Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988.
19
Ólygimi
sagði...
Annie
Lennox
- sem gerði garðinn frægan hér í
eina tíð og gerir enn meö hljóm-
sveitinni Eurythmics - á nú von
á bami með Úra Fruchtman sem
er ísraelskur kvikmyndageröar-
maöur. Þau hafa nú búið saman
í um sex mánuði og Annie er sögð
vera farin að hugsa um giftingu
og það sem fyrst. Og hvar á að
gifta sig? Helst í París.
Dolly
Parton
var gefiö tækifæri nú í vetur til
að spreyta sig á þáttagerð í
Bandaríkjunum. Átti þátturinn
að höfða tíl alira aldurshópa og
sameina fjölskylduna fyrir fram-
an sjónvarpið. Eitthvað hefur
henni þó mistekist hlessuninni
því nú er búið aö taka þáttinn út
af dagskránni. Dolly tekur þessu
þó ekkert of alvarlega enda fékk
hún litlar 280 milljónir fyrir
samninginn. Þegar var búið að
eyða 1120 milljónum í þættina.
Yoko
Ono
hagnast enn á nafni Johns Lenn-
on. Nú hafa hún og Sean, sonur
hennar og Johns, fengið 14 millj-
ónir króna fyrir að koma fram í
sjónvarpsauglýsingum fyrir jap-
önsk símtæki. Með auglýsing-
unni á að leika hið gullfallega lag
Johns, Imagine.
Hjónaband Michaels
Douglas á enda?
Það er ekki daglegt brauð að menn
næli sér í tvenn óskarsverðlaun en
Michael Douglas gerði það nú samt
og nú virðist sem frægðin og vel-
gengnin hafi stígið honum til höfuðs.
Myndin Fatal Attractíon gerði hann
að kyntákni og í myndinni Wall Stre-
et sýndi hann og sannaði að hann
ræður við alvarlegri hlutverk.
En það er af einkalifi Mikka að
segja að honum hefur oröið á að taka
hliöarspor frá hinum guUna vegi
hjónábandsins og.hefiir hann ósjald-
an verið orðaður við hinar og þessar
konur. Hann hefur því hrist rækilega
upp í sínu hjónabandi eins og persón-
an er hann túlkaði í Fatal Attraction.
Frá degi til dags býr hann með
konu sinni, Diöndru, og syninum
Cameron í útborginni Pound Ridge í
New York-ríki en á ferðalögum um
heiminn mun hann víst sletta úr
klaufunum. Þær sögur ganga því nú
að kvöldið sem óskarsverðlaunin
voru veitt hafi verið þeirra síðasta
saman. Michael eyðir nú megninu
af tíma sínum á búgarði í Kalifomíu,
en Diandra er í New York þar sem
hún vinnur sem fyrirsæta, auk þess
aö vinna fyrir Metropohtansafnið.
Michael Douglas og Diandra hafa nú verið gift í 11 ár og hefur hún þótt
sýna mikla þolinmæöi því vitað er að Michael hefur haldið framhjá henni.
Sviðsljós
Krókódíllinn gómaður
Paul Hogan og Linda Kozlowski, aðaistjörnur myndanna um Krókódíla
Dundee, eru nú orðin aðalstjörnurnar hvort í annars lifi.
Komist hefur nú laglega upp um
krókódhinn, þ.e. ástralska leikarann
Paul Hogan sem varð heimsfrægur
fyrir mynd sína um „Crocodhe
Dundee“. Paul hefur að sögn ahra
helstu slúðurblaða heims komið sér
upp 40 mihjóna hreiöri með hinum
kynþokkafulla mótleikara sínum
Lindu Kozlowski, sem nú er ekki
aðeins ást hans á hvíta tjaldinu held-
ur líka í gráma hversdagsleikans.
Með aðeins átta orðum batt Hogan
enda á ahar getgátur sem komið hafa
upp varðandi launsamband hans við
Lindu. Rómeó muldraöi með sínum
ástralska hreim: „Ég geri ráð fyrir
að leiknum sé lokið.“ En spurði svo
undrandi hvernig fjölmiðlarnir
hefðu komist að þessu.
í tvö ár hefur aha í Holíywood
grunað aö Palli krókódhl væri aö
halda fram hjá konunni sinni, Noe-
lene. Því kom hann öhum á óvart
þegar hann tók eiginkonu sína með
sér þegar „Croc 11“ var frumsýnd í
Hohywood.
Talsmaður Paramount kvik-
myndafyrirtækisins sagði að Paul
hlyti að vera meistari í tvöfeldni.
