Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Blaðsíða 4
4
FÖSTUDAGUR 3. JONÍ 1988.
Fréttir
(Mafur Kristjánsson hjá Hraðfiystihúsi Ólafsvíkur:
Eg gjörþekki
húsið og beið
ekki eftir grímu
„Hvorki hana né mig sakar eftir
þetta. Hún mætti til vinnu í gær-
morgun. Reykurinn var mjög mikill,
svo mikili að ég sá ekki ljósin. Hún
var hrædd og rataöi ekki um húsið,
enda nýbyijuð að vinna hér hjá okk-
ur. Ég gjörþekki húsið og treysti ekki
á að bíða eftir grímu. Eg hefði ekki
viljað vita af stúlkunni þama hefði
hún þurft að vera þar einhvem
tíma,“ sagði Ólafur Kristjánsson sem
bjargaði stúlku út úr reykjarkófinu
efdr sprenginguna í Hraðfrystihúsi
Ólafsvikur.
„Við fundum aldrei eldinn. Það var
ekki fyrr en við fómm að aðgæta
með frystiklefann að við sáum hvað
gerst hafði. Hurð, sem skilur að klef-
ann og vélasal, hafði opnast við
sprenginguna og lokast aftur. Eldur-
inn hefur síðan slokknað vegna súr-
efhisskorts. Á meðan opið var hefur
reykurinn komist út. Þetta var
hræðilegt á að líta,“ sagði Ólafur
Kristjánsson.
„Við gefumst ekki upp heldur höld-
um áfram. Það em allir við hrein-
gemingar í dag. Síðan verður að
mála stóran hluta hússins. Það verð-
ur að fara þrjár umferðir. Við lestuð-
um í skip, 3500 kassa, daginn fyrir
óhappið. Hef ði einhvem grunað hvað
væri í vændum hefðum við lestað
meira. í frystiklefanum voru 13.500
kassar," sagði Ólafur Kristjánsson,
yfirverkstjóri í Hraðfrystihúsi Ólafs-
víkur.
Hann taldi góða von til þess að
vinnsla gæti hafist um miðja næstu
viku. Þó er ljóst að frystiklefinn verð-
ur ónothæfur mun lengur. Ólafur
sagði að fengnir yrðu frystigámar og
eins kæmust þeir með afurðir í
frystiklefa í Rifi.
-sme
Olafur Kristjánsson yfirverkstjóri. Það var ekki síst fyrir snarræði hans að
engin slys urðu á fólki þegar sprenging varð i frystiklefa Hraðfrystihúss
Ólafsvíkur.
Fyrsta skóflustungan að nýja aðveitustöðvarhúsinu var tekin af Sigurði
Emilssyni, formanni rafveitunefndar Hafnarfjarðar. OV-mynd BG
Rafveíta Hafnarfjarðar 50 ára:
Fyrsta skóflustungan að nýrri
veitustöð tekin á afmælisdaginn
Fyrsta skóflusttmgan aö nýju að-
veitustöðvarhúsi að Öldugötu 39 í
Hafnarfirði var tekin 1. júní. At-
burðinn bar upp á afmælisdag raf-
veitunnar en hún tók til starfa fyrir
fimmtíu árum, 1. júní 1938. Þennan
dag bar einnig upp á 80 ára afmæli
Hafnarfj arðarkaupstaðar.
Núverandi rafveitustöð var tekin í
notkun árið 1964. Þá voru liðin 60 ár
frá því Jóhannes Reykdal setti upp
og tók í notkun fyrstu almennings-
rafveitu á íslandi.
í tengslum við byggingu stöðvar-
hússins er stefnt að tengingu rafkerf-
isins við nýja orkusölustöð sem
Landsvirkjun ætlar að byggja við
Hamranes, sunnan við Hafnarfjörð.
Nýja aðveitan verður með 132 kíló-
volta spennum.
Orkusvæði Rafveitu Hafnarfjarðar
nær yfir Hafnarfjörð, Bessastaða-
hrepp og hluta af Garðabæ. Við-
skiptavinir hennar eru 5.750 talsins
en íbúar þessa svæðis voru rúmlega
15 þúsund 1. desember sl. Raforku-
notkun árið 1987 var 3.183 kílóvatt-
stundir á íbúa á ári.
Aðalverkefni rafveitunnar í ár er
bygging aðveitustöðvarhússins en
auk þess verður unnið við nýlagnir,
s.s. háspennudreifikerfi og notenda-
kerfi. -StB
Dómur í kynferöisafbrotamáli:
<ki prenthæft sem mig langar að segja
segir Pálína Jónsdóttir í bamahópi Kvennaathvarfsins
„Það er ekki prenthæft það sem
mig langar til að segja. Það er
hræðilegt að menn skuli fyrst vera
aðeins dæmdir í fjögurra ára fang-
elsi, sem síðan er stytt í tvö og hálft
ár, fyrir jafnalvarlegan glæp og í
þessu máli. Þetta markar bamið
allt þess líf,“ sagði Pálína Jóns-
dóttir en hún starfar í bamahópi
Kvennaathvarfsins.
