Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1988, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1988. 5 Fréttir Eftirminnilegast að taka á móti heiðursdoktorsnafnbótinni - sagði Vigdís Finnbogadótlir ólafur Amareon, DV, Boeton heföi veriö að taka á móti heiðurs- doktorsnafnbótinni frá Smith Coll- Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- ege. Hún sagði að sér Þætti þetta lands, sagði í samtali við DV f fyrra- mikill heiður og sér heföi þótt vænt dag'að þessi heimsókn til Banda- um þá miklu hlýju sem nemendur ríkjanna hefði verið henni sérlega og kennarar við skólann hefðu sýnt ánægjuleg. íslandi og íslendingum. Vigdís sagöi aö eftirrainnilegast Aðspurö um fund sinn með Duk- akis sagði Vigdís aö hann hefði framdráttar íslenskura útflutningi. persónutöfra og sagðist hún teija Slíkt væri einmitt tilgangurinn hann sterkan persónuleika. með dagskrá eins og þeirri sem var Vigdís sagðist hafa haft míög annan í hvítasunnu. gaman af aö koma í The Design Vigdís sagðist vera þakklát fyrir Center og sagðist hún vera ánægð þá veðursæid sem hún hefúr notið með aö heyra aö fólki fyndist heim- hér f Bandaríkjunum. Hún sagðist sókn hennar vel heppnuð og til hafa notið fallegs útsýnis á leiðinni frá Northampton til Boston á sunnudag, og þetta væri í fyrsta skipti á feröum hennar til Banda- ríkjanna sera hun hefði dálftinn tíma til aö skoða landið. Forsetinn sæmdur heiðursdoktorsnafnbót - frá Smith College í Massachusetts Vigdís Finnbogadóttir ræddi við Dukakis, ríkisstjóra Massachusetts og for- setaframbjóðanda demókrata, í Bandaríkjaheimsókn sinni. DV-mynd ÓA Vigdís hitti Dukakis að máli Útflutningsráð íslands efndi til vörukynningar á islenskum vörum á Ritz Carlton hótelinu i Boston i fyrradag meðan á heimsókn Vigdísar Finn- bogadóttur stóð. Eftir kynnlngu á íslenskum vörum ræddi forsetinn við gesti. Henni á hægri hönd er Árni Árnason frá Austurbakka. DV-mynd ÓA Ólafur Amarson, DV, Boston Annar í hvítasunnu byijaði snemma hjá forseta íslands. Klukkan níu veitti hún bandarískum frétta- mönnum viðtöl í Harvardklúbbnum í Boston. Laust fyrir klukkan ellefu átti hún fund með Dukakis, ríkisstjóra Massachusetts, á skrifstofu hans í ríkishúsinu í Boston. Það fór vel á með forseta íslands og forsetafram- bjóðandanum bandaríska. Fundur þeirra stóð í hálfa klukkustund eða öllu lengur en áformað hafði verið. Aðspurð sagði Vigdís að þau hefðu rætt um eitt og annað og ríkisstjór- inn hefði spurt margra spurninga um ísland. Klukkan 12.15 hófst hádegisverðar- fundur í Range Carlton hótelinu. Fyrir þessum fundi stóð Útflutn- ingsráð íslands með stuðningi fjöl- margra íslenskra fyrirtækja. Þangað var boðið fjölda af bandarískum kaupsýslumönnum og á borðum var íslenskur matur framreiddur af Hilmari B. Jónssyni. Eftir kynningu á íslenskum vörum gafst gestum kostur á aö hitta forseta íslands að máli. Strax að þessu afloknu var haldið á fund borgarstjóra Boston, Ray- monds Flynn. Þau Vigdís ræddust við í um tuttugu mínútur. M.a. töluðu þau um íþróttir og atvinnu- mennsku íslenskra knattspyrnu- manna í Evrópu. Aö sjálfsögðu var einnig komið inn á þjóðaríþróttimar, handbolta og skák. Frá borgarstjóranum var farið í The Design Center, þar sem öll helstu fyrirtæki á sviði húsgagna og heimil- isvara í Boston eru með verslanir og skrifstofur. Að sögn Ingjalds Hanni- balssonar, framkvæmdastjóra Út- flutningsráðs íslands, em góðar lík- ur á að heimsókn forseta íslands þangað í gær hafi gert það að verkum að nýjar dyr opnist Islendingum á sviði ullariðnaðar og í húsgagnaiðn- aði. Ingjaldur sagðist m.a. telja að íslensk skrifstofuhúsgögn væru mun betur hönnuð en þau