Dagblaðið Vísir - DV - 20.06.1988, Side 2
2
MÁNUDAGUR 20. JÚNÍ 1988. "
Fréttir___________________________________d;
Hvaiveiðar hefjast á miðvikudag:
Veiðikvótinn minnkaður
- Bandaríkjamenn falla frá staðfestingarkæru til forsetans
„Niöurstaöa þessa fundar varö
sú aö við munum heíja hvalveiðar
á miðvikudaginn. Þá munum við
tilkynna ákveðnar breytingar á
okkar rannsóknaráætlun sem eru
ýmsar,“ sagöi Halldór Ásgrímsson
sjávarútvegsráðherra að loknum
fimdi með bandarískri sendinefnd
undir forsæti James Brennan,
varaviðskiptaráðherra Bandaríkj-
anna.
Samkvæmt heimildum DV sam-
þykktu Bandaríkjamenn að falla
frá staðfestingarkæru viðskipta-
ráðuneytisins til forsetans en slík
kæra gæti leitt til viðskiptaþving-
ana af hálfu Bandaríkjamanna til
þess að hafa áhrif á stefnu íslend-
inga í hvalveiðimálum.
„Við höfum tekið tillit til skoðana
Bandaríkjamanna varðandi rann-
sóknaráætlun okkar en við höfum
ekki breytt henni að kröfu þeirra,"
sagði Halldór. Hann sagði banda-
rísku sendinefndina hafa viður-
kennt nytsemi vísindaveiðanna.
Aöspurður kvaðst Halldór ekki
vilja segja til um hvort kvótar ein-
stakra hvalategunda yrðu minnk-
aðir en búist er við að í samkomu-
laginu fehst samdráttur á veiðik-
vóta sandreyðar.
-gse
Flugvélin er mikiö skemmd eins og sjá má. Hún er af gerðinni Piper Cub og er í eigu Flugklúbbs Mosfellsbæjar.
DV-mynd S
Ég hafði ekki tíma
til að vera hræddur
Iðnó menningarsetur
eða skemmtistaður?
- Borgin, ríkissjóður og einkaaðilar sýna húsinu áhuga
Líkur benda til að ríkissjoður og
Reykjavíkurborg sameinist um kaup
á Iðnó en eigendur þess hafa nú sett
það á fasteignasölu. Hugmyndir eru
uppi um að ríkið og Reykjavíkurborg
geri húsið að menningarmiðstöð þar
sem ýmsir leikhópar fengju aðstöðu
til sýninga. Einkaaðilar hafa einnig
sýnt áhuga á húsinu, meðal annars
með matsölu og skemmtanahald í
huga.
Eigandi Iðnó er Alþýðuhúsið hf.
Það er hlutafélag Verkalýðsfélagsins
Dagsbrúnar, Verkakvennafélagsins
Framsóknar, Sjómannafélags
Reykjavíkur, Alþýðuflokksins og
nokkurs fjölda einstaklinga. Ákveðið
hefur verið að kanna hvort og hvem-
ig félagið muni selja eignir sínar og
hefur sérstök nefnd eigenda verið
skipuð til þessa verkefnis. Auk Iðnó
á það Alþýðuhúsið við Hverfisgötu
og auða lóð við sömu götu.
„Við teljum að þessar eignir félags-
ins geti verið betur komnar í öðru
formi,“ sagði Guðmundur Hallvarðs-
son, formaður Sjómannafélags
Reykjavíkur. Sjómannafélagið og
Dagsbrún eru að hefja framkvæmdir
við nýbyggingu á homi Sætúns og
Borgartúns í Reykjavík. Hugsanleg-
ur söluhagnaður af hlut þessara fé-
laga í Alþýðuhúsinu hf. mun verða
notaður til nýbyggingarinnar.
Samkvæmt heimildum DV er
nokkuð vist að lóðin við Hverfisgötu
og Iðnó verði seld. Alþýðuhúsið mun
hins vegar áfram veröa í eigu félags-
ins.
