Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Síða 25
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ 1988. 41 Smáauglýsingar ■ BQar tQ sölu M. Benz árg. ’73, með betri húsbílum landsins, er nú falur, mjög eigulegur, mjög vel með farinn, með mikið af fylgihlutum, svefhpláss fyrir 6, wc, rennandi vatn o.fl. o.fl. o.fl. Verðh. 750-850.000. S. 9144801 e.kl. 18. Torfaerukeppni. Torfærukeppnin á Hellu verður haldin laugard. 11. júní næstkomandi. Keppt verður í tveimur flokkum: 1. Flokki sérbúinna torfæru- bifreiða. 2. Flokki almennra torfæru- bifreiða. Keppendur skrái sig í síðasta lagi mánudaginn 6. júní í síma 99-5353 eða 99-5165. Flugbjörgunarsveitin Hellu. Ferðamenn, athugið: Ódýrasta ís- lenska bílaleigan í heiminum í hjarta Evrópu. Nýir Ford ’88 bílar í lúxusút- færslu. íslenskt starfsfólk. Sími í Lúx- emborg 436888, á íslandi: Ford í Fram- tíð við Skeifúna Rvk, sími 83333. Toyota Corolla Twin Cam GTi 1600 ’86, svartur, einn með öllu, verður seldur í dag, keyrður 39 þús. km, skipti á ódýrari koma til greina, verð kr. 630 þús. Uppl. í síma 91-74066 eftir kl. 16, Gummi. Daihatsu Rocky Wagon '88, bensín 2,0, 5 gíra, ekinn 6 þús. km, vökvastýri, sóllúga, dráttarkúla, útvarp/segulb., 4 hátalarar. Hafið samband við auglþj. DV í síma 27022. H-8978. ■ Þjónusta Vélaleiga Arnars. Tökum að okkur alla almenna jarðvinnu, gerum föst verð- tilboð, erum með vörubíl. Uppl. í síma 46419, 985-27674 og 985-27673. Hröðum akstri fylgin öryggisleysi, orkusóun og streita. Ertu sammðla? lUMFEHDW Prað Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á fasteigninni Sunnuhvoli, Reyðarfirði, þingl. eig. Þórdís Pála Reynisdóttir, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 10. júní nk. kl. 14.00. Uppboðsþeiðendur eru Sigurður G. Guðjónsson hdl., Innheimta ríkissjóð, Jón Þóroddsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Árni Halldórsson hrl„ Tryggvi Agnarsson hdl., Veðdeild Landsbanka íslands og Byggingar- sjóður ríkisins. Sýslumaður Suður-Múlasýslu REIÐTÚR Hópferð verður farin frá félagsheimilinu laugardag i klukkan 18. Veitingar í ferðinni. Ferðanefnd/Kvennadeild Nauðungaruppboð annað og síðara á eftirtöldum fasteignum fer fram í skrifstofu embættisins, Auðbrekku 10 í Kópavogi, á neðangreindum tíma: Kastalagerði 3, þingl. eigandi Angan- týr Vilhjálmsson, mánud. 6. júní ’88 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur eru skatt- heita rflíissjóðs í Kópavogi, Sveinn H. Valdimarsson hrl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Búnaðarbanki Islands, Magnús Norðdahl hdl., Gjaldskil sf., Bæjarsjóður Kópavogs,_ Ævar Guð- mundsson hdl., Andri Ámason hdl., Iðnlánasjóður, Útvegsbanki íslands, Borgarsjóður Reykjavíkur og Guðjón Ármann Jónsson hdl. Túnbrekka 2, jarðhæð, þingl. eigendur Bjami Ragnarsson og Sigurveig Haf- steins, mánud. 6. júni ’88 kl. 10.10. Uppboðsbeiðandur eru Iðnaðarbanki íslands hf, Bæjarsjóður Kópavogs, Eggert B. Ölaísson hdl., Ólafur Axels- son hrl.. Trveeinsastofhun ríkisins. skattneimta ruussjoos t Kopavogi, Ingvar Bjömsson hdl., Friðjón Öm Friðjónsson hdl., Ásgeir Thoroddsen hdl., Jón Hjaltason hrl., Jón Eiríksson hdl., Helgi V. Jónsson hrl., Ævar Guðmundsson hdl., Valgeir Kristins- son hrl., Róbert Ámi Hreiðarsson hdl. og Landsbanki íslands. •BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI Menning Fiðludebut í Norræna húsinu Það er alveg greinilega komið sumar. Það heyrir maður ekki bara á lóu og þresti, lömbum og lífs- glöðum strákum með bolta, það er einnig kominn léttari blær í bam- ingstón hinna fullorðnu. Með farfuglunum koma svo blessaöar stúlkurnar meö fiðlum- ar sínar frá