Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Page 17
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. 17 Lesendur Fegurð Irfs á sumri Ingvar Agnarsson skrifar: Sumariö sæla svífur að sunnan um fjöll og heiðar og fagra dali. Allt lífið fagnar komu þess: Grösin stinga nál- um sínum upp úr moldinni. Blómin opna krónur .sínar mót geislum sól- ar. Moldarbörnin taka til starfa, ána- maðkar losa jarðveginn og auka frjó- magn hans. Brekkusnigill litast um á litlum steini. Fuglar koma fljúgandi um höfin breiðu til þess áð reisa hér byggð og bú á stuttu sumri. Þeir syngja gleði- söngva, því þeir eru komnir til fyrir- heitna landsins með nóttunum björtu og loftinu tæra. - Prúðir laxar sækja ámar til aö hrygna og viðhalda kyni sínu. Hvahrnir koma langar leiðir tO að ala hér afkvæmi sín í nágrenni landsins. En hvernig bregðumst við menn- irnir við komu þessara samjörðunga, sem ættu aö vera okkur aufúsugest- ir? Fögnum við nærveru þeirra heils- hugar sem kærra vina? Látum við þá njóta friðar, eða tökum við á móti þeim sem óvinum? Hver og einn líti í eigin barm, ekki síst þeir, sem ofurselja drápslöngun- inni sálu sína og finnst lífið þá fyrst fagurt, er þeir hafa lagt það að velli við fætur sér. Er hér ekki á feröinni andstæða þeirrar lotningar fyrir líf- inu, sem hverjum manni ætti að vera í brjóst borin? - Svari því hver fyrir sig. BHreið stolið Erlingur Sverrisson hringdi: Mánudagskvöldið 20. júní var bifreið stolið frá bílastæði í mið- borg Reykjavíkur, nánar tiltekið í Lækjargötu. Bifreiðin er af gerð- inni Lada 1600, Ijós-drapplituö, á númerinu H-3860. Þetta skeöi milli kl. 21 og 22 um kvöldið. Þessi atburður var að sjálf- sögðu tilkynntur lögreglunni i Reykjavík en ekkert hefur spurst til bifreiðarinnar ennþá. Þeir sem kynnu aö geta gefið upplýsingar um afdrif hennar eru vinsamlega beðnir að hafa samband við lög- regluna. Frambjóðendur til forsetakjörs: Meðmælendalisti verði birtur R.B. af landsbyggðinni hringdi: Ég vil mælast til þess að birtur verði listi yfir meðmælendur Sigrún- ar Þorsteinsdóttur sem bauð sig fram til forsetakjörs. Og til að gæta alls réttlætis verði einnig birtur hsti yfir meðmælendur Vigdísar Finnboga- dóttur. Þessa dagana eru alhr að kvarta um peningaleysi, jafnt opinberir aðil- ar sem einstakhngar. Samt er sóað fjármunum í kosningar, algjörlega að óþörfu. Ég hef ekki mikla trú á að kostnaður vegna þessara kosn- inga sé ekki meiri en 50 milljónir króna. Mér hefur verið tjáð af opin- berum embættismanni að þær geti aldrei verið undir hundrað mihjón- um króna. Satt best að segja furðar mann á því framboðsfargani sem gengur yfir þessa þjóð, ekki síst í kosningum th Alþingis. En úr því ég er farin að tala við ykkur á annað borð langar mig til að koma því á framfæri að kjahara- greinarnar hans Jónasar Bjarnason- ar eru meira en htið rótarlegar í garð bænda. Hann ætti að snúa blaöinu við um stund og kanna og rita um innflutning landsmanna á ýmsum óþarfa vamingi sem gjaldeyri er eytt í. TIL SÖLU einbýlishús á Arnarstapa. Upplýsingar í síma 93-11150 Lögtök Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík og að undangengn- um úrskurði verða lögtök látin fram fara án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu auglýsingar þess- arar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Söluskatti fyrir okt., nóv., des. 1987 og jan., febr., mars og apríl 1988, svo og söluskattshækkunum, álögðum 12. okt. 1987 til 10. júní 1988; vörugjaldi af innlendri framleiðslu fyrir okt., nóv„ des 1987 og jan., febr., mars og apríl 1988; mælagjaldi, gjaldföllnu 11. febr. og 11. júní 1988; skemmtanaskatti fyrir okt., nóv. og des. 1987 og jan., febr., mars og apríl 1988, svo og launa- skatti, gjaldföllnum 1987. Reykjavík 20. júní 1988. Borgarfógetaembættið í Reykjavík. NORÐURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og Pálmi Jónsson alþingismað- ur efna til viðtalstíma í Norðurlandskjördæmi vestra á næstu dögum sem hér segir: 29. júni, miðvikudag, í Sjálfstæðishúsinu, Grundar- götu 11, Siglufirði, kl. 17.00. 30. júni, fimmtudag, í Sjálfstæðishúsinu, Aðalgötu 8, Sauðárkróki, kl. 10.00 f.h. 30. júní, fimmtudag, í Fellsborg, Skagaströnd, kl. 18.00. 1. júlí, föstudag, í Sjálfstæðishúsinu, Blönduósi, kl. 10.00 f.h. 1. júlí, föstudag, í Vertshúsinu, Norðurbraut 1, Hvammstanga, kl. 14.00. Sjálfstæðisflokkurinn a tv\/MpwJvt/ictcVL Steypuskemmdir hafa löngum þótt hvimleitt vandamál hérá landi. Gildir þá einu hvort um er að ræða alkalí-, frost- eða ryð- skemmdir. Margar leiðir eru til að gera við sprungur af þessu tæi. Á morgun kynnum við nokkrar leiðirsem nú eru notaðartil við- gerðaíþessu sambandi. Garðaúðun hefur verið í lágmarki á þessu ári vegna tíðarfars. Rign- ingin sunnanlands hefur gert það að verkum að maðkétinn trjá- gróðurernú (lágmarki. I Lífsstíl á morgun kynnum við okkur nokkrar staðreyndir í sam- bandivið garðaúðun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.