Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988.
9
Utlönd
Faðir eins af ísraelsku hermönnunum, sem féllu í aðgerðunum f Libanon nú
i vikunni, huggar annan son sinn, bróður hins fallna, við jarðarför hans í gær.
Simamynd Reuter
Felldu
fjárhirði
ísraelskir landnemar á herteknu
svæðunum á vesturbakkanum felldu
í gær arabískan flárhirði. Þar með
hafa ísraelsmenn fellt að minnsta
kosti eitt hundrað sjötíu og sjö Pa-
lestínumenn frá því að óeirðir hófust
á herteknu svæðunum á vesturbakk-
anum og Gaza-svæðinu í desember-
mánuði síðasthðnum.
Að sögn ísraelsmanna hófu land-
nemarnir skothríð á hóp palestín-
skra flárhirða skemmt frá bænum
Shiloh á vesturbakkanum í gær. flár-
hirðarnir höfðu komið fullnærri
bænrnn með flárhópa sína, að mati
landnemanna, og þegar þeir neituðu
að hverfa á brott hófu landnemarnir
skothríð.
Landnemarnir halda þvi fram að
þeir hafi skotið í sjálfsvörn þar sem
flárhirðamir hafi kastað að þeim
grjóti.
Vaxandi spenna virðist nú ríkja
milli ísraelskra landnema á her-
teknu svæðunum og palestínskra
íbúa þeirra.
Aðgerðir ísraelsmanna í Líbanon
síðustu daga, þar sem þeir réðust á
eitt helsta vígi Hizbollah-hreyfingar-
innar og felldu um flörutíu liðsmenn
hennar, hafa ekki slakað á spenn-
unni.
í gær voru bornir til grafar í ísrael
ísraelsku Hermennirnir þrír sem
féllu í aðgerðum þessum.
Vekja athygli
á mannrétt-
indabrotum
Vinstrisinnaðir skæruhðar hafa nú
haft tólf manns, þar á meðal nokkra
erlenda stjómarerindreka og blaða-
menn, í gíslingu í þrjá sólarhringa. í
tilkynningum frá mannræningjun-
um segir að þeir vilji með þessum
aðgerðum sínum draga athygli
heimsins að mannréttindabrotum í
Kólumbíu.
Sami hópur rændi þrem blaða-
mönnum til viðbótar í Bogota í gær.
Sögðust mannræningjamir ætla að
halda fréttamannafund í Bogota og
birta þar kröfur sinar, sem meðal
annars fela í sér stofnun sérstaks
dómstóls sem flalla á um mannrétt-
indabrot.
Gíslamir em ekki taldir í neinni
hættu og búist er við að þeir verði
látnir lausir eftir að ræningjamir
hafa fengið þá athygli sem þeir vilja.
Richard Aufdereggen er einn út-
lendinganna sem haldið er af
skæruliðunum í Kólumbíu. Hann er
frá Sviss og er aðalritari svissnesk-
kólumbiska verslunarráðsins.
Simamynd Reuter
SAGAN
UM SIGVALDA
OGFFÓRHJÓUÐ!*
Þetta er sagan um Sigvalda, sem vann stóra vinninginn í happdrættinu. Hvorki meira
né minna en Mercedes Benz. Hann seldi bílinn þegar í stað og keypti sér Kjarabréf
í staðinn. Þetta er svo sem ekki óvenjuleg saga, ef það væri ekki staðreynd að Sigvaldi
ekur nú, eins og greifi, á Mercedes Benz, konan hans á Toyota Corolla og
dóttursonur þeirra var tekinn úr umferð á nýju fjórhjófi í fyrradag.
Þetta byrjaði með miða...