Síðastliðinn vetur leitaði Inga
Bjamason, leikstjóri og formaður
Alþýðuleikhússins, til menntamála-
ráðherra, fjármálaráðherra og borg-
arstjórans í Reykjavík um hugsanleg
kaup ríkis og borgar á Iðnó. í sam-
tah við DV sagði Inga að þeir hefðu
allir tekið vel í þá hugmynd aö kaupa
húsið og nota það til leiksýninga og
tónleika í framtíðinni. Ákvörðun um
hugsanleg kaup mun hafa verið
frestað þar til Birgir ísleifur Gunn-
arsson menntamálaráðherra kemur
heim frá fundarhöldum á Norður-
löndum.
En fleiri aðilar munu hafa áhuga á
húsinu. Enginn þeirra sem sitja í
sölunefnd Alþýðuhússins hf. vildi
segja til um hverjir hefðu sýnt hús-
inu áhuga. Samkvæmt heimildum
DV munu þar á meðal vera einstakl-
ingar sem hyggjast reka þar veitinga-
og skemmtistað.
-gse
- segir Níels Hauksson sem brotlenti flugvél sinni á knattspymuvelli í Mosfellsbæ
„Þetta gerðist svo snöggt að ég
hafði engan tíma til að vera hrædd-
ur. Ég hafði í nógu að snúast viö
að reyna að redda því sem ég var
búinn að klúðra," sagði Níels Unn-
ar Hauksson, flugmaður á vélinni
sem brotlenti á knattspymuvellin-
um í Mosfellsbæ 17. júní.
Mörg vitni urðu aö óhappinu
enda var knattspymuleik nýlokið.
Flugvélin, sem er af gerðinni Piper
Cub, smíðuð árið 1946 en nýupp-
gerð, skemmdist mikið og verður
varla flogið mikið næstu árin að
minnsta kosti.
„Ég varaði mig ekki á vind-
styrknum. Vélin var í þetta 30-40
metra hæð þegar hún tapaði andar-
tak vindinum og „stollaöi" og
missti þar með flugkraftinn. Flug-
vélin stefndi þá á húsin í bænum
og ég sveigði því inn á völlinn.
Hefði ég lent á húsunum væri ég
ekki til frásagnar," sagði Níels.
Níels sagði það mikla mildi hvað
hann hefði sloppið vel úr brotlend-
ingunni.
„Það kom mikill slinkur á véhna
þegar hún lenti og ég skrámaðist
aðeins á annarri hendinni og er
dálítið slæmur í bakinu, en það
jafnar sig strax.
Eftir að ég var kominn út úr flak-
inu var ég ansi dasaður og slappur.
Það var ekki óllk tilfinning og að
lenda í hörðum árekstri."
- Ætlarðu að halda áfram að
fljúga?
„ Já, alveg ömgglega. Ég er ekkert
hræddur við það. Nú er ég líka
reynslunni ríkari. Ég hef reynslu
sem fáir aðrir hafa, sem betur fer,“
sagði Níels Unnar Hauksson.
-ATA
Vladimir Ashkenazy
fær falkaorðu
Níels Hauksson flugmaður: „Flug-
vélin stefndi á húsin i bænum“.
DV-mynd: JAK.
Forseti íslands hefur sæmt Vlad-
imir Ashkenazy stórriddarakrossi
hiimar íslensku fálkaorðu. Athöfnin
fór fram að Bessastöðum að loknum
tónleikum Ashkenazys á laugardags-
kvöld. Vladimir Ashkenazy hlýtur
orðuna fyrir störf að menningarmál-
um.
Þetta er í annað sinn sem Ash-
kenazy er sæmdur fálkaorðunni.
Fyrir allmörgum árum fékk hann
riddarakross hinnar íslensku fálka-
orðu.