Ameríku. Þaö er nú meiri blessuð blíöan. Bryndís Pálsdóttir fiöluleikari, sem nýlega lauk meistaraprófi við Juilliardskólann í New York, lék sína fyrstu fullorðinstónleika í Norræna húsinu í gærkvöldi. Je- anna Lee, sem mun ættuð úr Kína og fædd í Hong Kong, lék með á píanó. Efnisskráin samanstóð af einleikspartítunni í E-dúr eftir Bach, fiðlu- og pínaósónötu í e-moll Tónlist Leifur Þórarinsson K 304 eftir Mozart, og svo voru res- itativo og scherzo fyrir einleiks- fiðlu eftir Kreisler og sónata í D-dúr eftir Prokofiev eftir hlé. Semsé ágætlega uppbyggð efnisskrá og áheyrileg í besta lagi. Bryndís lék partítuna hreint og örugglega. Að vísu hefði maður kosið örlítiö meiri snerpu á köflum, meiri fyllingu og vorblóma í fras- ana, en það verður auövitað ekki á allt kosið. Sömuleiðis var Mozart kannski einum of þungur á bá- mnni og ekki með þeim súrsæta léttleika sem e-mollinn gefur tilefni til. En það er líka smekksatriði. En í verki Kreislers sannaði Bryndís að hún á góða framtíð fyr- ir sér á fiðlusviðinu, þar var allt í einu kominn alvöm stíll í spilið, sem unun var að heyra. Og í són- ötu Prokofievs fóru þær stöllur á kostum. Er fyllsta ástæða til að óska þeim innilega til hamingju. LÞ Jarðarfarir Guðbjörg Kristín Sveinbjarnardóttir, Sólheimum, Grenivík, lést í Fjórð- ungsjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi 25. maí. Jarösett verður frá Akureyrarkirkju fostudaginn 3. júní kl. 16. Þorbjörg Jónsdóttir, fyrrv. hár- greiðslukona, Njálsgötu 108, lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 12. maí. Bálfor hefur farið fram. Útfór Vilborgar Guðnadóttur, Firði 7, Seyðisfirði, sem lést 27. maí sl„ fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju laugar- daginn 4. júní kl. 14. Ian McDonald Ramsay Jnr., Port Antonia, Jamaica, er látinn. Jarðar- fórin hefur farið fram. Guðmundur Guðmundsson frá Nýju- búð í Eyrarsveit verður jarðsunginn frá Setbergskirkju laugardaginn 4. júní kl. 14. Stefán Friðbjörnsson frá Nesjum, Miðneshreppi, veröur jarðsunginn frá Hvalsneskirkju laugardaginn 4. júní kl. 14. Útfór Guðmundar Péturs Gestssonar fer fram frá Grindavíkurkirkju laug- ardaginn 4. júní kl. 11. Erlingur Björnsson, Greniteig 39, Keflavík, er lést af slysfomm 30. maí sl„ verður jarðsunginn frá Keflavík- urkirkju laugardaginn 4. júní kl. 14. Guðmunda Katarínusardóttir lést 26. maí. Hún var fædd 14. nóvember 1909 að Fremrihúsum í Arnardal viö ísa- fjarðardjúp. Foreldrar hennar voru Sólveig Einarsdóttir og Katarínus Jónsson. Hún giftist Pétri Jónatans- syni, en hann er látinn. Þau hjónin eignuðust fjórar dætur og eru þrjár á lífi. Útfor Guðmundu verður gerð frá ísatjarðarkapeUu í dag kl. 14. Ingibergur Sveinsson bílstjóri lést 22. maí. Hann var fæddur á Skaftárdal í Vestur-Skaftafellssýslu 21. nóvemb- er 1908, sonur Sveins Steingrímsson- ar og konu hans, Margrétar Einars- dóttur. Ingibergur starfaði lengst af hjá Strætisvögnum Reykjavíkur en síðustu árin starfaði hann hjá Vöku hf. Útfór hans verður gerð frá Foss- vogskirkju í dag kl. 13.30. Elín Þórðardóttir lést 20. maí. Hún var fædd 28. mars 1922, dóttir hjón- anna Katrínar Pálsdóttur og Þórðar Þórðarsonar. Eftirlifandi eiginmaö- ur hennar er Gunnar Helgason. Þau hjónin eignuðust fimm böm. Útför Elínar verður gerð frá Langholts- kirkju í dag kl. 15. Valdimar Unnar Valdimarsson lést 21. maí sl. Hann var fæddur 29. sept- ember 1958, sonur hjónanna Öldu Hönnu Grímólfsdóttur og Valdimars Guðlaugssonar. Valdimar Unnar lauk BA-prófi í sagnfræði og stjóm- málafræði frá Háskóla íslands 1982. Síöustu árin stundaði hann doktors- nám í alþjóðasamskiptum við Lon- don School of