Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. 7 Fréttir Sæblik á Kópaskeri: Byggðastofhun á rækjutrollið og greiðir áhöfhinni laun - fyrirtækið í raun gjaldþrota „Þaö eru engir peningar til á Kópa- skeri til þess að leggja í fyrirtækiö. Viö horfum því aðallega til nágranna okkar á Húsavík og Þórshöfn eftir aöstoö," sagöi Kristján Ármannsson, framkvæmdastjóri Sæbliks hf. á Kópasken. Það fyrirtæki stefnir nú í gjaldþrot. Byggöastofnun hefur neitað fyrirtækinu um frekari fyrir- greiðslu nema til komi aukiö hlutafé. Stofnunin er tilbúin að veita nýjum eigendum lánafyrirgreiðslu. Samkvæmt ársreikningi Sæbliks er fyrirtækiö gjaldþrota. Skuldir þess voru um síöustu áramót 137 milljónir en eignir ekki nema 128 milljónir. Aö mati forráðamanna fyrirtækisins vantar um 30 milljónir inn í fyrirtæk- iö ef útgerð rækjuskipsins Áma á Bakka og vinnsla á ekki aö stöðvast. Byggðastofnun hefur veitt fyrir- tækinu mikla aöstoð. Veðtryggð lán nema um 26,6 milljónum og þar af eru tæplega 11 milljónir umfram húfmat skipsins. Þá hefur stofnunin keypt og lánað Sæbliki rækjutroll, greitt laun áhafnarinnar og borgaö endurskoðanda til þess að loka reikningum síðasta árs. Forráðamenn Sæbliks óskuðu eftir því að Byggðastofnun legði til nýtt hlutafé í fyrirtækið. Þvi var hafnað þar sem stofnunin hefur það sem meginreglu að gerast ekki hluthafi í fyrirtækjum í sjávarútvegi. Stjórn stofnunarinnar hefur hins vegar veitt Guömundi Malmquist, fram- kvæmdastjóra Byggðastofnunar, heimild til þess að lána 5 milljónir til fyrirtækisins til þess að liðka fyrir nauðasamningum og 10 milljónir til nýrra eigenda. -gse Læknaþing á ísafírði Sigurját J. Siguiöason, DV, ísafiröi; Dagana 28. júní til 1. júli veröur haldiö iæknaþing í Menntaskó- lanum á ísafirðl Þeir læknar, sem sækja þingjð, eru úr svoköll- uðum „Viking surgical club“ og eru frá eyjunum fyrir utan Skot- land - Orkneyjum, Hjaltlandseyj- um, Suðureyjum og einnig frá Norður-Skotlandi. Einar Hjaltason, yfirlæknir á Fjóröungssjúkrahúsinu á ísafirði, sem er félagi í áður- greindum klúbbi, lofaöi fyrir ári að sjá um þetta þing og veröur þaö eitt af síðustu verkum Einars hér á ísafiröi. Hann er nú að fiytj- ast búferlum til Reykjavikur eftir sjö farsæl ár á ísafirði. Til þessa þings hefur Einar boð- ið nokkrum þekktum, íslenskum og erlendum fyrirlesurum, m.a. Magnúsi Magnússyni, sjónvarps- manni þjá BBC, sera mun halda aðalfyrirlestur þingsins. Gjaldheimta Vestmannaeyja hjá embætti bæjarfógetans - talið stefnumarkandi fyrir önnur sveitarfélög Rangárvallasýsla: Missti öku- leyfl vegna ofsahraða Einn ökumaður var umsvifa- laust sviptur ökuleyfi fyrir að aka á 140 kílómetra hraða á Rangár- völlum. Lögreglan í Rangárvallasýslu kærði íjóra ökumenn til viðbótar. Allir höföu þeir gerst sekir um að aka mun hraðar en lög gera ráð fyrir. -sme „Ég smíðaði vélina sjálfur fyrir þremur árum og markaössetning hefur gengið lygilega vel. Ég sel nú framleiðsluna út um allt