Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1988, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚNÍ 1988. LífsstOl Guömundur Guómundsson, forstöðumaöur sumarbúðanna, með hóp af dvalargestum, strákum á aldrinum 10-11 ára. Mestur tími í íþróttir og leiki - segir Guðmundur Guðmundsson, forstöðumaður sumarbúðanna „Meginmarkmiðið með sumarbúð- unum hefur alla tíð verið að veita fræðslu í kristíndómi og við höfum verið í nánu sambandi við Kristni- boðssambandið í þeim efnum. En mestur tími strákanna fer að sjálf- sögðu í íþróttir og aðra leiki,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, for- stöðumaður sumarbúða KFUM í Vatnaskógi. „Við ræsum krakkana um hálfníu- leytið. Síðan er drukkið morgunkafli og þá er samverustund. Svo er lesið úr Biblíunni, sungið saman og loks er skipt í leshópa þar sem strákarnir velta fyrir sér tilteknum köflum úr Nýja testamentinu. Um hálfellefuleytið hefst síðan frjáls dagskrá sem stendur fram að kvöldmat klukkan sex. Inn í frjálsu dagskrána fléttast reyndar kaffi- og matartímar. Kvöldvaka hefst um niuleytið og í henni fléttast saman kristnifræðsla, söngur, upplestur og gaman,“ sagði Guðmundur. Mildur agi Guömundur sagði að það gæti stundum verið erfitt að ná athygli tæplega hundrað stráka á aldrinum tíu til tólf ára og láta þá hlýða. „Við reynum að halda uppi aga, þó á mildan hátt. Hér er enginn heragi en krakkamir hafa gott af því að læra að hlýða. Við leggjum einnig mikla áherslu á að strákarnir komi vel fram hver við annan og sýni sam- hug. Ég held aö þeir læri mikið af því að umgangast í svona stórum hópum og temji sér hjálpfýsi og um- burðarlyndi." Er DV kom við í Vatnaskógi í síð- ustu viku voru þar 94 strákar á aldr- inum 10-11 ára. Strákunum er skipt í sjö flokka og eru 13 til 14 í hverjum Frjalst,ohaö daqblaö Askrifendur! Léttið blaðberunum störfin og sparið þeim sporin. Notið þjónustu DV og kortafyrirtækjanna. Greiðið áskriftargjaldið með greiðslukorti. Meðþessum boðgreiðslum vinnstmargt: # Þærlosaáskriféndur viðónæðivegnainn- heimtu. greiðslumátísem tiyggir skilvisar greiöslur þrátt fyrir annireðafjarvistir. e Þærléttablaðberan- umstórfinenhann heldurþóóskertum tekjum. § Þær auka öryggi. Blaðberarerutíi dæmisoftmeðtólu- verðar fiárhæðir sem getaglatast. Hafið samband við afgreiðslu DV kl. 9-20 virka daga, laugardaga kl. 9-14 í síma 27022 eða við umboðsmenn okkar ef óskað er nánari upplýsinga. Atli Sævarsson hefur hér Brynleif • Jóhannsson undir i koddaslag. Sig- urvegarinn í koddaslagskeppninni varð þó Ásgeir Snær Guðbjartsson, 11 ára. „Hann datt, ég vann! Ég vann!“ kallaði Atli Sævarsson sem tekist haíði að leggja félaga sinn, Brynleif Jóhannsson, að velli í koddaslag. Þrátt fyrir þennan frækna sigur tókst Atla ekki að vinna koddaslags- mótið. Ótvíræður sigurvegari varð Ásgeir Snær Guðbjartsson, ellefu ára. „Þetta var erflð og hörð keppni. Ég hef einu sinni áður tekiö þátt í kodda- slagskeppni en þá vann ég ekki,“ sagði Ásgeir. „Ég hef einu sinni áður dvalið í Vatnaskógi og ég fer örugg- lega aftur næsta sumar. Hérna er óskaplega gaman,“ sagði Ásgeir. Allt skemmtilegt! Strákarnir, sem voru í koddaslagn- um með Ásgeiri, tóku undir fullyrð- ingar hans um ágæti sumarbúðanna en menn voru ekki á eitt sáttir um það hvað væri skemmtilegast. „Borðtennis, bobb, kúluspil og margt fleira sem hægt er að gera inni í íþróttahúsinu," sagöi einn gaurinn og haföi þá tveggja vikna samfellt vatnsveður sjálfsagt haft áhrif á hann. Aðrir nefndu fótbolta, sighngar, stangaveiði og margt fleira. Þá vildu sumir meina aö gönguferðir um umhverfið væru skemmtilegar, svo og hjólreiðar, en hægt er að leigja sér hjól í sumarbúðunum og umhverfið er fagurt. Foringjarnir virtir Eftir 'koddaslaginn var farið inn í kaffl. Állir höföu sitt sæti og settust menn hávaðalítið í þau. Nokkurt skvaldur var í salnum og þurfti for- stöðumaðurinn að segja nokkur orð. Hringdi hann þá bjöllu og við það datt allt í dúnalogn, eða svo til. Það var greinilegt aö strákamir virtu for- ingja sína og forstöðumann, þó svo að aginn væri mildur. Eftir kaffið var beðið um sjálfboðaliða til að taka til og gáfu fleiri sig fram en þurfti. „Við erum vaktir klukkan hálfníu á morgnana og þá verðum við að fara á fætur. Ef ekki tekst að vekja okkur eru skvett vatni framan í okkur,“ sögðu þeir Trausti Kristinsson, ívar Magnússon og Einar Jón Erlingsson sem voru að taka til í herberginu sínu. í þriðja skiptið Trausti sagðist vera búinn að vera tvær vikur í Vatnaskógi í sumar. Hann byijaði að koma þangað fyrir tveimur árum, var í fyrra og ætlar aftur næsta ár. ívar hefur aldrei komið í Vatnaskóg áður en var ofsa- lega ánægður með vistina. Hann ætl- ar sko aftur næsta sumar ef hann má.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.