Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. Fréttir Hjólabátar í Vik í Mýrdal: Hvorki bátur né bíll - nema hvort tveggja sé „Viö höfum notað bátana bæöi til fólksfluthinga og til veiða og hafa þeir rejTist vel. Þaö hefur aftur á móti vafist fvrir mörgum hvemig skrá skuli farartækið og til bráða- birgða eru bátamir þvi mskráöir. sem vinnuvélar á landi en sem bátar á sjó," sögðu Gísli Reynisson og Pálmi Magnússon í samtali \úð DV. Farartækin, sem hér um ræðir, era hjólabátar svokallaðir. fimm tonna bátar á hjólum. Þaö er hlutafélagið Mýrdælingur í Vik í Mmdal sem á bátana, en félag- ið var stofnað í tengslum við báta- kaupin. Mýrdælingur rekur tvo hjólabáta en að sögn Gísla eru nú íjórir slikir til á landinu. „Við höfum notað bátana til að fl\ija ferðamenn út í Dyrhólaey og víðar, sem og til veiða. Þeir hafa remst mjög vel í briminu hér við ströndina, era stöðugir og fara vel í sjó. Bátamir er rúm fimm tonn hvor um sig og hafa 300 hestafla vél,“ sagði Gísli. Bátarnir voru upphaflega fram- leiddir fyrir bandaríska flotann og vora þessir tveir smíðaðir árin 1963 og 1964. Fyrri bátinn keypti Mýrdæl- ingur af hergagnasölu erlendis, en hinn var fluttur inn af Vegagerð rík- isins. Þann bát keypti Björgun hf. til nota við leitina að gullskipinu sem ku hafa strandaö á Skeiðarársandi. Mýrdælingur keypti síðan bátinn af Björgun. , ,Fyrri bátinn keyptum við fyrir um eina milljón króna. Hann þarfnaðist nokkurra breytinga áður en hann var nothæfur, t.d. smíðuðum við húsið á hann og settum veiðarfærin á. Hinn bátinn keyptum við á 2,5 milljónir en hann var í betra ásig- komulagi, með nýuppgerða vél og aö auki fylgdu honum varahlutir og björgunarbátur," sagði Gísli. Báturinn er einfaldlega keyrður niður að sjó þegar farið er á veiðar og að loknum túr er keyrt upp á land á ný. Löndun aflans fer fram í einu elsta steinhúsi í Skaftafellssýslu, gamla haughúsinu við bæinn Suður- vík. Það mun vera allsérkennileg sjón að sjá bátana fara á veiðar. Það er alla vega ekki á hveijum degi sem bátar sjást á keyrslu eftir akvegum á íslandi. -StB Helgi Þór Jónsson: Samningar við kröfuhafa um lækk- un skuldanna „Það er verið að \inna í samning- um við kröfuhafa um niðurfellingu hluta skuldanna. Þessi ákvöröun bæjarstjómar Hveragerðis er virð- ingarvert spor og sýnir einhug þar sem aliir sjö bæjarfulltrúamir greiddu þessu atkvæði. Ég vinn að þvi að ganga að þessu tilboði Hvera- gerðisbæjar og er vongóður um að þaö takist,“ sagði Helgi Þór Jónsson, eigandi Hótel Arkar. Eins og kunnugt er gerði bæjar- stjóm Hveragerðis Helga Þór tilboð. Tilboð bæjarstjómar er á þá leið að ef Helgi Þór greiðir helming skulda sinna viö bæjarsjóð fyrir 1. septemb- er næstkomandi falli bæjarsjóöur frá afgangi skuldanna: Helgi Þór skuldar bæjarsjóði um 25 milljónir króna. Ef Helga Þór tekst að greiða fyrir 1. september gefur bæjarsjóður eftir allt að 12 milljónir króna. Helgi Þór sagðist eiga, ásamt lög- manni sínum, Pétri Þór Sigurðssyni, í samningaviðræðum við kröfuhafa um lækkun þeirra skulda sem hvíla á Hótel Örk. „Ég ar mjög bjartsýnn á að samn- ingar