Þú kannast ábyggilega við hann Sigvalda. Hann er búinn að vinna hjá borginni í
fjöldamörg ár. Konan hans, hún María, vinnur á lögmannastofunni austur í bæ. Þú
þekkir þau ábyggilega þegar þú sérð þau. Sigvaldi er mikill útilífsmaður. Hann er
alltaf í einhverju ferðastússi allan ársins hring. Þess vegna komst hann ekki hjá því
að kaupa happdrættismiða á árshátíð ferðaklúbbsins. Hann keypti að vísu ekki nema
tvo miða.
Vinningur í maí
Árshátíðin var í mars, árið 1985. Nokkrum vikum seinna var dregið í happdrættinu.
Það er að segja þann 20. maí 1985. Vinningurinn, Mercedes Benz 190 E árg. 85,
kom á númerið hans Sigvalda. Nú voru góð ráð dýr. Venjulegir borgarstarfemenn
eins og Sigvaldi aka ekki um á borgarstjórabílum. Sfikt bara gerist ekki.
Haþpdrættismiði til sölu
Það er ekki hægt að segja að hann Sigvaldi sé bjáni. Síður en svo. Að minnsta kosti
segir hún María, að hann hefði átt að skella sér í pófitíkina, - í stað þess að vera
félagi í SFRB. Það var ekki liðinn dagurinn þegar Sigvaldi var búinn að selja
happdrættismiðann.
„Ég fór bara og talaði við nokkra bíladellukarla. Einn þeirra borgaði miðann út í
hönd,“ sagði Sigvaldi þegar hann kom heim með úttroðið veskið, rúmlega eina
milljón í vasanum!
x
Peningarnir á fast...
Hún María gat ekki sofið um nóttina. Hún bylti sér á alla enda og kanta í rúminu.
Hún sá fýrir sér innbrotsþjófa, gengisfelfingar og alls kyns hörmungar. Sigvaldi aftur
á móti svaf eins og ungabarn — með veskið undir koddanum. Morguninn eftir fór
hann og ræddi við hann Pétur, ráðgjafa hjá Fjárfestingarfélaginu. Pétur ráðlagði
honum að kaupa Kjarabréf, og aðstoðaði hann við kaupin.
Þremur árum síðar...
Laugardagurinn tuttugasti febrúar nítjánhundruð áttatíu og átta var stór dagur í
lífi þeirra hjóna, Maríu og Sigvalda. Þau heimsóttu nýju söluskrifetofuna hjá
Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni strax og opnað var um morguninn. Þár fengu þau
kaffisopa hjá Stefáni ráðgjafa og aðstoð við sölu á Kjarabréfunum frá 1985.
... nýr bíll og meira til!
Þegar Sigvaldi seldi happdrættisvinninginn árið 1985 fékk hann 1.050.000 krónur
fýrir miðann. Hann keypti Kjarabréf fýrir 1.049.580 krónur. Við sölu Kjarabréfanna
fékk hann 2.685.422 krónur. Þannig gat hann samdægurs keypt sér 1988 árgerð af
Mercedes Benz. Nákvæmlega sama bíl og var í vinning á sínum tíma, en auðvitað
spánýjan. Bíllinn kostaði hann 1.360.000 krónur sléttar. Hann keypti þar að auki
Toyota Corolla bíl fyrir Maríu. Corollan kostaði 505.000 krónur. Þar af leiðandi átti
hann eftir 820.422 krónur, sem nægðu honum til að gefa Jónasi dóttursyni sínum
splunkunýtt fjórhjól í fermingargjöf. Þá átti Sigvaldi ennþá eftir 630.422 krónur, sem
hann vill ekki segja hvað hann gerði við. Hann Stefán hjá Fjárfestingarfélaginu veit
allt um það, þó að hann segi engum frá því. Hann Stefán selur nefnilega Kjarabréf
• Þetta er alveg satt. Sögunni og nöfnum hefur að vísu verið breytt - af augljósura ástæðura!
FJÁRFESnNGARFÉLAGÐ
__Kringlunni 123 Reykjavík S 689700_
V)SÍ7BSp