Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Page 12
12
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988.
Spumingin
Hver heldur þú að verði
næsti forseti Bandaríkj-
anna?
Margrét Jónsdóttir: George Bush, en
ég vona þó frekar aö Michael Dukak-
is veröi næsti forseti.
Hanna Egilsdóttir: Ég held aö repú-
blikaninn George Bush verði næsti
forseti Bandaríkjanna.
Þórarinn Halldórsson: Blökkumað-
urinn Jesse Jackson, ekki spurning.
Andri Marteinsson: Það veröur Mic-
hael Dukakis, þaö er nánast öruggt.
Ægir Guðmundsson: Ronald Reagan,
hann veröur forseti til dauðadags.
Steingrímur Pálsson: Ronald Reag-
an, vegna stefnu hans í afvopnunar-
málum.
Lesendur
Að tvofalda þjóðartekjur?
aðalumræðuefnið var hvernig við
íslendingar gætum tvöfaldað þjóðar-
tekjur okkar á næstu 10 árum, var
komið víða við
Svona umræðuþættir eru alltaf
fróðlegir og sennilega eitt vinsælasta
sjónvarpsefnið, fyrir utan kvik-
myndirnar. Það er hins vegar vandi
að stjórna svona þáttum, ekki síst
fyrir þá sök að viðmælendur vilja
verða langorðir og þarf oft að skera
á málflutning í miðjum klíðum. Það
er hins vegar skondið að sjá að menn
í viðskiptalífmu, sem heimsóttir eru
og rætt við áður til þess að nota sem
innskot í svona þátt, þurfa að lesa
afblöðum það sem þeir ætla að segja.
í þessum þætti var m.a. staðhæft
að sjávarútvegur og „vel menntuð
þjóð“, eins og það var orðað, væri
það sem einna helst væri htið til sem
auðlindar og útflutningsverðmæta
íslendinga. Það kemur oft fram í
svona þáttum að menn telja að við
íslendingar séum betur menntaðir
en aðrar þjóðir. Trúir fólk þessu
virkilega? Hvað um þjóðir eins og
Frakka, Hollendinga, Svía, Þjóð-
verja, Norðmenn? Menntun hér er
engu betri en annars staðar gerist
og verri ef eitthvað er.
Og svo er þaö þessi sígilda setning
sem allflestir viðmælendur taka sér
í munn í svona þáttum: „Ég vil bara
taka undir með Jóhannesi að...,“ o.s.
frv. Þetta er mjög hvimleitt og sýnir
einhvern undirlægjuhátt eða skort á
frumkvæði í málflutningi.
í þessum þætti var komið inn á
fastgengi og hinn verðlitla gjaldmiðil
okkar. Hannes Hólmsteinn vildi láta
tengja gjaldmiöil okkar við sterkan
erlendan gjaidmiðil, eins og mjög
hefur verið rætt og hvatt til. En þá
brá svo við að þegar Hannes Hólm-
steinn vildi fara að ræða þetta nánar
var reynt að stöðva hann í þeirri
umræðu.
Þetta mál er þó einmitt það sem
brýnast er að ræöa og þarf að útkljá
fyrr en síðar. En það er eins og með
önnur mál, sem flokkast undir svo-
kölluð „viðkvæm" mál, að þau eiga
bara ekkert að vera til umræðu í
þjóðfélaginu að mati sumra, að því
er virðist. Innganga og aðild okkar
að Evrópubandalaginu eða fríversl-
unarsamningur við Bandaríkin hins
vegar er eitt þeirra mála sem ekki
má heldur ræða!
Leiðararnir á Stöð 2 eru vettvangur
fyrir slíkar umræður og vonandi
verður framhald á svona umræðum
þar sem rætt verður um þjóðmálin,
bæði þau sígildu og þau viðkvæmu
sem ekki hefur mátt ræða hingað til.
Slík umræða gæti hugsanlega leitt til
ákvarðana sem gæfu tilefni til aukn-
ingar þjóðartekna á næsta áratug eða
svo.
Gísli Einarsson skrifar:
í Leiðara Stöðvar 2, þar sem Jón
Óttar Ragnarsson ræddi þjóðmál við
þá Jóhannes Nordal, Hannes Hólm-
stein Gissurarson, Brynjólf Bjarna-
son og Vilhjálm Egilsson og
„Brýnt að ræða tengingu gjaldmiðils okkar við sterkan, erlendan gjaldmið-
il,“ segir i bréfinu.
„Notkun Ijósa að degi til er nauðsyn þar sem erfitt er að sjá bifreiðir þegar sól er lágt á
Umferðarmálin:
segir bréfritari m.a.
Boð og bönn það eina sem dugar
Sigurjón Helgi Kristjánsson skrifar:
I lesendadálki DV hinn 22. apríl var
bréf frá Bjarna Björnssyni um nýju
umferðarlögin undir fyrirsögninni
„Ljósafár og lagakrókar". Vil ég nú
beina orðum mínum að greinar-
höfundi:
Kæri vinur, ég veit ekki hvort þú
hefur nokkurn tíma komið út fyrir
landsteinana eða yflrhöfuð borið
umferðarkerfi Evrópu og annarra
heimsálfa saman við „það fyrir-
brigði" sem finnst hér á landi.
íslendingar eru ekki heimsins
bestu ökumenn en þó fer þeim fram,
sérstaklega þegar beitt er boða- og
banna-aðferðinni. Því miður virðist
það vera það eina sem þeir skilja.
Notkun ljósa að degi til, einkum
og sér í lagi núna, er nauðsyn þar
sem erfitt er að sjá bifreiðir sem
koma á móti þegar sóhn er svo lágt
á lofti. - Og svona þér að segja þá
hef ég notaö bílbelti í öll þau 11 ár
sem ég hef ekið, og það hefur ekki
valdið mér erfiðleikum.