Economics, LSE. Útfór hans verður gerö frá Neskirkju í dag kl. 13.30. Andlát Sigurður Bachmann Árnason, um- sjónarmaður Sjómannaskólans, lést á Landakotsspítala aðfaranótt fimmtudagsins 2. júní. Hörður Guðmar Jóhannesson, Skálageröi 13, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum 1. júní. Guðrún G. Hjaltested, Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík, andaðist fimmtudaginn 2. júni í Landakots- spítala. Anton ísaksson, Hlíðarvegi 22, Kópa- vogi, andaðist á heimili sínu mið- vikudaginn 1. júní. Eymundur Austmann Friðlaugsson, Víghólastíg 4, Kópavogi, andaðist á Hrafnistu 2. júní. Metúsalem Þórarinsson, Lagarási 2, Egilsstöðum, lést í sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 1. júní. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BACHMANN ARNASON, fyrrverandi umsjónarmaður í Sjómannaskólanum, lést fimmtudaginn 2. júní á Landakotsspítala. Valgerður Þorkelsdóttir André Bachmann Jakob S. Bachmann Siguröur V. Bachmann Halldóra F. Siguróardóttir HeiAar Sigurösson Sigurbjörn F. Sigurósson Jóhannes Bachmann Kristin Siguröardottir Emilía Ásgeirsdóttir Auóur Friöriksdóttir Runólfur Sigtryggsson Kristin Birgisdóttir Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á fasteigninni Skólavegi 74, Fáskrúðsfirði, þingl. eig. Rúnar Stefánsson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 10. júní nk. kl. 15.30. Uppþoðsbeiðendur eru Árni Halldórsson hrl., Sigurmar K. Albertsson hdl., Viðar Már Matthiasson hdl„ Árni Pálsson hdl„ Innheimta ríkissjóða og Guðríður Þorsteinsdóttir hdl. Sýslumaður Suður-Múlasýslu Tilkyimingar Ferstikla - Ferstikla Ég stiklaöi á Ferstiklu og naut þar góðra veitinga í notalegum veitinga- og sýning- arsal, innan um dásamleg málverk eftir sómamanninn Magnús Guðnason frá Kirkjulækjarkoti í Fljótshlið. Hann er nú hættur búskap, fluttur á Akranes, helgar sig eingöngu list sinni og er í stöðugri ffamfor. Hann sýnir þama fjölda mál- verka, bæði fantasíur og landslagsmynd- ir og sambland að hvoru tveggja. Ég ráð- legg öllum af feta í mín fótspor og stikla til Ferstiklu og njóta þess sem ég hefi hér lýst. - Sýningin stendur til júníleka. EUert Guömundsson, Hveragerði Stofnfundur Borgaraflokks- félags Borgarness var haldinn í Borgarnesi 19. mai sl. Á fundinum, sem var mjög fjölsóttur, var Jón S. Pétursson kjörirm formaður hins nýja félags. Þórir Lárusson, formaður kjördæmisfélags Reykjavíkur, var fund- arstjóri en Guömundur Ágústsson al- þingismaður geröi grein fyrir samþykkt- un fyrir hið nýja félag. Þá flutti Ingi Bjöm Albertsson, alþingismaður Borgara- flokksins í Vesturlandskjördæmi, ræðu og formaður flokksins, Albert Guð- mundsson alþingismaður, ávarpaði sam- komuna. Á fundinum urðu miklar um- ræður um stj órnmálaástandið og efna- hagsráðstafnir ríkisstjórnarinnar. Fjöl- margir fundargesta létu í ljósi óánægju sína meö ráðleysi hennar og beindu fyrir- spumum til þingmanna Borgaraflokks-. ins, en þeir vom allir, utan einn, mættir’ á fundinum. Fundir Aðalfundur knattspyrnudeildar ÍR verður haldinn laugardaginn 11. júní kl. -10.30 í félagsheimilinu v/Skógarsel. Dag- skrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Tapað fundið Tóbaksbaukur hefur tapast, sennilega í vesturbænum, á leið í Sund- laug vesturbæjar. Fundarlaun. Upplýs- ingar í sima 24786. Páfagaukur tapaðist Grár dísarpáfagaukur með gult framan á haus og stéli tapaðist úr Holtunum. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 621609. LJÓSRITUN - PLASTHÚÐUN LJÓSPRENTUN TEIKNINGA SKIPHOLTI 21 2 26 80 íé r PR. Búöin. hf. Á Kársnesbraut 106 k6p. S. 641418 / 41375

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.