Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988. 15 Samlynda þjóðin Islendingar byggja stórt land og í sumu tilliti erfitt. Bent hefur veriö á aö hver íslendingur búi í tíu sinn- um stærra landi en hver Banda- ríkjamaður t.d., þrisvar sinnum stærra landi en hver Rússi, sem þó byggir stærsta land veraldarinnar, og hundraö sinnum stærra landi en sumar Evrópuþjóðir. Samt ger- um viö kröfur um sömu þjónustu og mörgum sinnum þéttbýlli lönd og stöndum undir því á margan hátt. Við teljum okkur til tekna aö halda ekki úti her og spara þannig fé en í rauninni er „herkostnaður“ okkar margvíslegur og mikiU. Getur nærri aö vegakerflö er fjárfrekt í svo stóru landi og víða vantar sáran dýrar framkvæmdir í því svo það geti tahst sæmilega öruggt þeim byggöarlögum sem þaö á að þjóna. Átaks er vissulega enn þörf í gerð varanlegra vega í landinu, með bundnu slitlagi og samfelldu en ekki bundið hér og holótt þar og endar þá góði kaflinn stundum á hæð og í beygju þannig að ökumaönninum líöur eins og skíðastökkvara sem kemur fram af háum stökkpalli - og svo taka lætin við, sbr. fyrsti malarspottinn í Hvalfirðinum. Þjóðþrifaframkvæmdir Þá vantar undirgöng víða um landið svo öryggis byggðarlaga sé gætt, t.d. undir Olafsfjarðarmúla, á Vestíjörðum og Austfjörðum og jafnvel undir Hvalfjörðinn. Víða þarf einnig að brúa. Allt eru þetta réttlætanlegar framkvæmdir mið- að viö arðsemisútreikninga Vega- gerðarinnar eða öryggi byggðar- laga. Einnig er talað um hálendis- vegi til þess að minnka fjarlægðir á milli fjórðunganna. Bæjarstjóri Akureyrar hefur einnig bent á að góðar hafnir séu líka á óskalistanum enda þjóna þær meiru en samgöngum því þær eru auðvitað lífæöar undirstöðuat- vinnuvegs þjóðarinnar, sjávarút- vegsins. Góð höfn er ekki einungis samgöngubót heldur skapar einnig atvinnuöryggi í byggðarlaginu, byggðastefna og slysavörn í sama orðinu. Flugvellir- sjúkraflug Þá benda menn á flugið og segja það skjóta skökku við að færleikur- inn þurfi að ösla forina upp í kvið til þess að koma farþegunum á KjáUarinn Guðlaugur Tryggvi Karlsson hagfræðingur áfangastað, að ekki sé minnst á að mörg flugvélin fer einnig með póst og öryggi í sjúkraflugi er okkur lífs- nauðsynlegt. Auðvitað má svo allt- af bæta flugkostinn sjálfan og einn- ig skipin til samgangna þótt slíkt sé ef tíl vill ekki beint á boröi hins opinbera. Hér er aðeins búið að tæpa á sam- göngumálum í „herkostnaðinum" við það að vera íslendingur, en árétta má orð nóbelskáldsins, Hall- dórs Laxness, til flölmiðla á sínum tíma, sem skildu ekkert í því hvern- ig þjóðin gætí hafst við í landinu, að þaö væri yfirhöfuð talað mjög dýrt að vera Islendingur. Undirstöðuatvinnugrein Sjávarútvegurinn er í eðli sínu mjög fjármagnsfrek atvinnugrein enda er herferðinni beint að ekki minna máli en bálviðrum noröur- hafa og atvinnugreinin tahn sú hættulegasta sem stunduð er. Slysavarnafélagið berst einnig um hart til þess að efla öryggismál sjó- mannanna okkar og þarf ekki að fjölyrða um hversu málefnið er brýnt. Gaman væri að gefa því málefni myndarlega gjöf núna á sjálfan sjó- mannadaginn. Sigurvegarinn, þjóðin og rollan Þá er landbúnaður dýr á norð- lægum slóðum og víkinganiöjamir treysta útlendingum ógjarnan fyrir flallalambinu, kartöflunum og smjörinu. Því miður keppast allar þjóðir heims við að styrkja land- búnað sinn, beint og undir boröiö, þannig að svokallað heimsmark- aðsverð er oft ekkert annað en upp- söfnuö spegilmynd af niðurgreiösl- um og styrkjum. Auðvitaö getum við notíð góðs af því og gerum, en rollan, sem stóö með sveltandi þjóð í gegnum harðindi, hungurfelh og niðurlægingu erlendrar