Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1988, Side 15
FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 1988. 15 Kynbætur á eldislaxi Nýlega lagði ég fram tillögu til þingsályktunar um að Alþingi álykti að fela ríkisstjórninni að láta reisa og reka kynbótastöð fyrir eld- islax. Helstu rök fyrir ílutningi tillög- unnar eru eftirfarandi: Laxeldi er þegar orðin mikilvæg atvinnugrein á íslandi. Ekki er ólíklegt að útflutningur fiskeldisafurða nemi um 600 millj- ónum króna á þessu ári. Á árinu 1987 var framleiðsla á sláturlaxi um 539 tonn, þar af um 40 tonn frá hafbeit. Framleiðslan kom frá 29 stöðvum og var um 180% aukning frá árinu 1986 þegar sláturlax nam um 188 tonnum frá 15 stöðvum. Ársstörf í fiskeldi voru um 240 árið 1987 en það var um 33% aukn- ing frá fyrra ári. Áætlað er að á þessu ári verði framleiðsla sláturlax um 1400 tonn og á árinu 1989 um 2500 tonn. Áætl- uð framleiðsla gönguseiða er um 12 milljónir seiða 1988 og gæti prðið 15-20 milljónir seiða 1989. Laxeldi er sú grein fiskeldis sem hraðast hefur vaxið. Ef rétt er á málum haldið gæti laxeldi orðið gífurlega mikilvæg atvinnugrein hér á landi í framtíð- inni. Erfitt er að henda á aðra framleiðslugrein sem býr yfir jafn- miklum möguleikum. Sem dæmi má nefna að Norðmenn hafa þegar meiri tekjur af laxeldi en af þorsk- veiðum og veiða þó mikinn þorsk. Mikilvægasta fisktegund Norð- manna, þeirra miklu fiskveiðiþjóð- ar, er nú eldislax. Til eru áæfianir í Noregi um að innan tiltölulega fárra ára verði tekjur af fiskeldi þrisvar sinnum hærri en tekjur af öllum fiskveiðum Norðmanna samanlagðar og þó eru Norðmenn meðal mestu fiskveiðiþjóða heims. Á ýmsum sviðum búa íslending- ar yfir einstæðum möguleikum til fiskeldis. Tæplega finnst, miðað við KjaUarirm Guðmundur G. Þórarinsson þingmaður fyrir » Framsóknarflokkinn þá yfirsýn, sem menn nú hafa, nokkuratvinnugrein sem gæti auk- ið þjóðartekjur íslendinga jafn- mikið og fiskeldi. Fiskeldi gæti í framtíðinni orðið sambærilegt í þjóðarbúskapnum og fiskveiðar. En þá ríður á að halda rétt á málum. Aðstaða á íslandi Aðstaða til fiskeldis á íslandi er að mörgu leyti hin ákjósanlegasta. Framtíð íslands í matvælafram- leiðslu gæti orðið mikil. Lega landsins norður við heim- skautsbaug úti í miðju Atlantshafi er ákjósanleg í heimi vaxandi mengunar. íbúar jarðarinnar munu í vaxandi mæli sækja í hollt, náttúrulegt fæði, framleitt við bestu aðstæður, án hvers konar mengunar og geislunar. Stærð landsins og lág íbúatala skipta miklu í þessu sambandi. Hér er gnægð af fersku, góðu og smit- fríu vatni til eldis. Sjór og loft eru hrein og ómenguð. Jarðhitinn býð- ur upp á möguleika til að auka vaxtarhraða, möguleika sem að- eins fáir geta keppt við. Gnægð raforku er hér til dælingar og ann- arrar orkunotkunar. Fóður til fiskeldis má framleiða hér enda hráefnið að mestu innlent. Aðflutt aðföng eru því ffemur lítil. Ein- angrun landsins minnkar áhættu af sjúkdómum. Allt leggst þetta á eitt. Ólíklegt er að nokkrir geti keppt við íslendinga í hagkvæmni við seiðaeldi. Kynbætur Norðmenn hafa um nokkurt ára- bil stundað kynbætur á eldislaxi. Tilraunastöðin í Sunndalsöra var t.d. stofnuð 1971. Við kynbætur hafa Norðmenn lagt meginþunga á þrjú atriði: 1) aukinn vaxtarhraða, 2) síðbúinn kynþroska, 3) aukna mótstöðu gegn sjúkdómum. Árangur er mikill eða 3-5% aukning vaxtarhraða á ári. Sem dæmi má nefna að 3% vaxtar- hraðaaukning á ári þýðir tvöfaldan vöxt á 24 árum, en 5% vaxtar- hraðaaukning á ári þýðir tvöfaldan vöxt á 14 árum. Gífurleg eftirspum er eftir hrognum úr kynbættum laxi í Nor- egi. Ljóst