Átján íslendingar fengu fálkaorðu
17. júní. Þar sem Ashkenazy kom
ekki til landsins fyrr en 18. júní var
hann sæmdur orðunni sérstaklega
það kvöld.
Forseti Islands, Vigdís Finnboga-
dóttir, sæmir Ashkenazy fálkaorð-
unni. DV-mynd: JAK.
Banki fær meirihluta í GIHni
„Ég vil ekkert um þetta segja, það
hefur enn ekki verið talað viö okk-
ur um þetta en ég veit aö þeir eru
með nefnd í gangi. í dag verður
aðalfundur Glitnis og þar munu
vera staddir menn frá Nevi,“ sagði
Valur Valsson, stjómarformaður
Glitnis h/f og bankastjóri Iðnaðar-
bankans.
Norska fjármögnunarfyrirtækið
Nevi sem á 49% í íslenska fjár-
magnsleigufyrirtækinu Glitni h/f
var nú fyrir viku keypt af Bergen-
banka í Noregi fyrir um 2,3 millj-
arða íslenskra króna. Að sögn Leif
Monsen, bankastjóra Bergen-
- Bergenbanki yfirték NEVI sem riðaði á barmi gjaldþrots
banka, nam tap Nevi á síðasta ári
um 3,5 milljörðum íslenskra króna
og þar sem umsvif fyrirtækisins
innan Noregs eru einna mest á
helsta viðskiptasvæði bankans,
voru gífurlegir hagsmunir í húfi
fyrir Bergenbanka að fyrirtækið
yrði ekki gjaldþrota. Helsta orsökin
fyrir þessum vandræðum Nevi
mun vera gífurlegt tap vegna lána
til myndbandafyrirtækisins VIP
A/S.
Á síðasta ári var Nevi endur-
skipulagt og að sögn Leif Monsen
mun þeirri vinnu verða haldið
áfram. Skipa á nýja sfjóm fyrir-
tækisins en einkum mun vera
stefnt að því að draga úr starfsem-
inni í útlöndum og einbeita sér að
norska markaömnn. Bergen banki
á nú þegar fjármögnunarleiguna
Fabin og er markmið bankans að
verða stærsti aðilinn á þessu sviði
á Norðurlöndum. Kemur vel til
greina að slá Fabin og Nevi saman
í nýtt fyrirtæki.
Nevi er ákaflega umsvifamikið
fyrirtæki og nam velta þess tæp-
lega 100 milljörðum króna á síðasta
ári og var um helmingur þess
vegna starfsemi utan Noregs. Nú á
að draga hana saman og að sögn
Leifs Monsens hefur meðal annars
komið til tals að selja hlutafé Nevi
í Glitni h/f. Slík sala getur sam-
kvæmt heimildum DV úr við-
skiptalífinu haft veruleg áhrif á
starfsemi Glitnis þar sem eignar-
aðild Nevi er tahn hafa veitt fyrir-
tækinu greiðan aögang að erlendu
lánsfé á hagstæðum kjörum. Skipt-
ir því miklu fyrir Glitni hveijir
kaupendumir eru.
Ghtnir h/f er stærsta fjármögn-
unarfyrirtæki landsins, með um
helming markaðarins, og skiptist
milh nokkurra eignaraðila. Nevi á
49%, Iðnaöarbankinn 34,7%,
Sleipner í London á 16% og banka-
stjórar Iðnaðarbankans eiga 0,3%
samkvæmt upplýsingum Hlutafé-
lagaskrár. Nú vhl svo til að Nevi á
um 90% í Sleipner og þannig ræður
því Bergen banki yfir tæplega 2/3
af hlutafé Ghtnis. Er að sögn Mons-
ens einnig hugmyndir um að selja
eignarhlut bankans í Sleipner. „Við
vitum ekki nema gott eitt um áform
Bergenbanka og erum því ekki
kvíðnir enda er Bergenbanki ekki
óáhtlegur samstarfsaöili," sagði
Valur Valsson.
JFJ/pv