áþjánar, fæddi hana og klæddi og skapaði henni útflutningsverðmæti, á lengi sinn punkt á vinsældalista mör- landans. Hæfilega stór fjárstofn, vel ræktaður og afurðamikill, er ein af líftryggingum þjóðarinnar í þessu landi. Hitt er ljóst að í mik- ilh velmegun og í himinklifri raun- gengis krónunnar okkar verða menn ekki doktorar í hagfræði út á rohubúskap. Slíkt kostar fé en auðvitað innan allra skynsemis- marka. Þá má spyrja hvers virði matarbitinn var og ullarpeysan þeim hermanni sem varði brúna og stóðst áhlaupiö. Sigurvegarans pund er ahtaf dýrt. Dýrt að vera íslendingur Landbúnaðarrómantík er dýr en lengi má telja dýra atvinnuvegi á norðurhjara. Verslunin býr auövit- að viö dýr aðfóng vegna flutnings- kostnaðar yfir hafiö og iönfram- leiðslan er auðvitað dýr þar sem er lítið bakland heimamarkaðar. Þjónustan er líka dýr fámennri þjóð sem gerir miklar kröfur. ís- lendingar eru í eðli sínu velferðar- fólk, þeir vilja ekki að einstaklingar lendi á vergangi þótt eitthvað bjáti á. Þeir vilja að einstaklingar njóti mennta óháð efnahag, eftir hæfi- leikum og vilja, og þeir vilja að gamla fólkið getí hlakkað tíl ævi- kvöldsins í landinu sem það hefur komið svo vel áleiðis fyrir ungu kynslóðina. Ár eftir ár eru íslend- ingar nú með tekjuhæstu þjóðum veraldar. Slíkt gerist ekki af sjálfu sér eða úr engu. Ömurlegar tilkynningar Eitt ömurlegasta fyrirbrigðið í þjóðlífinu eru árvissar tilkynning- ar spítalanna, að svo og svo mörg- um deildum þurfi að loka vegna sumarfría og launakjara heilbrigð- isstéttanna. Sjúkhngar eru sendir heim allavega á sig komnir, aðrir keyrðir á ganga annarra deilda eða jafnvel inn á salernið. Þetta er með óhkindum og í rauninni rennur þjóðinni kalt vatn mihi skinns og hörunds við þessar thkynningar. En ahs staðar vantar fé, herkostn- aöurinn er mikhl, sjómennimir okkar hætta lífi sínu svo þjóðin megi hafa sem mest úr að spha, en sú voðalega staðreynd blasir viö að það er mjög dýrt að vera íslending- ur. Jafnvel afkomendur víkinga geta ekki aht, eða á frekar að taka þannig th orða að þeir geti ekki din- glað með f hvaða vitieysu sem er? Forsetakosningar út í hött Mitt í öhu þessu er okkur nefni- lega tjáð að við ætlum að henda fimmtíu mhljónum í eitthvað sem nefnist forsetakosningar, vegna þess aö við búum við svo algerlega úrelta löggjöf að ekki þarf nema 90 uppáskriftir í hehu fjórðungunum til þess að einstakhngur sé löglega sjósettur sem forsetaframbjóðandi, með öllum þeim kostnaði sem því fylgir. Og málefnið, í stórum drátt- um virðist það vera að færa löggjaf- arsamkomuna og framkvæmda- valdið inn í forsetaembættið og láta kjósa um nánast hvaðeina sem kemur frá þessum stofnunum, með öllum þeim viðbótarkostnaði enn sem því óhjákvæmhega fylgir. Stjórnarskrárnefnd - hvað gerðist? Sigrún Þorsteinsdóttir hefur svo sannarlega vakið athygh á ástandi kosningalöggjafarinnar til æðasta embættis þjóöarinnar og spyrja má eins og karhnn: Hvað hefur stjórn- arskrárnefnd eiginlega verið að gera í öll þessi ár? „Nú skelfur allur Vatnsdalur.“ Flokkur mannsins hefur óumdehanlega náð því mark- miði sínu að vekja rækilega athygli á sér og hve heimskuleg kosninga- löggjöfin er. En þvílíkt gáfu- og at- gjörvisfólk, sem þar er í bland og sannarlega trúir á mannghdis- hugsjónina, ætti aö stoppa aðeins við og glugga í tölfræði. Niðurstað- an er bókuö. Vinsælli þjóðhöfðingi en Vigdís Finnbogadóttir er varla finnanlegur á byggðu bóh. Hætta ber leik þá hæst hann stendur Sjómennirnir okkar hætta lhi sínu til þess að tryggja þjóð okkar afkomu, aðrir gera eins og þeir geta líka. Leikum okkur ekki að af- rakstri erfiðis þeirra. Reynum að vera eins og samlynd fjölskylda og hætta leiknum í tíma, tryggja þannig t.d. að sem fæstum sjúkra- deildum þurfi að loka í sumar og að átak verði gert í öryggismálum sjómanna. Guðlaugur Tryggvi Karlsson er ljóst að í mikilli velmegun og í himinklifri raungengis krónunnar okkar verða menn ekki doktorar í hag- fræði út á rollubúskap.