjávaraf-
urða, i samtali við DV.
Hann sagöi að nú væru plasttunn-
ur nær eingöngu notaðar við síldar-
söltun og eins við söltun grásleppu-
hrogna. Fjárfesting bátanna vegna
plasttunna er hverfandi lítil, að sögn
Halldórs Árnasonar, miðað við það
öryggi sem þær veita humarveiði-
mönnum. -S.dór
Undanfarin ár hefur notkun mál-
aðra eða ryðgaðra járntunna um
borð í humarbátum valdið vanda-
málum á erlendum mörkuðum þegar
ýmist ryðblettir eða málningarflögur
hafa verið í humrinum. Það er skoð-
un Ríkismats sjávarafurða að þetta
vandamál verði ekki leyst nema
menn hætti að nota þessar tunnur
og taki plasttunnur í staðinn.
Þess vegna hefur Ríkismatið bann-
að notkun járntunna um borð í
humarveiðibátum á þeirri vertíð sem
nú er að hefjast.
„Menn hafa verið að kvarta undan
LADA
VIÐG ERÐAR Þ JÓNUSTA
LADAEIGENDUR, ATHUGIÐ
MÓTORSTILLINGAR
10 ÞÚS. KM SKOÐANIR
OG ALLAR ALMENNAR
VIÐGERÐIR FYRIR LADABÍLA
ERUM MEÐ ENDURSKOÐUN FYRIR BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS.
PÚSTVIÐGERÐIR
BREMSUVIÐGERÐIR
VÉLAVIÐGERÐIR
BILAVERKSTÆÐIÐ AUÐBREKKU 4, KÓP.
46940
Við bjóðum landsins mesta úrval af
bólstruðum húsgögnum úr leðri, áklæði
eða
CALYPS0MA1 r
franska gæðaklæðningaefninu sem \ nefnt rið höfum
] LEÐURLUX i
Efnið nýtur sívaxandi vinsælda, enda hefur það
kosti fram yfir leður, er t.d. auðveldara í hreins-
un.
Einkaumboð á íslandi
Opið allar helgar.
TM-HUSGOGN
Siðumúla 30 — Simi 68-68-22
3
HORN
2
kr. 69.000,-