Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. 5 e»v Viðtalið Áhugamálin j afskaplega tímafrek J Nafn: Hjalti Elíasson Aldur: 59 ár Starf: Rafvirkjameistari og landsliðsþjálfari I brldge Hjalti Elíasson, landsliðs- þjálfari í bridge, leiddi lið sitt til sigurs í Norðurlanda- keppni í bridge í síðustu viku. Hjaltierfædduroguppalinn aö Saurbæ í Holtum í Rangár- vallasýslu og er af Víkings- lækjarætt. Foreldrar hans eru Elías Þórðarson, bóndi að Saurbæ, og Sigriður Pálsdótt- ir. Eiginkona Hjalta er Guöný Málfríður Pálsdóttir og eiga þau fjóra syni, Pál keriis- fræðing, Pétur tölvufræðing og Sigurð Elias verkfræðing en þeir eiga saman og reka fýrirtækið Hugbúnað. Yngsti sonur þeirra hjóna, Eiríkur, er nemi í rafvirkjun. Hjalti ólst upp í stórum barnahópi fram til 13 ára ald- urs en þá hélt hann til Reykja- víkur að læra rafvirkjun. Eft- ir nám í faginu fór hann að vinna við fág sitt og hefur verið sjálfstæður rafvirkja- meistari í á fjórða áratug. Tímafrek áhugamál „Áhuga- og tómstundamál mín í gegnura tíðina hafa ver- ið afskaplega timafrek en þau eru mest bridge og félagsmál Félagsmál í sambandi við bridgeinh hafa tekið mikinn tíma enda hef ég gegnt mörg- um störfum í tengslum við hann. Ég hef verið formaður Bridgesambands íslands, landsliðsmaður í yfir 20 ár og tók við landsliösþjálfarastöðu i fyrra. Af öðrum áhugamálum hef ég afskaplega gaman af lestri góöra bóka og einnig af ferða- lögum. Ferðalög eru ákaflega skemmtileg og lærdómsrík og ég álít að ferðalög séu hveij- um manni nauðsynleg benlín- is til skemmtunar og hins veg- ar vegna þess hve lærdómsrík þau eru,“ segir Hjalti. Aö hafa opinn huga „Ég tel hveijum manni nauðsynlegt að ganga til starfs síns með opinn huga, hafa bærilega dómgreind og kunna að meta það sem mað- ur sér á lífsleiðinni og muna eftir því,“ sagði Hialti að lok- um. Framundan hjá honum er ólympíumót i bridge sem haldið verður S október og því nóg að gera á næstu raánuð- um. ÍS Fréttir Heimsókn forseta íslands vekur athygli í Vestur-Þýskalandi: Ritaði nafn sitt í gullna bók í Bonn Frá athöfninni í kirkjugaróinum í Bonn þar sem forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, lagói blomsveig á minnis- varða þeirra er fallið hafa í styrjöldum sem maðurinn hefur háð og undir harðstjórnum. DV-myndir HV Halldór Valdimarsson, DV, Bonru Dagskrá opinberrar heimsóknar forseta íslands, frú Vigdísar Finn- bogadóttur, til Sambandslýðveldis- ins Þýskalands hófst í gærmorgun. Forseti kom þá til opinbers bústaðar forseta Vestur-Þýskalands, Richards von Weizsecker. Vestur-þýski forset- inn tók á móti frú Vigdísi og bauð hana velkomna. Forsetamir kynntu hvor öðrum fylgdarhð sitt og gengu síðan fram í garðinn framan við for- setabústaöinn. Þar lék lúðrasveit vestur-þýska hersins þjóðsöngva ís- lands og Vestur-Þýskalands og að því búnu könnuðu forsetarnir tveir heið- ursvörð úr landher, flugher og flota Vestur-Þýskalands. Forsetarnir gáfu sér síðan stund tO að spjalla viö hóp fólks sem komið hafði saman við forsetabústaðinn. Var Vigdís spurð um íslenska stjórn- málakerfíð og gerði hún þá kvenna- hstann að umræðuefni. Vakti tilvera hans og sérstaða greinilega mikla athygli viðstaddra. Forsetarnir tveir hurfu síðan inn í forsetabústaðinn þar sem þeir áttu viðræður um samskipti landanna tveggja. Forseti íslands og fylgdarlið snæddu síðan hádegisverð í boði Weizcecker forseta. Heimsótti hermannagrafreit Eftir hádegi í gær heimsótti forseti íslands hermannagrafreit þar sem aðstoðaryfirmaður herráðs Vestur- Þýskalands, Siegfried Sgorbeck, bauð hana velkomna. Frú Vigdís lagði þar blómsveig á minnisvaröa um þá sem fallið hafa i styrjöldum þeim er maöurinn hefur háö, sem og þá er látið hafa lífið af völdum