land, þótt megnið fari á Reykjavíkursvæðið," sagði Þráinn Sigurðsson, 42 ára vél- virki og 4 barna faðir á Akranesi í samtali við DV. Þráinn fékk fyrir um ijórum árum þá hugmynd að smíða vél sem fram- leiddi rörbúta í miðstöðvar og vatns- lagnir. Hann vissi að slíkir hlutir væru fluttir inn og ákvað að athuga hvort hann gæti ekki gert jafnvel og útlendingarnir. Grindavík: Olvun og árekstur Tveir ökumenn voru teknir fyr- ir að aka ölvaðir í Grindavík um helgina. Á sunnudag varð harður árekstur á mótum Hafnargötu og Ægisgötu. Báðir bflamir eru mikið skemmdir. Engin slys urðu á fólki.. -sme Það tók 18 mánuði aö fullsmíða vélina en það gerði Þráinn þar sem vélin kostar um 6 milljónir. Fyrir- tækið er í bflskúmum og heitir Sker- tækni þar sem hann bútar niður rör. Frá því að fyrirtækið kómst á lagg- irnar hefur innflutningur að mestu dottiö niður og Þráinn segist nú geta lifað af þessu. Hann hyggur þó ekki á frekari landvinninga og telur ekki vera grundvöll enn sem komið er fyrir útflutning. En hver veit hvaö framtíðin ber í skauti sér fyrir slíkan athafnamann? -JFJ Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaeyjum: „Gjaldheimtan verður innan bæj- arfógetaembættisins og er þaö hag- kvæmasti kosturinn. Um tvo aðra kosti var að velja. Það er að bæjar- sjóður hefði tekið að sér innheimtu staðgreiðslugjalda eða að komið yrði upp sjálfstæðri gjaldheimtu. Það hefði þýtt kaup á tölvubúnaði og tengingum viö Skýrsluvélar ríkisins. Það er nú þegar til staðar hjá okkur og því mikill spamaöur. Sennilega þurfum við ekki að bæta við nema einum starfskrafti,“ sagði Kristján Torfason bæjarfógeti þegar DV ræddi við hann nýlega í tilefni þess að á síðasta bæjarstjórnarfundi hér í Eyjum var samþykkt að ganga til samninga við íjármálaráðuneytið um gjaldheimtu í Vestmannaeyjum á grundvelli tilboðs ráðuneytisins frá 28. aprfl. Samningar hafa staðið yfir síðan í vetur. í tilboðinu var gengið út frá ákveð- inni krónutölu á hvem gjaldanda, - 400 krónur fyrir útsvar og 275 krónur vegna fasteignagjalda. Bæjarfógeta- embættið hefur frá áramótum inn- heimt staðgreiðsluna, þar með talinn útsvarshlutann, en um næstu ára- mót tekur það yfir innheimtu á eldri skuldum og fasteignagjöldum. Fullt samstarf verður milli embættisins og bæjaryfirvalda um innheimtuað- gerðir. Taliö er liklegt að þessi samn- ingur verði nokkuð stefnumarkandi fyrir önnur sveitarfélög. Afurðir framleiðslunnar eru mismunandi og hér er Þráinn innan um nokkra flokka. DV-mynd JAK Fýrirtækið í bílskúmum: Mátaði innflytjendur júlí er reiknað með að embætti bæjarfógetans i Vestmannaeyjum flytji i HB-húsið við Heiðarveg. DV-mynd Ómar RYMINGARSALA VEGNA BREYTINGA Falleg teppi á stórlækkuðu verði aðeins þessa viku. 20-50% AFSLÁTTUR. Höfum einnig örfá ítölsk sófasett á frábæru verði með mjúku leðri. 3ja sæta sófi + 2 stólar, kr. 105.000,- TEPPAVERSLUN Friðriks Bertelsen SÍÐUMÚLA 23, SÍMI 686266

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.