“ Ný skoðun „Ég ætla að styðja Sigrúnu Þorsteinsdóttur og ég vil hvetja sem flesta til að kynna sér framboð hennar betur,“ segir m.a. í greininni. Fy rst þegar ég frétti af forsetafram- boði Sigrúnar Þorsteinsdóttur brá mér dáhtið, ég varð hálfhneyksluð yfir því að hún ætlaði að bjóða sig fram á móti frú Vigdísi og fannst það vera móögun við hana. Nú gerðist það að ég fór að reyna að kynna mér framboðið betur í gegn- um fjölmiðlana en fannst þeir ekki gefa neina heildarmynd. Eg er víð- sýn manneskja og hef næga greind th að velja og hafna sjálf í stað þess að hlusta eingöngu á einhhða um- fjöllun fjölmiðla svo aö ég sneri mér th stuðningsmanna Sigrúnar Þ. og varð mér úti um eintak af stjórnarskrá íslands. Hlutverk forsetans Eftir að hafa lesið stjórnarskrána og hlustað á málflutning stuðnings- manna Sigrúnar leið mér eins og ég væri að uppgötva eitthvað sem einhver hefði reynt að halda leyndu fyrir mér. Ég gat ómögulega séð neitt sem rökstuddi það að for- setaembættið ætti eingöngu aö sjá um opinberar veislur og land- kynningar eins og kóngafólk er- lendis. Samkvæmt stjómarskránni er aðalhlutverk forseta íslands umfjöhun laga og ahs konar stjórn- arathafnir og þaö sem mestu máli skiptir er að forsetinn getur lagt öll mikilvæg lög, sem hann telur að brjóti á rétti fólks, fyrir dóm okkar allra. í stuttu máli: Ég hef uppgötvað KjaUarinn Halldóra Pálsdóttir húsmóðir í Reykjavik að æðstu lög þjóðarinnar, stjórnar- skráin, gera ráð fyrir að við, fólkið í landinu, höfum síðasta oröið en ekki stjórnmálamennirnir. Það sem mér finnst einkennhegt og hálfógnvænlegt er að hvorki ég né mínir vinir könnumst við að hafa verið upplýst um þetta grund- vaharatriði, ekki í skóla né annars staðar. í augum útlendinga Þaö sem frú Vigdís sagði á dögun- um um að mótframboðiö kynni aö hta hla út í augum útlendinga stakk mig og mér fannst þetta vera yfir- borðskennt, sérstaklega þar sem um er að ræða komungt lýðræði en ekki aldagamalt konungsveldi gegnsýrt af hefðum. Ég hugsa að útiendingar hefðu nú frekar eitt- hvað við það að athuga ef þeir vissu hve langt frá stjónarskránni for- setaembættið er komið og ef þeir vissu aö viö, höfundar sjálfra ís- lendingasagnanna, þessir baráttu- menn sjáifstæðis og frelsis, ætlum ekki að virða þessa lýðræðislegu stjórnarskrá sem mikhl ávinning- ur var aö á sínum tíma. Ég vil virkan forseta Eg vil virkan forseta sem ég get treyst th að framkvæma stjómar- skrána. Ég vh ekki lengur aö stjórnmálamenn geti ráðskast með nauðsynleg réttindi fólks eins og t.d. það að fá að semja um laun sjálft eða þegar þeir koma aftan að okkur með lög eins og matarskatt- inn. Eg vh forseta sem sinnir fólk- inu og tekur ekki þátt í svona óráð- um með því að samþykkja slík lög, forseta sem getur verið fulltrúi minn th aö afstýra óréttlætinu. Ég ætla að styðja Sigrúnu Þor- steinsdóttur og ég vh hvetja sem flesta til að kynna sér framboð hennar betur. Sýnum nú að viö séum ábyrg fyrir þeim völdum sem stjórnarskráin okkar felur okkur, kjósum forseta sem er fyrir fólkið. - Kjósum Sigrúnu. Halldóra Pálsdóttir „Eg hugsa aö útlendingar heföu nú frekar eitthvaö viö þaö að athuga ef þeir vissu hve langt frá stjórnarskránni forsetaembættið er komið.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.