harö- stjórnar. Athöfnin við minnisvarðann var stutt og virðuleg. Fjölmennur heið- ursvörður var við athöfnina, lúðra- sveit vestur-þýska hersins lék og trompetleikari lék hefðbundið kveðjulag meðan frú Vigdís vottaði hinum fóllnu viröingu sína. Aö athöfninni í kirkjugarðinum lokinni hélt forseti íslands til ráð- hússins í Bonn þar sem borgarstjór- inn í Bonn, Dr. Franz Daniels, tók á móti henni. Nokkur hundruð áhorf- endur höfðu safnast saman á ráð- hústorginu og fagnaði fólkið frú Vig- dísi hlýlega þegar hún kom þangað. Ritaði nafn sitt í gullna bók Borgarstjóri bauð forseta inn í ráð- húsið þar sem hann ávarpaði hana og færði henni að gjöf safn af hljóm- plötum meö verkum Beethovens. Forseti svaraði síöan ávarpi borgar- stjóra og reyndist einnig hafa meö- ferðis gjöf handa honum. Frú Vigdís ritaöi síöan nafn sitt í gestabók borgarinnar sem nefnd er Gullna bókin. Aðeins tveir íslending- ar höföu áður ritað nöfn sín í bók- ina, þau Gunnar Thoroddsen og Ragnhildur Helgadóttir. Forseti íslands og borgarstjórinn í Bonn gengu síöan um ráöhúsiö og loks út á svalir byggingarinnar þar sem áhorfendur fógnuðu þeim. For- seti og borgarstjóri gengu síðan út á ráðhústorgið, áleiðis til Beethoven- safnsins, sem er í húsi því er tón- skáldiö mun hafa fæðst í. Strengjakvintett Reykjavíkur lék á torginu meðan forseti dvaldi í ráð- húsinu og á leiöinni yfir torgið dok- aði forsetinn við hjá honum og vott- aði hljóðfæraleikurum þakklæti sitt fyrir leikinn. Forseti, borgarstjóri og fylgdarlið gengu síðan sem leið lá til Beethovensafnsins þar sem safn- vörðurinn, Sieghard Brandenburg, tók á móti þeim. Forseti skoðaði safn- ið og hlýddi á hljóðfæraleik. Að heimsókninni í safnið lokinni hélt forseti beint til þinghússins í Bonn þar sem forseti sambands- þingsins, Dr. Philipp Jenninger, bauð hana velkomna. Frú Vigdís átti þar stuttar samræöur viö þingforseta og skoðaði síðan þingsalinn. í gærkvöldi sat forseti íslands síöan kvöldverö í boði forseta Sambands- lýðveldisins, Von Vezceckers. „Derrick“ í kvöldverðarboðinu Kvöldverðarboð þetta var haldið í Augustusborgarhöllinni í Bruhl, skammt utan við Bonn. Kvöldverð- inn sótti margt fyrirfólk. Af því er líklegt aö hinn frægi lögregluforingi, Derrick, sé íslendingum einna kunn- astur en hann var þar mættur. Dagskrá gærdagsins lauk svo undir miönætti. í morgun hófst síðan dagskrá heim- sóknarinnar að nýju með því að for- seti íslands snæddi morgunverð með Dr. Irmgard Agam-Schwaetzer ráð- herra sem mun vera sú kona sem einna lengst hefur náö í vestur- þýskum stjómmálum. Undir hádegi í dag mun frú Vigdís eiga viðræður við Dr. Helmut Kohl, kanzlara Sam- bandslýðveldisins, og síöan snæða hádegisverð í boði hans. Forsetinn mun síðan heimsækja iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og fara þaðan í heimsókn til borgarstjórans í Köln. i köln mun frú Vigdís skoöa sýningu á glermunum sem nefnist Glermunir Sísars. Síðar um daginn mun forset- inn fara í Nelaten-kirkjugarðinn og leggja þar blómsveig á gröf Jóns Sveinssonar, Nonna. í kvöld veröur móttaka fyrir ís- lendinga í Vestur-Þýskalandi á veit- ingahúsi í Bonn. Heimsókn forseta íslands til Vest- ur-Þúskalands hefur vakið töluveröa athygh. Fjölmiðlar hafa skýrt frá heimsókninni meira en oft gerist þegar um þjóðhöfðingja smáríkja er að ræða. Mörg dagblöð hafa tekið heilar og hálfar síður undir frásagnir af heimsókninni ásamt viðamiklum frásögnum af íslandi almennt. Frú Vigdís Finnbogadóttir og Richard von Weizsaecker, forseti Sambands- lýðveldisins Þýskalands, brosa til skólabarna við móttökuna í Bonn í gær. Frá móttökuathötninni við forsetahöllina meðan lúðrasveit lék þjóðsöngva íslands og Vestur-Þýskalands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.