Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Page 4
Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. Lausafjárstaða SÁÁ er afar erfið: Vantar um 50 milljónir í rekst- urinn nú þegar - segir Þórarinn lyrfingsson, formaður SÁÁ „Ég vissi alveg af þessari slæmu stöðu þegar ég tók við formennsku hjá SAÁ. Þaö er í raun ekkert nýtt við þennan hallarekstur því þetta hefur verið vandi samtakanna síðan 1984," sagði Þórarinn Tyrfmgsson, nýkjörinn formaður SÁÁ, en ljóst er að lausafjárstaða samtakanna er mjög slæm. Þórarinn sagði að heildarskuldir samtakanna um síðustu áramót hefðu verið 127 milljónir króna en hann sagðist ekki geta sagt nákvæm- lega um hve miklar þær væru nú. Samkvæmt heimildum DV mun það vera nærri 160 milljónum. Gjald- fallnar skuldir eru á milli 50 og 60 milljónir króna. „Það er staöreynd að lausafjár- staða félagsins er mjög slæm núna og lætur það nærri að um 50 milljón- ir vanti inn í reksturinn nú. Við eig- um hins vegar inni um 20 milljónir hjá ríkissjóöi, þannig að staðan er ekki eins slæm og hún lítur út fyrir að vera.“ Þórarinn sagði að það þyrfti að leita til velunnara félagsins og sagðist hann eiga von á um 10 milljónum frá styrktarfélaginu. Þá sagöi Þórarinn að þó að félagið byggi vissulega við vandamál vegna slæmrar lausafjár- stöðu þá bæri að hafa í huga að eign- ir félagsins væru metnar á um 200 miUjónir þannig að enn væru eignir umfram skuldir. Kostnaður vegna Vogs aðalorsökin Það kom fram hjá Þórarni að það er kostnaður vegna sjúkrastöðvar- Þórarinn Tyrfingsson, nýkjörinn formaður SÁÁ, segir að slæm staða samtakanna sé ekkert nýmæli. Óttar Guðmundsson tekur við yfir- læknisstööu Þórarins á Vogi. innar við Vog sem væri aðalorsök þeirrar skuldasöfnunar sem nú heföi átt sér stað. „Eftir að sjúkrastöðin var opnuð þá hefur aðstaðan batnað til mikilla muna en um leið höfum við tekið á móti veikara fólki. Það krefst meiri umönnunar og aukins kostnaöar. Þá þurfum við að standa straum af ýmiss konar rannsóknar- vinnu, t.d. vegna eyöni. Kostnaður vegna rannsóknarvinnu, sem er öll aðkeypt, er um 12 % af rekstrar- kostnaði okkar.“ Þórarinn sagði að kostnaður vegna sjúklings á Vogi væri 5000 kr. á dag en á öðrum stofnunum SÁÁ, Staðar- felh og Sogni, væri þessi kostnaður aðeins um 2000 kr. Sagði Þórarinn að tími væri kominn til að menn gerðu sér ljóst að þetta væri mikill sjúkrahúsrekstur. í fyrra hefðu um 1600 manns komið til meðferðar en innlagnir heföu verið um 2000 sem skapast af því aö sumir koma oftar en einu sinni. - En til hvaða aðgerða ætlar SÁÁ að grípa? „Við höfum ráðgert fundi í stjóm og framkvæmdastjórn félagsins þar sem ákvarðanir verða teknar. Ég vil ekkert nefna um hugsanlegar að- gerðir á þessu stigi málsins en við höfum vissuiega ýmsar ráðagerðir í huga. Það em ákveðnir erfiðleikar við að etja núna en við ætlum að vinna okkur út úr þeim.“ Þá má geta þess aö Óttar Guð- mundsson, læknir hjá SÁÁ, tekur við yfirlæknisstöðunni á Vogi nú þegar Þórarinn hefur tekið við formanns- starfinu. -SMJ Það var greinilegt um helgina að nýja vatnsrennibrautin í Laugardal nýtur mikilla vinsælda hjá ungu kynslóðinni. Myndaðist löng biðröð við brautina og var eins gott að vera þolinmóður. DV-mynd GVA Áfram sól og blíða Þaö má með sanni segja að veðrið hafi loksins leikið við íbúa höfuð- borgarsvæðisins síðustu dagana eftir langvarandi rigningar og leiðinda- veður. Loksins þegar sóhn lét sjá sig flykktust börn og fullorðnir út til að njóta hennar og voru því útilaugar borgarinnar með eindæmum vel sóttar. Ekki ætti blíöan að taka enda alveg strax því Eyjólfur Þorbjömsson veö- urfræðingur gerði ráð fyrir því í gær að góða veðrið myndi haldast að minnsta kosti næstu þrjá sólar- hringa og ekki aðeins á Suðvesturl- andi heldur um land allt. Einnig er gert ráð fyrir að hitinn veröi allt aö 16 stig. Ekki er ólíklegt að hann fari aðeins yfir það á ýmsum stöðum. -GHK I dag mælir Dagfari_________________ Thailenskir þrælar Éjölmiðlar hafa verið að gera