Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1988, Síða 32
FRETTASKOTIP Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón- —þá ísima 62-25-25. Fyrirhvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað I DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Drei«ng: Simi 27022 FÖSTUDAGUR 3. JÚNl 1988. Glasa-fjórburar á leið í heiminn: „IVIér brá auðvitað alveg rosalega við tíðindin“ - sagði verðandi fjórburamóðirin í samtali við DV Ung íslensk kona á von á fjórbur- um eftir að hún gekkst undir svo- kallaða tæknifrjóvgun í mars síð- astliðnum. Þetta mun vera í annað skipti í heiminum að tæknifrjóvg- ■— aðir fjórburar koma undir. Verð- andi flórburamóðirin sagði í sam- tah við DV að mesta hættan væri hðin hjá þar sem hún væri komin 12 vikur á leið en hins vegar fylgdi því ahtaf áhætta að ganga með íjór- bura. „Mér brá auðvitað alveg rosalega við tíðindin," sagði hún, „en eigin- maðurinn tók þessu með jafnaðar- geði. Honum fannst þetta svo æðis- legt. Ég gat ekki séð að honum brygði enda var hann alltaf viss um að þetta væru að minnsta kosti tví- burar.“ Hún á einn fimmtán ára gamlan son fyrir. Aðspurð hvemig hann hefði tekið þessu sagði hún að hann hefði ekki trúað þessu í fyrstu. A.m.k. ætlaði hann ekki að flytja að heiman og sagði í gríni að þrír Qórburanna væru fyrir þau þrjú og einn fyrir gesti. „Ég hef verið nokkuð heilsugóð,“ sagði hún, „nema þessu hafa fylgt uppköst eins og gengur. Ég hef því ekkert þyngst þó að ég sé komin með kúlu,“ sagði hún. Auðólfur Gunnarsson, læknir á Landspítalanum, sem haft hefur umsjá með verðandi fjórburamóð- urinni, tók í sama streng og hún og sagði mestu hættuna hðna hjá en auðvitað væri það alltaf mikh áhætta að ganga með fjórbura og miklar hkur á því að þeir yrðu fyr- irburar þar sem þetta hefði mikh áhrif á legið. Því hefði verið ákveð- iö aö taka þá með keisaraskurði þegar 36 vikur væru liðnar af með- göngunni. Hann sagði einnig að nú ættu þrjár íslenskar konur von á svokölluðum glasabörnum og að þegar væri eitt komið í heiminn sem kunnugt er. Ekki eru nema 10 th 15% hkur á að svona aðgerðir heppnist. Þar sem fjögur egg voru frjóvguð í hennar tilfelli verður þetta að teljast mjög vel heppnuð aðgerð. Þetta er í þriðja sinn sem sögur fara af að kona gangi með fjórbura hér á landi - í fyrsta skipti árið 1880 og í annað skipti árið 1957 en þá lifðu aðeins þrír eftir fæð- ingu. Nánar verður greint frá þessú máli í Helgarblaði DV á morgun. -GKr Örvarnar benda á fóstrin fjögur í kviði verðandi móðurinnar. Til hliðar má greina tímann er þessi mynd var tekin. Eins og sjá má var það 31. mai síðastliðinn. Akureyri: Þyrla lenti með slasaðan mann Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyn: Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri um miönætti í nótt meö slasaðan mann. —^>yrlan hafði sótt manninn í Kverk- fjöll en þar var hann á ferðalagi með hópi vélsleðamanna. Ekki var hægt að fá upplýsingar í morgun um hvernig maðurinn slasaðist, en sam- kvæmt heimildum DV mun maöur- inn hafa veriö meiddur á hálsi og jafnvel hálsbrotinn. Nokkrir grænlensku nemarnir, sem eru í kynnisferð á Islandi, stilltu sér upp fyrir Ijósmyndara DV í góða veðrinu í gær. Sjá nánar á bls. 2. DV-mynd S. LOKI Þá drekkur maður bara tómatsafa í staðinn fyrir mjólk Veðrið á morgun: Vestlæg átt ráðandi Á morgun lítur út fyrir hæga breythega eða vestlæga átt á landinu með dálíthh rigningu framan af degi norðaustanlands, en annars staöar yfirleitt þurrt. Hiti veröur á bihnu 5-12 stig, en nokkru svalara á annesjum fyrir norðan. Verðhmn á tómötum: Niður í 15 krónur kílóið Mikið verðhrun varð á tómötum á grænmetismarkaönum í gær. Dæmi voru þess að kíló af tómötum færi á 15 krónur. Ástæðan var sú aö ekkert lágmarksverð var skráð á tómötum. Stjóm Sölufélags garðyrkjumanna ákvað að láta reyna á frjálsa verð- myndun með því að skrá ekkert lág- marksverð í gær. Afleiðingin var sú aö kaupendurnir átta, sem mættu á uppboöið, kepptust um að fá sem ódýrasta tómata. KRON haíði vinn- inginn, keypti 124 kassa af tómötum á 15 krónur kílóið. Mikhgarður kom næst á eftir með 97 kassa á 19 krón- ur. Meöalverðið var kr. 34,51. Þá er bara að sjá hvað tómatamir kosta í þessum verslunum í dag. í kjölfar frétta um að tómötum væri hent á haugana mótmæltu Neytendasamtökin harölega að framleiðendur skuh halda uppi háu lágmarksverði en henda tómötum á haugana á sama tíma. -PLP Landbúnaðar- vórur hækka í dag, 3. júní, tekur nýtt búvöm- verð gildi. Hámarkssmásöluverð á lítra af mjólk hækkar um 8,8%, úr 50,90 í 55,40 krónur. Rjómi í '/« lítra umbúöum hækkar um 8,3%, úr 97,50 í 105,60 krónur. Lítrinn af undan- rennu hækkar um 8,7%, úr 34,30 í 37,30 krónur, 1. flokks smjör um 9,9%, úr 344 í 378 krónur, og kílíið af 45% osti hækkar úr 509,80 í 550,70 krónur eða um 8%. Fyrsta flokks kindakjöt í hehum skrokkum hækkar um 7,8% khóið eða úr 343 í 369,80 krónur. Nautakjöt í stjömuflokki í heilum og hálfum skrokkum hækkar úr 404 í 434,40 krónur khóið. -StB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.