Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Side 5
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988. s x>v_______________________________Fréttir Ólafsvík: Stórljón í fiystihúsbruna Ámi E. Albertsson, Ólafevík: Smávægileg sprenging í Hrað- frystihúsi Ólafsvíkur varð til þess að mikinn reyk um allt húsið og fólk átti fótum sínum fjör að launa undan kolsvörtu reykjarkófinu. Náöu þó allir að komast út en Ólafur Kristj- ánsson verkstjóri mun þó hafa orðið að hlaupa inn í mökkinn til að að- stoða unga stúlku sem hafði villst. Hafsteinn Sigtryggsson, sem vinn- ur við frystitækin, sagði að þaö hefði eflaust viljað honum og þremur fé- lögum hans, sem voru í „pásu“ í umbúðageymslunni inn af frysti- tækjunum, til lífs að ekki var búið að loka dyrum sem liggja að skrif- stofuhluta hússins og þeir hefðu því komist þar út. Starfsfólkiö var að koma úr pásu og því ekki orðið niðursokkið í vinnu og hefur það eflaust hjálpað til að greiðlega gekk að komast út. "Slökkviliðið í Ólafsvík var strax kallað á vettvang og reykkafarar fóru inn í frystihúsið til að leita að fólki ef einhver kynni að hafa lokast inni. Einnig var kallað til aðstoðar slökkvilið frá Hellisandi og Grundar- firði. Eldurinn virðist hafa orðið mestur í tækjaklefanum og við frystigeymsl- urnar. í tækjaklefanum var flest brunnið sem brunnið gat, ljósin bráönuðu og héngu niður eins og grýlukerti. Einangrunarplast í lofti frystiklefans var bráðið að stórum hluta og plastklæðning utan um frystiafurðirnar í klefanum svo til alls staðar brunnin. Ekki er enn ljóst hvað olli brunan- um, en menn hér leiddu getur að því að það kynni að hafa lekið úr gas- • kúti og gas hefði náð að berast um tækjaklefann, frystigeymsluna og inn í loftræstikerfið. Síðan hefði náð að kvikna í gasinu og reykurinn bor- ist þannig um allt hús. Ljóst er að ómælt tjón hefur orðið á húsnæðinu sjálfu, tækjabúnaði og á unnum sjávarafurðum. Þá mun þetta tjón hafa í fór með sér nokk- urra mánaða stöðvun á vinnslu og því eitthvert atvinnuleysi á meöan. Verið var að landa úr togaranum Má þegar eldurinn kviknaði en lönd- unin var stöðvuö og ekki var ákveðið hvað gert yröi við aflann. Svartsýn- ustu menn höfðu jafnvel áhyggjur af því að Már yrði látinn leggja upp annars staðar, sem hefði í för með sér enn meiri samdrátt í fiskafla Ól- afsvíkinga en orðið er eftir eindæma lélega vertíð. Humarinn settur heilfrystur í umbúðirnar. DV-mynd Omar Humarveiöarnar: Heilfiysting eykur verðmætið um 40% Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyiuin: „Það eru þrír Danir hjá okkur núna sem kenna okkur hvernig á að standa aö þessu,“ sagöi Ásmundur Friðriksson í Frostveri hér í Eyjum en þar er verið að frysta heilan hum- ar og hefur gengið nokkuð vel. „Við vorum búnir að undirbúa okkur vel fyrir þetta. Danirnir eru bæði að kenna okkur og fylgjast með framleiðslunni. Einn þeirra verður hér meðan vertíðin stendur yfir“. Ásmundur sagðist vera með þrjá humarbáta í fullum viðskiptum og fá helming afla af einum til viðbótar og þegar hann var spuröur hvernig þetta kæmi út fyrir sjómenn og út- gerð svaraði hann. „Aflaverðmætið eykst um 40% og ef eitthvað er þá er þetta hagstæðara gagnvart kvót- anum sem miðast við slitinn humar." Eitt besta verð landsins frá kr. 49.000- Sófasett frá kr. 73.000, Opið allar helgar TM-HUSGOGN Jjíðumúla 30 - Sími 68-68-22 mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm aaanUno Fáeinir Uno 45 til afgreiðslu strax á verði frá því fyrir gengisfellingu. Verð aðeins kr. 339.000,- Notið tækifærið og gerið góð kaup. Hagstæð greiðslu- kjör og gamli bílinn tekin upp í. Framtíð við Skeifua, símar 685100 - 688850.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.