veður út af því að tvær thailenskar stúlk- ur hafa verið vanhaldnar í launum í störfum sínum á kjúkhngabúi á Kjalamesi. Sagt er að stúlkumar hafi fengið fimm þúsund krónur í mánaðarlaun fyrir dagvinnu frá klukkan átta á morgnana og fram til klukkan sex á kvöldin. Þær hafi fengið matarbita við og við eftir því hvað til er í ísskápnum hveiju inni og gengið í fótum af húsfreyjunni þegar flíkumar hentuðu ekki leng- ur. Sagt er að vistin hafi að flestu leyti öðm verið svipuð þrælahaldi á galeiðunum. Þetta er auövitað ljótt til afspum- ar ef satt er, enda var þrælahald bannað með lögum strax á land- námsöld og menn hafa farið fint með það þegar þeir hafa misnotaö starfsfólk sitt og vinnuhjú. Að minnsta kosti hafa fjölmiðlar lítið sagt frá þeim þrældómi sem íslend- ingar hafa mátt þola undanfamar aldir og þola enn, enda hefur það aldrei verið blaðamatur þegar fólk tekur til hendinni. Það er eins og fjölmiðlar haldi að vinna, og það mikil vinna, sé af hinu iha. Ef ís- lendingur vinnur hörðum höndum frá morgni til kvölds þykir það bera vott um dugnaö og manndóm en þegar útlendingar leggja sams kon- ar starfsdag á sig þykir það ganga guðlasti næst. Það er ekki að spyrja af snobbinu gagnvart öllu því sem útlenskt er. Nú em það sem sagt thailenskar stelpur sem þjóðin vorkennir fyrir aö þurfa vinna fyrir kaupinu sínu og hneykslast á því að þær fái ekki meiri laun en þær vinna fyrir. Hef- ur nokkmm manni dottiö í hug að spyrjast fyrir hvort þær standi sig í stykkinu? Hvaö ættu svosum thai- lenskir stelpukrakkar að vita um kjúkhnga á Kjalamesi? Það er í rauninni göfugmannlegt af kjúkl- ingabóndanum að hýsa stúlkumar og bjóða þeim vinnu viö framandi aðstæður og gera skýran greinar- mun á kjúklingunum annars vegar og stelpunum hins vegar. Minnsta kosti að því leyti aö bóndi gefur stúlkunum fot af konunni sinni, sem er meira en hann gerir fyrir kjúklingana. Það hefur líka komið í ljós að stúlkurnar frá Thailandi fá meira en þessar fimm þúsund krónur. Aðrar fimm þúsund krónur eru lagðar inn á thailenskan reikning og þannig komast þar samanlagt með mat og húsnæöi og öllu upp í sextán þúsund og fimm hundrað krónur, sem er dálagleg upphæð og meira en Thailendingar eiga aö venjast. Enda mun það vera svo að þær fimm þúsund krónur, sem kjúkhngabóndinn leggur inn á reikninginn í hveijum mánuði, heldur uppi heilum íjölskyldum í föðurlandi stúlknanna og enginn þar hefur kvartaö svo vitað sé. Öðm nær. í Thailandi era fjöl- skyldumeölimirnir himinlifandi yfir þessum peningasendingum frá íslandi og þeir vita ekki aura sinna tal. Menn verða nefnilega aö átta sig á því aö í Thailandi er ekki verð- bólga og verðtryggingar og þar eru engir bandbijálaðir kaupmenn sem okra á fólkinu og þar er hver maður feginn meðan hann á í sig og á. Þar þurfa menn ekki að ferð- ast til sólarlanda eöa kaupa sér drossíur fyrir milljónir og þar drekka menn sig ekki fulla um helgar eins og verkafólkið á íslandi þarf að gera til að halda lífsstand- ardinum. En verkalýðshreyfmgin á íslandi skilur ekki alþjóðlegan mæli- kvarða í launamálum. Verkalýðs- félögin hér heima halda að allir eigi aö fá borgað jafnmikiö, hvort sem þeir eru íslenskir ríkisborgar- ar eða útlenskir. Verkalýðshreyf- ingin er hka fyrir löngu búin aö gefast upp viö að fá hækkað kaupið fyrir íslenskan verkalýð og verka- fólk er fyrir löngu hætt aö snúa sér til stéttarfélaga sinna til að amast við húsbændum sínum. Þess vegna þurfa verkalýðsforingjarnir að finna sér önnur verkefni og þess vegna eru þeir nú búnir að taka thailensku stúlkurnar upp á arma sína, án þess að þær hafi nokkurn tíma beðið um þá aðstoö. Aðspurð- ar segjast thailensku stúlkurnar vera bæöi glaðar og hamingjusam- ar á kjúklingabúinu á Kjalarnesi og bóndinn hefur reynst þeim hinn besti og göfugasti maður. Fjölmiðlar og verkalýðsfélögin þurfa ekki aö hafa áhyggjur af þessum stúlkum. Þær hafa það mikiö betra en kjúklingarnir. Dágfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.