Hann hefði leikiö leikinn til enda.
En nú hefur þessi fimm barna faðir
sagt skihð við Sydney og ætlar sér
að fara aö búa með Lindu sem er 29
ára og því tuttugu árum yngri en
hann.
Kunningjar þeirra segja að Paul sé
búinn að biðja Noelene um skhnaö í
skyndi, en það á eftir að kosta hann
skhdinginn því hún fer fram á helm-
ing ágóða fyrri myndarinnar, eða htl-
ár 1120 milljónir.
Paul reyndi allt til að hylja hvað
um væri að vera en það komst samt
upp um kauða. Á daginn dvaldist
hann í húsi Joan Colhns í Beverly
Hihs en í skjóli nætur læddist hann
th Lindu í fjögurra herbergja kotinu
þeirra.
Noelene sagði vinum sínum að ef
þessi tík (þ.e. Linda) héldi að hún
gæti bara gengið í burtu með mann-
inn hennar þá gæti hún gleymt því.
Og móðir Lindu sagði dóttur sinni
að losa sig við Paul og ná sér í ungan
og myndarlegan mann.
Brigitte Nielsen náði heimsfrægð á
skömmum tíma þegar hún festí Sylv-
ester nokkurn Stahone í neti sínu.
Ekki var sambandi þeirra spáð lang-
lífi og kom fljótt i Ijós að svartsýnis-
menn höfðu á réttu að standa. Brig-
itte lagði þó ekki hendur í skaut þó
aö hjónabandið færi út um þúfur, því
nú var hún búin að koma sér vel
fyrir í slúðurdálkum blaðanna og
meðan nafn hennar væri þar, var
engin hætta á að hún gleymdist.
Eitthvað reyndi hún fyrir sér í
kvikmyndaleik með misjöfnum ár-
angri. Muna menn eftir henni úr
myndinni „Rocky IV“ og „Beverly
Hhls Cop II“. Ýmsar sögur voru á
kreiki um dönsku stúlkuna og héldu
sumir því jafnvel fram að hún hefði
haldið við Eddie Murphy um tíma.
En nú í vetur átti hún að hafa hitt
hina einu, sönnu og stóru ást í lífi
sínu, Mark Gastineau sem er fræg-
astur fyrir það að kunna að leika
amerískan fótbolta. Hafa hundruðir
mynda og viðtala birst, þar sem þau
í orði og verki láta í ljós aðdáun sína
á hvort öðru. Og síðan kom stóri
smellurinn, Brigitte gaf út þá tíl-
kynningu aö ávöxtur ástarinnar
væri á leiðinni.
Vaktí þetta gífurlega athygli vest-
anhafs og voru nú bandarísk blöð
uppfull af sögum og viðtölum við
fyrrverandi eiginkonu Marks (eða
þá núverandi, en þau eru ekki enn
Drottning
í ríki sínu
Það er oróið talsvert langt siðan
Moskvubúar hafa ótt einhvern
með konunglegan titil, en nú
eiga þeir einn, þ.e. hana Mariu
Kalinfnu sem kosin varfegurðar*
drottning Moskvu ekki atls fyrir
löngu I fyrstu feguröarsam-
keppnl I Sovétríkjunum. Hér sést
hún i fullum skrúða fyrir framan
St. Basilklrkjuna á Rauöa torg-
inu.
skhin að lögum). Mark á með konu
sinni eina fimm ára dóttur. Sömu-
leiðis á Brigitte son sem býr í Kaup-
mannahöfn hjá fóður sínum.
En eitthvað kom fyrir, því nú hefur
fjölmiðlum verið sögð harmsagan
um fósturlátíð. Brigitte var í Róm við
upptökur á myndinni „Domino",
þegar hún á að hafa misst fóstrið.
Mark kom að sjálfsögðu strax frá
New York með næstu vél th að vera
við hhð sinnar heittelskuðu. Þaö er
ekki að spyrja að þvi, en strax og
fréttist um fósturlátíð fór Gróa á
Leiti að breiða út sögur í Hollywood.
Hinar ihu tungur vilja halda því fram
að Brigitte hafi látíð eyða fóstrinu,
og aðrar tungur smjatta á því að
Brigitte hafi aldrei átt von á barni
og því haíi allur gauragangurinn
bara verið fjölmiðlabragð.
Brigitte Nielsen meö Mark sínum Gastineau. Ekki fjölgar hjá þeim í bili
eftir þvi sem fréttir herma.
Fjölxniðlabragð
Brigitte Nielsen