er að aukinn vaxtarhraði norska eldislaxins og síðbúinn kynþroski mun gera íslenskum eldisstöðvum erfitt fyrir í framtíð- inni. íslensku laxastofnarnir verða í miklum mæli kynþroska eftir eitt ár í sjó. Við kynþroska fer fóður og orka mest í að þroska hrogn og svil. Fiskurinn vex ekki þrátt fyrir eldi og gæði fisksins til matar minnka. Urval af seiðum til undan- eldis er lítið og kynbætur nánast engar. Brýnasta málið við eldi á laxi á íslandi er nú að kynbæta stofna til undaneldis. Vart er unnt nema í litlum mæli að treysta á innflutt hrogn og áhætta af því er ef til vill mjög mikil því erfiðir sjúkdómar geta borist með hrognunum. íslensku fiskeldisstöðvarnar eru flestar ungar að árum og eiga fullt í fangi með að halda rekstrinum gangandi fyrstu árin. Því virðist ljóst að fiskeldisstöðvarnar em þess ekki megnugar að reisa og reka kynbótastöð. Ríkið virðist vera sá aðili sem eðlilegast væri að kæmi starfseminni af stað. Hvert ár sem tapast er dýrt. Mjög mikilvægt er að hefja kynbætur hið fyrsta. Það tekur mörg ár að ná árangri. Framleiðsla landanna í kringum okkur eykst hröðum skrefum, en kynbótastöö mun stórbæta sam- keppnisaðstöðu okkar. I Kollafirði eru hafnar kynbætur á hafbeitarlaxi. Þar er að hluta ver- ið að leita annarra eiginleika en í eldi, svo sem ratvísi eða aukinna endurheimta. Kynbótastöð Kynbótastöð fyrir eldislax þarf að vera við sjó. Strandlengjan við Þorlákshöfn kæmi vel til greina. Stöðin þarf að standa sér og nokk- uð einangruð vegna sjúkdóma- hættu, en vel má vera að fluttir yrðu til hennar stofnfiskar frá mörgum stöðum í byrjun. Aðstaða þarf að vera til klaks, seiðaeldis, geymslu stofnfisks og einhvers áframeldis. Gera verður ráð fyrir að seiði yrðu síðan alin í nokkmm matfiskastöðvum samkvæmt samningi við kynbótastöðina. Mæl- ingar á þroska fisksins og slátur- þunga væru síðan notaðar til vals á fiski til undaneldis. Það val væri framkvæmt á fiski sem alinn er í sjálfri kynbótastöðinni. Kynbóta- stöðin gæti síðan selt hrogn í framtíðinni og af reynslu Norð- manna að dæma er hér um mjög arðbært fyrirtæki að ræða. Sjálf skipulagning og tölvustýr- ing kynbótanna gæti verið fram- kvæmd af sérfræðingum hjá Rannsóknarstofum landbúnaðar- ins. Sérfræðingar landbúnaðarins hafa þegar mikla reynslu í kyn- bótum og undirbúningur vegna kynbóta á hafbeitarlaxi mundi nýt- ast vel í kynbótastöð fyrir eldislax. Eðlilegt væri að hugsa sér að rík- ið stofnaði og ræki þessa kynbóta- stöð í byrjun. Kynbótastöðin væri hins vegar hlutafélag þar sem áhugaaöilum, svo sem fiskeldis- stöðvum, gæfist kostur á kaupum á hlutabréfum. Þannig gætu fisk- eldisstöðvamar og landssamtök þeirra tekið við rekstrinum síðar meir er þeim vex fiskur um hrygg. Mikilvægt er að í stjórn kyn- bótastöðvarinnar ættu sæti frá byrjun fulltrúi landssambands fiskeldis og hafbeitarstöðva og full- trúi rannsóknaaðila, e.t.v. Háskól- ans, auk aðila með rekstrarþekk- ingu. Framtíð fiskeldis á íslandi veltur á því að rannsóknir og tilraunir verði efldar. islendingar hafa þegar dregist aftur úr öðrum þjóðum í fiskeldi. Guðmundur G. Þórarinsson „Tæplega finnst, miðað við þá yfirsýn sem menn nú hafa, nokkur atvinnu- grein sem gæti aukið þjóðartekjur Islendinga jafnmikið og fiskeldi.