takist. Kröfuhafar hafa verið inni á því að ganga til samninga,“ sagði Helgi Þór. -sme Gamla Hvítárbrúin gerir sitt gagn Gamla Hvítárbrúin má muna sinn fífil fegri hvað umferð snertir. Eitt sinn var hún í alfaraleiö og stöðugur straumur af bílum lá yfir hana á hverjum degi. Eftir að Borgarfjaröarbrúin kom til sögunn- ar 1981 hefur umferðln snarminnkaö. En bogabrúin við Hvítá stendur þó enn fyrir sínu og gerir sitt gagn og meira til. Hún er einnig notuð til stuðnings laxanetum bændanna í Ferjukoti. -JFJ/DV-myndJAK Aðrir greiða skaðann með hæni iðgjöldum Þeir sem valda alvarlegu tjóni í umferöinni greiða minnst af þeim skaöa sem þeir valda. Aörir tryggingatakar greiða meginhlu- tann meö hærri iðgjöldum bif- reiðatrygginga. Tryggingafélögin era skyldug til aö hafa frammi endurkröfur á hendur þeim sem valda tjónum meö ásetningi eða stórkostlegu gáleysi. Endurkröf- ur tryggingafélaganna fara fyrir nefnd, endurkröfunefnd sem er skipuö þremur mönnum, einum skipuðum af ráöherra, einum frá FÍB og einum frá tryggingafélög- unum. Endurkröfunefnd ákveður hvort á aö endurkrefja tjónvald og þá um hve mikið. Nefndin samþykkir sjaldnast kröfur tryggingafélaganna. í umferðar- lögunum segir á þá leiö að „... lækka má endurkröfu með hliðsjón af sök tjónvalds, efnahag hans, öárhæð tjónsins eða öðram atvikum.“ Nýlegt tilfelli var er eitt félag- anna hugðist endurkrefja tjón- vald um 3 milljónir króna. End- urkröfúnefndin skar þá upphæð veralega niöur og heimilaöi félag- inu aö krefjast 500 þúsund króna af tjónvaldinum. Tryggingamenn segja þessa afgreiðslu mjög venjubundna af hálfu endurkr- öfunefhdar. Lækkanir á kröfum trygginga- félaganna þýöa einfaldlega aö fé- lagiö ber skaðann og hann er lagður til grundvallar iðgjalda- þörfúm tryggingafélaganna. Þær fjárhæðir, sem félögin fá sam- þykktar sem endurkröfu, skila sér sjaldnast Þeir sem valda, meö refsiverðum hætti, mnferðarslysi eru oftast eignalausir menn og hafa ekki greiðsluþol fyrir þeim kröfúm sem á þá eru settar. Venjulegast líða tvö til þtjú ár frá slysi og þar til endurkrafan er sett fram. Þaö er mismunandi hvernig fé- lögin haga endurkröfum á hend- ur unglingum innan 16 ára ald- urs. Sum félaganna falla frá end- urkröfum á svo ungt fólk en önn- ur ekki. ‘sme í dag mælir Dagfari HeHúðrar gjalla Enn hafa deilur sprottið upp í Fríkirkjusöfnuöinum og er nú tek- ist á af kristilegum kærleika um framtíð safnaðarprestsins. Stjórn safnaöarins hefur rekið séra Gunn- ar Björnsson úr starfi og óskaö eft- ir að hann axli sitt selló hiö fyrsta. Lítið hefur verið látið uppi um ætl- uð brot prestsins í starfi en þó er helst að skilja aö hann hafi viljað gera prestshúsið upp á kostnaö safnaöarins í staö þess aö gera þaö fyrir eigin reikning. Margt fleira mun þó koma til og er klerkur sagö- ur hafa brotið flest ákvæöi sam- komulags sem gert var þegar hann var endurráöinn aö kirkjunni eftir síðasta brottrekstur. Þá var gengiö svo langt að skipta um skrár í kirkj- unni svo prestur ætti ekki greiöa leiö þar um, en ekki hefur frést af svo róttækum aðgerðum í þetta sinn. Prestafélagiö tekur þaö