Ég vil þakka lögreglunni hér á
landi fyrir að vera ekki svo grunn-
hyggin að „APA“ eftir Dönum sem
heimila þykjustuleik í umferðinni. í
Danmörku er heimilt að setja hönd-
ina undir sætisólarnar og aka þannig
án þess að hafa þær spenntar. Það
skal einnig tekið fram að slysatíðni,
þ.m.t. smáskellir, er hlutfallslega
meiri þar en hér, hvort sem miðaö
er við fólksfjölda eða ekki.
Þar sem greinarhöfundur virðist
hafa áhuga á erlendum lögum vil ég
bæta við að í Þýskalandi, þar sem
leyfilegt er að aka 130 km/klst„ en
einn ökumaöur var tekinn hér í vet-
ur fyrir að leika þessar listir, eru
kröfur um ástand dekkja, sem og
annan útbúnað bifreiöa, mun meiri
en hér. Hefði því umræddur ökumað-
ur, sem gortaði af þeirri staðreynd
að hafa ekið á umræddum hraða,
veriö sektaður háum sektum í
Þýskalandi fyrir ástand þeirra
dekkja er undir vagni hans voru þeg-
ar hann var tekinn hér.
Að lokum vil ég biðja ökumenn um
að sýna hverjum og einum kurteisi
og tillitssemi í umferðinni. Það kost-
ar ekkert. En slys af völdum sýninga
og af vangá eru ófyrirgefanleg og
óafturkræf.
Fagurt mannlíf - frábær lestur
Gestur Sturluson skrifar:
Þegar þessar línur eru færðar á
blað hefur Pétur Pétursson þulur
nýlokið viö að lesa í útvarpið Fagurt
mannlíf, sem er fyrsta bindiö af íjór-
um í hinni miklu ævisögu séra Árna
Þórarinssonar sem Þórbergur Þórð-
arson skráði. Þessi ævisaga er eitt
merkasta ritverk- sinnar tegundar
sem skapað hefur verið á íslandi.
Það gefur augaleið að það er ekki
heiglum hent að túlka slíkt verk í
útvarpi. En hvemig tókst nú Pétri
þetta? Það er ekki að orðlengja að
annan eins snilldarlestur hefl ég ekki
heyrt í útvarpinu síðan Helgi Hjörv-
ar las Bör Börson og dr. Einar Ólafur
Sveinsson las Njálu.
Það var næstum eins og höfund-
amir og persónur sögunnar stæðu
Ijóslifandi meðal okkar. Þetta er ekki
á allra færi. Það er svo skrýtið, en
það ér eins og vissir menn þurfi að
lesa ákveðnar sögur. Mér finnst t.d.,
að enginn geti lesið Bör Börson,
nema Helgi Hjörvar og enginn Njálu
nema dr. Einar Ólafur Sveinsson. -
Eins finnst mér, eftir að hafa hlýtt á
Pétur lesa Fagurt mannlíf, að enginn
geti lesið ævisögu séra Árna svo
nokkur mynd sé á nema Pétur Pét-
ursson.
En hér má Pétur ekki láta deigan
síga, hann má ekki láta staðar numið
fyrr en hann hefur lokið við alla
ævisögu séra Árna. Og ekki nóg með
það. Spólur með svona lestri þarf að
fjölfalda og láta þær vera til útlána
á öllum bóksöfnum fyrir þá sem eru
blindir.
Mér finnst að upplesari eins og
Pétur Pétursson ætti að vera meira
í starfi sem upplesari, bæði í útvarpi
og eins finnst mér að Blindrafélagið
ætti að fá hann til að lesa inn á spól-
ur, eins og ég hefi áður drepið á.
Pétur Pétursson þulur. - „Annan
eins snilldarlestur hefi ég ekki heyrt
í útvarpinu", segir bréfritari m.a. um
iestur Péturs á Fögru mannlifi.
„Eurovision“
- úrslitin
Maria Albertsson hringdi:
Ég hafði spáð því að ísland fengi
sömu útreið og þeir sem gera lítiö
úr íslenskum tónlistarmönnum
og söngvurum sem eru búsettir
hér á íslandi.
Ég var að halda upp á tapið meö
kampavíni, vitandi um að önnur
lönd bera enga virðingu fyrir
hvítmn, íslenskum tónlistar-
mönnum.
Þingmenn fyrir
þjóðarheildina
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Mig langar til að koma á fram-
færi þakklæti til félagsmálaráð-
herra fyrir vel unnin störf í þágu
þjóðarínnar. Jóhanna Sigurðar-
dóttir er fastmótuð og ákveðinn
ráðherra. Hún lætur aðra ekki
segja sér fyrir verkum eins og við
vill brenna hjá sumum ráðherr-
unum.
Mér dettur þá helst i hug vinur
mlnn, Sverrir Hermannsson.
Hann lét meðráðherra stna ekki
segja sér fyrir verkum í sínu
ráðuneyti, t.d. í sambandi við
Sturlumálið, enda varð dómsúr-
skurður honum í hag. Svona
frammáfólk vil ég hafa, fólk sem
vinnur fyrir þjóðarheildina.
Mér dettur enn í hug frumvarp
Jóhönnu félagsmálaráðherra í
sambandi við húsnæðismálin.
Þaö er skynsamlega ályktað og
vel hugsað. Þar er hún að hjálpa
ungu fólki og eldra að eignast þak
yfir höfuðið. Ég veit enda að það
frumvarp verður samþykkt í
þinginu. Hafi hún góðar þakkir
fyrir vel unnin störf í þágu þjóö-
arinnar.
Hringið
í síma
27022
milli kl.
13 og 16,
eða skrifið.