“ Borgaraflokknum ekki í hel komið Það er nú svo að menn og málefni koma og fara en skilja eftir misjafn- lega djúp spor. Eins er því farið með skoðanakannanir. Sú könnun, sem fór fram nú á dögunum og sýndi hugsanlegt fylgi flokkanna, á sjálfsagt ekki eftir að marka djúp spor en þeir sem eru á móti Borg- araflokknum héldu sína hátíð. Leyfum þeim að halda áfram ánægjudansi sínum. Við hin vitum betur. Það þarf meira en skoðana- könnun til að flokkur leggi upp laupana, sér í lagi flokkur sem berst fyrir jöfnum rétti og betri kjörum allra láglaunastétta þessa lands og ekki síst þeirra sem á ein- hvern hátt mega sín lítils í okkar „velferðarþjóðfélagi“. Nei! Hann er kominn til að vera og ekki vanþörf á eins og felldir kjarasamningar um allt land sýna og sanna. Launabætur Borgaraflokkurinn er aldeilis ekki á flæðiskeri staddur með konu og verkalýðsleiðtoga eins og Aðal- heiði Bjarnfreðsdóttur innanborðs sem nýverið flutti ásamt öðrum þingmönnum Borgaraflokks þingályktunartillögu um launa- bætur. í henni felst að persónuaf- sláttur við álagningu tekjuskatts hækki upp í 19.360 krónur og að ónýttur persónuafsláttur verði greiddur úr ríkissjóði til launþega. Gengið er út frá því að skattleys- ismörk einstaklinga verði hækkuð upp í 55.000 krónur á mánuði. Hægt er að fjármagna þetta með því að setja hátekjuskatt eða hærra tekju- skattsstig á tekjur yfir 2 milljónir á ári og með veltuskatti á fiárfest- KjaUarinn Ágústa Björnsdóttir húsmóðir og varaformaður Borgaraflokksfélags Akraness og nágrennis ingafélög, verðbréfamarkaði, fiármagnsleigur, banka og trygg- ingarfélög. Sjúkrabifreið sjómannsins Aðalheiður er ekki ein um að hafa unnið ötullega á þingi. Hinir þingmenn flokksins hafa unnið vel að málefnum sem koma lands- mönnum öllum til góða, samanber tillaga til þingsályktunar um björg- unarþyrlu. Nú þegar er búið að stofna sjóð til styrktar kaupum á slíku tæki. Þetta er brýnt hags- munamál sjómanna en eins og við vitum er þyrlan sjúkrabifreið sjó- mannsins. Æth okkur landkröbb- unum þætti ekki skrítið ef þessi sjálfsögðu öryggis- og hjálpartæki vantaöi eða væru svo ófullkomin að þau gerðu lítið sem ekkert gagn nema við smæstu slys og hagstæð veðurskilyrði. Stærri þyrla Landhelgisgæslunn- ar getur flogið um 150 sjómílur frá eldsneytisstað á haf út og bjargað 6 mönnum. Flest íslensk skip eru „Það þarf meira en skoðanakönnun til að flokkur leggi upp laupana, sér í lagi flokkur sem berst fyrir jöfnum rétti og betri kjörum allra láglaunastétta þessa lands.“ „Með göngum undir eða brú yfir Hvalfjörð myndu samgöngur stór- batna," segir greinarhöfundur. - Frá vegagerð við Hvalfjörð. með 10 til 20 manna áhöfn nema frystitogarar með 20 til 26 manns. Ætli nokkur ykkar, lesendur góðir, treysti sér tÚ að ákveða hver fái að lifa og hver skuli deyja. Þyrlan hefur heldur ekki afísingarbúnað og ekki er hægt að setja slíkan bún- að í hana. Úr þessu ófremdar- ástandi verður að bæta strax. Lega Vesturlandsvegar Eitt er það hagsmunamál okkar Vestlendinga sem mig langar til að minnast á og allir þingmenn Vest- urlands hafa reyndar staðið að þingsályktunartillögu um nýja legu Vesturlandsvegar um Hval- fiörð og Grunnafiörð. Með göngum undir eða brú yfir Hvalfiörð myndu samgöngur stórbatna. Leiðin milli Akraness og Reykjavíkur styttist um 61 km (úr 109 km í 48 km). Leið- in til Borgarness styttist um 45 km. Er þetta framkvæmd sem kæmi ekki bara Vestlendingum og þeim, sem eiga leið norður, til góða held- ur er hún þjóðhagslega hagkvæm. Þessar tillögur eru aöeins lítill hluti af starfi þingmanna flokksins. Borgaraflokksmenn hafa ekkert málgagn, meðal annars vegna þess hefur lítið frést af störfum þeirra á Alþingi. Má samt með ólíkindum teljast deyfðin í fréttaflutningi af starfi þeirra hver svo sem skýring- in er. Borgaraflokkurinn verður ekki þagaður í hel. Hann er kominn til að vera og til að gera. Ágústa Björnsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.