Pálína er að tala um nýgenginn
dóm í Hæstarétti. Þar var faðir
dæmdur í tveggja og hálfs árs fang-
elsi. Hann hafði haft mök við dóttur
sína í tíu ár. Að jafnaði voru tilvik-
in tvö til þijú í viku hverri.
„Það er hræðilegt þegar foreldri,
sem á að veita bami sinu öryggi
og umhyggju, bregst með þessum
hætti. Við í barnahópnum höfum
lagt áherslu á upplýsingar og
fræðslu þar sem við getum ekki
breytt réttarkerfinu. Réttarkerfið
bregst þegar refsing fyrir glæpi
sem þennan er ekki þyngri.
Bamahópurinn æúar að funda
um þessi mál almennt. Viö munum
láta frá okkur heyra. Viö reynum
að hafa vakandi auga með þessum
málum. Þetta er allt unnið í sjálf-
boðavinnu og við höfum ekki getað
farið nógu djúpt ofan í hlutina til
þessa. Við höfum gefið út tvo bækl-
inga og eram þátttakendur í starf-
semi Rauða kross hússins,“ sagði
Pálína Jónsdóttir. -sme
Bannsvæði
á Breiðdals-
grnnni
stækkað
Sjávarútvegsráðuneytið bannaði
togveiðar á hólfi á Breiðdalsgrunni
7. maí sl. Að tillögu Haffannsókna-
stofmmar hefur ráðuneytið ákveðið
að stækka sváeðið til austurs og tók
sú breyting gildi 31. maí sl.
Bannið er í gildi um óákveðinn
tíma. -StB
Forsetakosningamar:
Alls staðar hvatning
„Okkar starf hefur eingöngu byggst á þvi koma fram meö hvatningarorð til þjóðarinn-
að veita fólki upplýsingar,“ sagöi Anna Sigríö- ar. í þessum kosningum gefst tækifæri til aö
ur Gunnarsdóttir, sem er einn af forsvars- sýna forsetanum stuöning og þakklæti fýrir
mönrmm stuöningsmanna Vigdísar Finn- framúrskarandi vel unnin störf í þágu lands
bogadóttur, í samtali við DV. „Eins og fram og þjóöar síðastliöin átta ár,“ sagöi Sigríöur.
hefur komið opnuöum viö stuöningsmenn Að sögn hennar hefur fjöldi fólks komiö til
Vigdísar bækistöðvar þangaö sem fólk getur þeirra og hvatt þau.
leitaö. Hér mun liggja frammi kjörskrá, við - Hvemig finnst þér hljóöið í fólki?
veitum upplýsingar um atkvæöagreiðslu er- „Hér mætum viö engu ööra en elskuleg-
lendis og ýmislegt annaðsagði Anna Sigríö- heitum. Þaö hafa engir komiö hingaö til aö
ur. setja út á mótffambjóðandann. Við leggjum
Stuðningsmennimir leggja áherslu á að hér bara áherslu á að fá sem flesta tii að nota
sé ekki um kosningabaráttu aö ræöa í þess atkvæðisrétt sinn og þar með þann möguleika
orös fýllstu merkingu. Ekki verður nein aö sýna forsetanum virðingu fyrir vel unnin
fundaherferö og hefur enginn kosningastjóri störf. Vikumar fram aö kosningum munum
verið skipaöur. viö nota til að ná því markmiðL“ -RóG.
„En viö munum vekja á okkur athygli og
Forsetakosningamar:
Baráttan gengur vel
- segir Heiga Gísladóttír, kosningastjóri Sigrunar
„Ég er ánægð með gang mála þaö sem af er ipjög algengt aö fólk þekki ekki stjómar-
er þessari kosningabaráttu," sagöi Helga skrána og viti ekki af neitunarvaldinu sem
Gísladóttir, kosningasljóri Sigrúnar Þor- forsetinn hefur,“ sagði Helga, „það veröur
steinsdóttur, í samtali viö DV, „þetta hefur bara hissa."
gengiövonumfrainar.Efliraömestiæsmgur- - Hvemig hefur kosningabaráttunni veriö
inn er yfirstaöinn er allt annaö að hitta og háttað?
spjalla viö fólk. Viöhorfiö hefur breyst. Nú „Viðhöfummestveriöí því aðfaraá vinnu-
hafa menn áttað 9ig á því aö þetta ffamboð staði og halda fundi. Einnig hafa ýmsir aörir
er ekki persónulegt á móti Vigdísi,“ sagði fundirveriðhaldnir umlandiöallt Þáhöfum
Helga. viö verið talsvert í bænum og rabbað við fólk.
Að sögn Helgu viröist sem fólk sýni mál- Markmiðiö hefur veriö aö tala viö sem flesta
staðnum meiri áhuga. persónulega. Þá hafa áhugasamir hringt til
„Fólk kvartar undan því aö hafa ekki fengið okkar og beöiö um nánari upplýsingar, sagöi
nógu miklar upplýsingar um málstaö okkar Helga.
enda hafa fjölmiölar sýnt okkur takmarkaðan Að sögn hennar munu stuðningsmenn Sig-
áhuga en þegar við höfum fengið að skýra rúnar halda sínu striki og sagðist hún bjart-
okkar mál þá era undirtektimar góðar. Það sýn á komandi vikur. , -RóG.