bandarísku sem voru til sýnis í The Design Cent- er. Ingjaldur sagði að það væri ómet- anlegt fyrir íslenskan iönað að for- setinn skuli leggja hönd á plóginn í svona kynningarstarfi. Að þessu búnu var haldið niöur að höfn og siglt á báti að flugvellinum og um hálfsexleytið flugu forseti ís- lands og fylgdarlið hennar til Wash- ington. Ólafnr Amaison, DV, Boston; Vigdís Finnbogadóttir var á sunnu- dag sæmd heiðursdoktorsnafnbót frá Smith College í Northampton í Massachusettsfylki í Bandaríkjun- um. Það var fallegt veður og hiti í lofti er skólaslit og útskrift fóru fram. Er leið á athöfnina, sem hófst stundvís- lega kl. 14.15, heyrðust þrumur í íjarska og ský dró fyrir sólu öðru hvoru. Veðurguðirnir voru þó hlið- hollir stúlkunum sjö hundruð sem voru að útskrifast og heiðursdokt- orsefnunum sex. Því veðrið hélst mjög gott þar til athöfninni, sem fór fram undir berum himni, var lokið. Auk forseta íslands voru fimm konur sem sæmdar voru heiðurs- doktorsnafnbót frá Smith College á hvítasunnudag. Þær eru Tilker Con- way, fyrrum rektor skólans, Cather- ine Woodruff Fanning, ritstjóri Christian Science Monitor, Mary McCarthy rithöfundur, Barbara A. Black, deildarforseti við lagadeild Colombiaháskólans í New York, og Gloria Steinem, kvenréttindafröm- uður og einn af stofnendum tímarits- ins MS. Gloria Steinem er í hópi þekktustu núlifandi kvenna í Bandaríkjunum. Hún tók próf frá Smith College 1956 og hefur nær sleitulaust síðan verið í eldlínunni vegna baráttunnar fyrir jafnrétti karla og kvenna. Barbara A. Black er einn virtasti fræðimaður Bandaríkjanna á sviði lögfræði. Eiginmaður hennar, Char- les Black, er mörgum íslenskum lög- fræðingum og laganemum að góðu kunnur. Hann er mikill íslandsvinur og hefur margsinnis komið til lands- ins og flutt fyrirlestra um lögfræðileg efni. Það var hátíðleg stund þegar rektor Smith College sæmdi Vigdísi Finn- bogadóttur heiðursdoktorsnafnbót í lögum. Viðstaddir risu úr sætum og hylltu forseta íslands vel og lengi. í ræðu sinni sagði rektorinn að það væri mikill heiður fyrir skólann að fagna sigrum Vigdísar og fá að sæma hana heiðursdoktorsnafnbót. Nefndi hún að Vigdís hefði stuðlað að vernd- un þjóðlegrar arfleiíðar og sýnt mikla leiðtogahæfileika. Smith College er ein virtasta menntastofnun Bandaríkjanna. Skólinn var stofnaður 1871 sem kvennaháskóli og enn þann dag í dag fá karlmenn ekki aðgang að skólan- um í fyrrihlutanám. Þeir mega þó stunda mastersnám við skólann. Smith College er ekki skóh sem kennir ungum stúlkum hannyrðir og góða siði. Skóhnn er einn fremsti skóli Bandaríkjanna og hann býr konur undir samkeppni í atvinnulíf- inu. í gegnum tíðina hafa margar konur, sem námu við Smith College, getið sér frægð og frama. Ein sú þekktasta er væntanlega Gloria Stei- nem. í upphafi þótti Smith College, eins og flestir kvennaháskólar, byltingar- kennd stofnun. Enn í dag er hann gróskumikill gkóh sem fylgist vel með nýjungum og ræktar sjálfstæða hugsun hjá nemendum sínum. Sex íslenskar konur hafa lokið BA- prófi frá Smith Cohege. Fyrsta ís- lenska konan sem lauk prófi þaðan er Valborg Sigurðardóttir Snævarr. Hún er jafnframt eini íslendingurinn sem hefur mastersgráðu frá skólan- um. Valborg hefur fylgt forseta ís- lands í þessari Bandaríkjaför og var viðstödd athöfnina á hvítasunnudag. VIÐSKIPTAVINIR VORLEIKS ’88 Varan kemurtil landsins 10. júní nk. með m/s Bakkafossi og verður afgreidd í Skeifunni 3G (áður Egill Árnason). Allar nánarí upplýsingar verða veittar í símum 686337 og 686204 eftir 5. júní og í auglýsingu sem birt verður í Mbl. og DV fimmtudaginn 9. júní nk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.