Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988. GAUTABORG FLUGLEIDIR -fyrírþíg- Úflönd Mikill ótti greip um sig meöal skólabarna í Henderson við sprenginguna. Simamynd Reuter og síðasta leikvika vetrarins Nú erveruleg ástæöafyrirallaaökynna sér árangurog stööu liðanna í ensku knattspyrnunni og spila meö af krafti. Enginn seöill hefur komið fram með tólf réttum þrjár undanfarnar vikur og er því potturinn núna fjórfaldur. (þessari viku, síöustu leikviku vetrarins, verður potturinn borgaður út fyrir flesta leiki með réttum úrslitum. Spáöu því vandlega í liðin og spilaðu með af fjórföldum krafti, ^ . - núna getur þekkingin færtþér milljónir. III ISLENSKAR GETRAUNIR einilukkupotturínnþarsem þekking a margfaidar vinningsiíkur. Hægteraðspá í leikinasímleiðisog greiða fyrir með kreditkorti. Þessi þjónusta er veitt alla föstudaga frákl. 9:00-17:00 og laugardaga frá kl. 9:00-13:30. Síminner688 322 Upplýsingar um úrslit í síma 84590. ttftl Öiyggls- málum mjög ábóta- vant Starfsmenn efnaverksmiðjunnar í Henderson í Nevadafylki í Banda- ríkjunum vissu aö þeir unnu í tímasprengju sem fyrr eða síðar myndi valda stórslysi, að því er tals- maður verkaiýðsfélagsins í verk- smiðjunni sagði í gær. Að sögn talsmannsins hefur félagiö um langan tíma kvartað um aðstæð- ur í verksmiðjunni, þar á meðal um ástand öryggismála en því mun hafa verið mjög ábótavant. Tveir eru nú taldir hafa farist í sprengingunni í efnaverksmiðjunni, sem framleiddi meðal annars elds- neyti fyrir eldflaugar. í bréfi, sem öryggismálafulltrúi sendi bæði ríkisstofnunum og efna- verksmiöjunni sjálfri árið 1982, segir að hún sé einhver sú versta sem hann hafi komið inn í. í bréfmu seg- ist fulltrúinn ekki skilja hvers vegna verksmiðjan hafi ekki þegar sprung- ið í loft upp. Yfirvöld reyna nú að komast að því hvað olli sprengingunni. í gær varð einnig sprenging í olíu- hreinsunarstöð Shell-olíufélagsins í Louisianafylki. Talið er að sjö manns hafi látið lífið í þeirri sprengingu og fjörutíu og tveir meiddust, misjafn- lega alvarlega. Loks rannsaka yfirvöld nú orsakir eldsvoða sem varð í hæstu byggingu Los Angeles á miövikudagskvöld. Tólfta og þrettánda hæö skýjakljúfs- ins urðu báðar alelda og að minnsta kosti einn maður lét lífið. Ekki er vitað hvað olli eldinum en hann kviknaði skömmu eftir að vatn var tekið af byggingunni til þess að hægt væri að setja upp eldvarnakerfi í henni. Tólfta og þrettánda hæð skýjakljúfs- ins stóðu í Ijósum logum. Einn maður fórst en átta þurfti að bjarga með þyrlu af þaki byggingarinnar. Simamynd Reuter Fundu þriðju kóka- ínverksmiðjuna Yfirvöld í Kólumbíu fundu í gær stóra efnaverksmiðju sem ft’amleiddi kókaín í miklu magni. Þetta er þriðja kókaínverksmiðj- an sem þau hafa fundið á innan viö vikutíma. Að sögn yfirvalda var athöfnum fyrirtækisins dreift á fjögur bændabýli. Hafði verksmiðjan sína eigin raforkustöð, fimmtíu og tvo þurrkoftia og íbúðarað- stöðu fyrir allt að hundrað verkamenn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.