Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 3. JÚNl 1988. Fyrsta kvartmílukeppni sumarsins verður haldin laugardaginn 4. júní kl. 14.00 á kvartmílubrautinni við Kapelluhraun. Kepp- endur mæti fyrir kl. 11.00. Starfslaun Ríkisútvarpsins til höfunda útvarps- og sjón- varpsefnis Ríkisútvarpið auglýsir starfslaun til höfundar eða höfunda til að vinna að verkum til frumflutnings í Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi eða sjónvarpi. Starfslaunum geta fylgt ókeypis afnot af íbúð Ríkisút- varpsins í Skjaldarvík við Eyjafjörð. Starfslaun eru veitt til 6 mánaða hið lengsta og fylgja þau mánaðarlaunum skv. 2. þrepi 140. Ifl. í kjara- samningum Bandalags háskólamanna og fjármála- ráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Umsóknum ásamt greinargerð um fyrirhuguð við- fangsefni skal skilað til skrifstofu útvarpsstjóra, Efsta- leiti 1, Reykjavík, fyrir 3. júlí nk. Þar eru ennfremur veittar nánari upplýsingar um starfslaunin. /»«tfl& RÍK/SÚTVARP/Ð Brautarholti 20 í scnnatsai: # „A La Carte“ Úrval Ijúffengra sérrétta Leyfió brai’ólaukunum aó njóta sín Aðeins þaó besta er nógu gott fyrir gesti okkar í setustofu, á barnutn eða í danssal: Smáréttir frá kl. 11.30-0230 t Húsið opið fóstudag og laugardag kl. 18-03 Gtæsiley; utanálifífyandi glerlyfta flytur yesti upp í Mánaklúhbinn. Láttu nú verða afþví að hjóða konunni í Mánaklúhhinn, perlu íslensks skemmtanalífs Hljómsveit hússins leikur fyrir dansi Pantið horð tímanleya, símar 29098 oy 23335 Utlönd Opna umdeild- ar fangabúðir ísraelsk heryfirvöld leyfðu í gær erlendum fréttamönnum aðgang að umdeildum fangabúðum í eyðimörk nálægt landamærum Egyptalands. Þar eru í haldi um tvö þúsund og fimm hundruö fangar, flestir án rétt- arhalda. Fréttamönnunum var boðið að kanna aðstæður í fangabúðunum en fréttir höfðu borist um að þær væru ófagrar. Kvarta fangamir undan skorti á bókum og dagblöðum, hita, ryki, sandi og leiöindum. Yfirmaður fangabúðanna sagði ísraelsk yfirvöld ekkert hafa að fela og kvað aðstæð- urnar fuilnægjandi. Fangabúðirnir voru settar á lagg- irnar í mars síðastliðnum sem svar við uppreisninni á herteknu svæðun- um. Þar eru um þrjú hundruð fangar dæmdir fyrir að hafa efnt til óeirða. Hinir hafa verið settir inn án þess að réttarhöld hafi farið fram yfir þeim. Þar eru palestínskir blaða- menn, kennarar, læknar, lögfræð- ingar og verkalýösleiðtogar auk þeirra sem tekið hafa beinan þátt í uppreisninni. Múhameðstrúarmönnum er bann- aö að biðjast fyrir undir beru lofti og fóngunum er safnað saman þrisv- ar til fjórum sinnum á dag og þeir taldir. Fangarnir hafast viö í tjöldum og eru tuttugu og átta fangar í hverju tjaldi. Jafnmargir fangar þurfa að nota sama sápustykkið við þvotta. Israelskur hermaður á verði við hluta eyðimerkurfangabúðanna sem erlend- um fréttamönnum var leyft að skoða í gær. Simamynd Reuter Einkarannsókn á Palmemorðinu gagntýnd Gunnlauctur A. Jónason, DV, Lundi: „Við hægrimenn höfum sem kunnugt er barist fyrir auknum einkarekstri á flestum sviöum þjóðlifsins en okkur þykir ansi langt gengið þegar jafnaðarmenn heija einkarekstur innan lögregl- unnar,“ sagöi íhaldsmaðurinn Anders Björk við umræðu í sænska þinginu í gær. Umræðuefnið var fréttir þess efnis að bókaútgefandi að nafiú Ebbe Carlsson hafi haft leynilegan starfa fyrir lögregluna við rannsókn Palmemorðsins. Meðal annars mun Ebbe Carls- son í vor hafa yfirheyrt Banisadr, fyrrverandi forseta Irans, í París um kenningar hans um að íranir standi á bak við Palmemoröiö. Sænsku dagblöðin hafa í gær og i dag verið sneisafull af fréttum og umræðum um þetta mál. Þar kem- ur meðal annars fram að Anna Greta Lejon dómsmálaráðherra hefur staðfest að rikisstjómin hafi lagt blessun sína yfir leynilögreglu- störf bókaútgefandans. Þeir sem hávaðasamastir eru í gagnrýninni benda meðal annars á að Ebbe Carlsson sé náinn vinur Hans Holmérs sem var á sínum tíma látinn víkja sera stjómandi rannsóknar Palmemorðsins. Hol- mér hafi þvi löngu eftir að honum var sparkað getaö haft áhrif á rann- sókn málsins gegnum Ebbe Carls- son og þannig haldið á lífi PKK- sporinu svokallaða, það er kenn- ingu Holmérs um að kúr dí sku sam- tökin PKK standi á bak við morðið á Palme. Ebbe Carlsson er kunnur jafnað- armaður í Svíþjóö og meðal annars er hann sagður náinn vinur Önnu Gretu Lejons dómsmálaráðherra. Leiðtogar íhaldssamra repúblik- ana hafa varað George Bush, vara- forseta Bandaríkjanna, við þvi að það hvemig hann hefur hundsað hægri- menn í flokknum geti átt eftir aö kosta hann forsetaembættið í kosn- ingunum í haust. Þeir repúblikanar, sem lengst em til hægri í flokknum, reiddust eink- um ummælum Bush í viðtali við New York Times í gær, þar sem hann seg- ist ekki þurfa að leita eftir stuðningi þeirra. Sögðu tveir af leiðtogum hæ- grimanna, þeir Howard Phillips og Richard Viguerie, að Bush gæti átt eftir að tapa forsetakosningunum í haust ef hægri vængur flokksins hætti stuðningi sínum við hann nú. í viðtalinu við New York Times sakaði Bush þá Phillips og Viguerie um að vera á ystu brún hægrimanna íhaldssamir repúbllkanar hafa nú sent Bush viðvörun. Símamynd Reuter og taldi sig ekki þurfa að starfa með þeim. Sagði varaforsetinn að Richard Vigueries ætti sér mjög fáa skoðana- bræður. gegnum póst, sagði í gær að hann hefði sent út milljónir bréfa til stuðn- ings við Reagan forseta, bæði 1980 og 1984, en í dag væri óvíst hvort Vigueries, sem starfar við fjáröflun hann myndi nokkuð styðja Bush. íhaldssamir repúblik- anar reiðir Bush

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.