Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988. 3 Personuafslatfur hœkkar í 16.092krónur játfUKmHlmM Hækkun persónuafsláttar í staðgreiðslu sem koma átti til fram- kvæmda 1. júlí hefur verið flýtt til 1. júní. Persónuafsláttur fyrir hvern mánuð á tímabilinu júní-desember verður 16.092 krónur. Breyting á persónuafslætti hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið skattkort. Launagreiðanda ber þess í stað að hækka persónuafsláttinn við útreikning staðgreiðslu. Við ákvörðun á staðgreiðslu ber launagreiðanda að hækka persónu- afslátt sem hér segir: Um 18,26% hjá þeim aðilum sem eru með skattkort útgefin 27. desember 1987 eða fyrr og um 8,75% hjá þeim aðilum sem eru með skattkort útgefin frá og með 28. desember 1987 til og með 31.maí1988. Skattkort sem gefin eru út 1. júní nk. eða síðar bera réttan persónu- afslátt og þarf því ekki að hækka per- sónuafslátt sem þar kemur fram. Enn- fremur skal ekki hækka persónu- afslátt á námsmannaskattkortum eða uppsafnaðan ónýttan persónu- afslátt sem færður er á milli mánaða. Munið að launagreiðendum ber að hœkka persónuafslátt vegna júnflauna RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.