ó- stinnt upp ef þaö á aö margreka mann sem hefúr það fyrir atvinnu eins og aörir prestar að segja söfn- uðinum til syndanna hvenær sem þörf krefur. Auk þess finnst presta- félaginu illt til þess aö hugsa ef taka á upp þann sið aö reka presta úr starfi því oftar en ekki hafa þeir komist í embætti eftir aö hafa stað- iö í illvígum kosningum um emb- ættið þar sem tilgangurinn hefur jafnan helgað meöahð. En meiri- hluti safnaðarstjómar, sem stóö aö brottvikingu séra Gunnars hér um áriö, var felldur þegar næst var kosiö í safnaöarstjóm. Menn létu þó ekki á neinu bera heldur báru harm sinn í hljóði og hugöu á hefndir þótt síðar yrði. Og í síöasta mánuöi var enn gengið til kosninga í safnaöarstjóm og gamh meiri- hlutinn náöi völdum á nýjan leik. Var þá farið aö krukka í embættis- færslu sóknarprestsins og þótti nýja/gamla meirihlutanum sem þar hefði ekki veriö staðið viö sáttagjörðina frá því séra Gunnar var endurráðinn síöast. Var þá ekki beðið boðanna meö að gefa út reisupassann. Sjálfur kemur klerk- ur af fjöhum og skhur hvorki upp né niður í þessum sífehda brott- rekstri með vissu milhbih. Og hann á sér marga lærisveina innan safn- aöarins sem vhja nú skera upp herör gegn meirihluta safnaðar- stjómar og láta hart mæta höröu. Má búast við aö næst verði reynt aö fá fram meirithuta meðal sókn- arbama th aö reka stjómina sem rak prestinn og era höfð uppi stór orð þar aö lútandi. Meirihlutinn er ekki á þeim buxunum aö láta reka sig og safnar nú liði gegn presti og hans fylgismönnum. Sem gefur aö skilja gefst ekki mikill tími til að boða fagnaðarerindiö meðan allt logar í ihdeilum, enda óvíst hver ætti aö annast þaö hlutverk eins og nú standa sakir. Klerkur hefur verið beðinn um að láta af störfum frá og með næsta fóstudegi en sem fyrr segir hafa Gunnarsmenn fylkt liöi og ætla meö öllum ráðum að koma í veg fyrir að prestur pakki saman og sjálfur mun hann ekki á þeim buxunum aö gefast upp bar- áttulaust. Þaö stefnir því allt í fjör- uga safnaðarfundi í Fríkirkjunni á næstunni og ómögulegt aö spá hvor armurinn fer meö sigur af hólmi áður en yfir lýkur. Hins vegar er vandséð hvernig haldið verður uppi eðlilegu safnaöarstarfi í ná- inni framtíð, hvemig sem fer. Eins og alþjóð veit er séra Gunnar kunn- ur sellóleikari og eiginkona hans þekkt söngkona. Væri kannski ráö fyrir prestshjónin aö efna til tón- leika og söngskemmtunar í kirkj- unni eitthvert kvöldiö nú í vikunni og freista þess aö lægja öldurnar með góðri tónlist og hugljúfum söng. Er ekki úthokaö aö með þessu móti megi fylla sáhr sóknarbarna meö friði og deilur allar leggist af í framhaldi af því. Að öðrum kosti munu herlúöramir halda áfram að gjalla og hvetja menn fram til orr- ustu. Prestafélagið mun fylgjast grannt meö framvindu mála því eins og gefur að skhja getur orðið erfjtt fyrir tvírekinn prest aö fá brauö viö hæfi í framtíöinni. Kannski aö málið fari aha leiö til biskups sem er kunnur friöarsinni og mannasættir eins og best kom í ljós er deilurnar á Bergþórshvoli risu sem hæst hér um árið. Dagíári

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.