Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988.
3
Fréttir
Plantað út af krafti í laugardal:
„Moldvörpustaifi aðmestulokið
Almannatiygginga-
bætur hækka um 10%
Heilbrigðis- og tryggingaráðherra,
Guðmundur Bjarnason, hefur sett
reglugerð um hækkun allra bóta al-
mannatrygginga um 10%. Eftir þessa
bótahækkun verða bótaupphæðir
einstakra tegunda bóta eftirfarandi:
Elli- og örorkulífeyrir 9.577. Tekju-
trygging 17.107. Heimilisuppbót 5.816.
Sérstök heimilisuppbót 4.000. Barna-
lífeyrir 5816. Mæðralaun vegna eins
barns 3.676. Mæðralaun vegna
tveggja bama 9.631. Mæðralaun
vegna þriggja barna 17.087. Vasapen-
ingar skv. 19. grein 5.905. Vasapen-
ingar skv. 51. gr. 4.662.
Með þeirri hækkun, sem nú verður
á bótum almannatrygginga frá 1. júní
nk„ hafa bætur aimannatrygginga
hækkað um 41,7% auk sérstakrar 3%
hækkunar um sl. áramót sem varð á
tekjutryggingu, heimilisuppbót og
sérstakri heimilisuppbót. Eftir bóta-
hækkunina er grunnlífeyrir kr.
36.500 á mánuði. -SMJ
DAIHATSU CHARADE
TAKMARICAÐ MAGN
FRÁBÆRT VERÐ
3 DYRA 4 GfilA TS KR. 429.900, " STGR.
5 DYRA 4 GÍRA CS KR. 444.900 j" STGR.
VERÐ MIÐAST VIÐ BÍLINN KOMINN Á GÖTUNA
BRIMBORG H/F
ÁRMÚLA 23 - SÍMAR 685870 - 681733
Ökuleyfissvi|itingar:
Kunna að hafa
verið mistök
„Það kunna að hafa verið mistök
að ákveða þetta svo á sínum tíma.
Ég hef mikinn áhuga á að þetta mál
fari til Hæstaréttar. Ég ræði þetta við
lögreglustjóra þegar hann kemur til
landsins eftir helgi. Ég hef þegar
rætt við ríkissaksóknara um rnálið,"
sagði Sturla Þórðarson, fulltrúi lög-
reglustjóra.
DV skýrði í gær frá niðurstöðu
Sakadóms Kópavogs um aö ökuleyf-
issviptingar væru ólöglegar væru
þær ekki framkvæmdar af lögreglu-
stjóra eða löglærðum fulltrúum
hans.
Sturla sagði aö megnið af þeim
brotum, sem gæfu ástæðu til svipt-
ingar, væru framin utan venjulegs
skrifstofutíma og hjá embætti lög-
reglustjóra væru engar bakvaktir.
Með þessu fyrirkomulagi, að aðal-
varðstjóri svipti menn ökuleyfi til
bráðabirgða, hefði sparast mikil
vinna og það gert allan framgang
mála mun skjótvirkari.
„Hér er boöunardeild. Það eru tveir
menn í því að ná í fólk sem hefur
verið boðað hingað en mætir ekki.
Því er mun betra ef hægt er að svipta
strax og þá er málið komið til dóm-
ara innan tveggja daga í stað vikna
eða mánaða eins og áður,“ sagði
Sturla. -sme
„Nú fer að komast einhver mynd á
þessar framkvæmdir," sagði Jóhann
Pálsson, garðyrkjustjóri borgarinn-
ar, er DV innti hann eftir hvernig
framkvæmdir gengju í Laugardaln-
um.
„Frá því að framkvæmdir hófust í
fyrra hefur verið um hálfgerða
„moldvörpustarfsemi" að ræða ef
svo má segja. Við höfum verið að
leggja ræsi og lagnir og því þurft að
grafa þessi ósköp,“ sagði Jóhann.
Þeir sem hafa átt leiö fram hjá
Laugardalnum að undanfórnu hafa
tekið eftir því að þar er heilmikið
búið að grafa upp og planta.
„Það er búið að byggja upp Engja-
veginn. Ætlunin er að planta trjám
meðfram honum öllum, alveg frá
Reykjavegi að Holtavegi, þannig að
komi göng yfir dalinn. Og ýmsu
fleiru er verið að vinna að og fara
Svefneyjamálið:
því framkvæmdirnar að sjást ofan-
jarðar eftir að jarðvegsvinnu er mik-
ið til lokið," sagði Jóhann.
Eins og flestum er kunnugt er ver-
ið að útbúa þama heilmikinn skrúð-
garð sem ætti að verða tilbúinn eftir
tvö ár.
í sumar verður að mestu unnið að
gróðursetningu og undirbúningi fyr-
ir næsta vor en næsta sumar er gert
ráð fyrir að hafist verði handa um
Hef hæfni mína upp á vasann
-segir Guðmundur L. Jóhannesson héraðsdómari
„Ég er aö fá úrskurð Hæstaréttar
núna. Hann birtist í blöðunum
nokkru áður en ég fékk hann. Ég hef
þá hæfni mína upp á vasann. Það
næsta er að setja máhð á dagskrá.
Ég get ekki fullyrt að dómur liggji
fyrir fyrir sumarfrí,“ sagði Guð-
mundur L. Jóhannesson, héraðs-
dómari í Hafnarflrði.
Guðmundur hafði úrskuröaö sig
vanhæfan sem dómara í Svefneyja-
máhnu. Hæstiréttur fehdi úrskurð-
inn úr gildi. „Ég vildi gera þetta strax
frekar en síðar. Þá hefði ekki verið
hætta á að það hefði eyðilagst sem á
undan var gengið. Þegar krafa veij-
andans kom þótti mér eðlilegast að
taka á þeim ummælum sem forráða-
maður eins barnsins hafði um mig.
Það hefur reynst erfitt að ná verj-
endunum tveimur saman. Það tókst
loks í fjórðu tilraun. Þá kom annar
þeirra með þá kröfu að ég viki sæti
vegna ummæla sem ég hafði í Sjón-
varpi. Ef lögmenn taka aö sér svona
verkefni þá verða þeir að geta sinnt
þeim eða þá fengið annan í sinn stað.
Ég mun setja þeim stólinn fyrir dyrn-
ar núna,“ sagði Guðmundur L. Jó-
hannesson. -sme
að byggja þau mannvirki sem eiga húsdýragarð sem á að koma fyrir
að rísa í Laugardalnum. Þær bygg- þarna í dalnum.
ingar eru aðallega í tengslum við -RóG.