Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. Sandkom Hver hleypti henni út? Víkurblaöiðá Húsavikboðar ísiðastatolu- blaöiaðnæsta aukabúgrein íslenskra bændaveröi sjáifsagthom- sRaveiðar. Seg- irblaðiöaðí Botnsvatniná- lægt Húsavik sé nóg til af homsílum og því sé vatniö kjörinn staður fyrir útgerð af þessu tagi. Blaðið lýsir veiö- unutn: „Reynsla og þekking á þessum veiðum er fyrir hendi, botnvörpum- ar bíöa í eldhússkápunum, gömlu góðu sigtin sem menn hnupluðu s vo lítiöbará þegar mamma brá sér úr eldhúsinu.*' S vo er helst að skilj a aö það sé frekar fátíður og taheyrður viðburður að húsmæðumar bregði sér úr eldhusinu. Atburði sem hom- sílaveiðimenn bíði j afhvel eftir svo dögum og vikum skiptir til að geta nælt sér óséðir i sigtið! Er kannski verið að gefa í skyn að það hafi eftir allt saman verið glappaskot að hleypa konunum út úr eldhúsinu? Útkoman úr því sé ekki önnur en sú að eld- húsáhöldin hverfa sporiaust? Sem að sjálfsögðu verður til þess að fyrir- vinnan þarf að kosta stórfé til að kaupaný! Dýragarður? Kærleiksheim- iliðsæla.sem rikisstjómin er, tekur á sig ýmsarmyndir. Núsíðastvirð- ístsvosem stjómarráðinu hafiverið breyttídýra- garö.efmarka má ummæli forsætisráðherra í DV í gær. !>ar segir Þorsteirm Pálsson um yfiriýsingar ungra framsóknar- manna að þær séu ekkert annað en gelt úr einhverjura framsóknar- hvolpum! Nú er það svo að þegar hvolpar eld- ast verða þeir ýmist að tíkum eða hundum ogþvívifja ýmsir meina að það sé einhver hundur í Steingrími út af ummælum forsæösráðherra. Þá er líka spurning hvar í dýraríkinu flokka megi krata og sjálfstæðis- menn, en sumir ganga s vo langt aö kenna þá við erlend hófdýr, náskyld hestum. Það er hins vegar prýðis- hugmynd að breyta stjómarheimii- inu í dýragarð en síöan Sædýrasafniö fór á hausinn hefur sárlega vantað slíka stoíhun. Það gæti jafrivel stór- lega bætt stöðu rikissjóðs því þeir eru örugglega margir sem vildu borga vel fyrir að sjá framsóknar hvolpa gelta og asnaspörkin í krötum og íhaldi. Lystarleysi Viðhöfumþað fyrirsattað fyrirnokkrum dögumhafi maðurkomið innámatsölu- staðhéríborg ogþeðiðum pizzu.Jafn- framtbaðhann þjóninnumað pizzan yrði skorln í sneiðar fyrir sig áður en hún væri borin fram. „AIvegsjálfsagt,“ sagði þjónninn. „Viltu láta skera hana í þrjár eða sex sneiöar?" „AIis ekki nema í þtjár sneiðar," sagðiþá viðskiptavinurinn. „Égheld ég hafi ekki lyst á nema þremur sneiðum!" Erfið spuming! Einnónefndur nýstúdentfrá Meimtaskóian- umíReykjavík lentiíhálfgerð- tun hrakning- umá muimlega prófinuístærö- fræðiívor. Prófdómarinn lagðifyrirhann spurningu og nemandinn þagði bara þunnu hijóðiog klóraöi sér í kollin- um. Eftir smástund rauf prófdómar- inn þögtiina og sagði: „Finnst yður spurainginerfið?“ „Nei, hreint ekki," sagöi þá nem- andinn. „Spumingin er mjög skiljan- leg. Hins vegar vefst svarið dáliöð fyrir mér!“ Umsjón Axel Ammendrup Fréttir Okuleikni BFO og DV: Fýrsta ökuleikni á Hvammstanga Á Hvammstanga var haldin í fyrsta skipti ökuleikni og hjól- reiðakeppni á dögunum. Þátttakan var ágæt og lenti Bragi Arason í fyrsta sæti í karla- riöli. í kvennariðli lenti í fyrsta sæti Ingibjörg Magnúsdóttir. Bestu tímana í brautinni höfðu Kristinn Björnsson og Ingibjörg. í hjólreiðakeppninni urðu úr- slit þannig að í eldri riðli varö efstur Bryhjar Már Eðvaldsson, í öðru sæti lenti Hlynur Hringsson og í þriöja sæti Friðbjörn ívar Níelsson. Þátttakendur í hjólreiðakeppninni voru ánægðir með úrslitin. í yngri riðli lenti í fyrsta sæti Arnar Karl Bragason, í öðru sæti Ingi Þór Garðarsson og í þriðja sæti Svavar Már Einarsson. Besta tímann í brautinni hafði Arnar Karl Bragason. Ökumenn á Hvammstanga geta verið stoltir af sínum þátttakend- um í ökuleikninni því þeir stóðu sig með prýði. -AG Góð þátttaka í ökuleikni á Húsavík - verður haldin á Akureyri 28. júlí Á Húsavik var haldin ökuleikni og hjólreiðakeppni 19. júní. Ágætis veð- ur var um daginn og var þátttakan með eindæmum góð í ökuleikninni en sæmileg í hjólreiðakeppninni. Freyja Ingólfsdóttir var 150. kepp- andinn í sumar og lenti hún í fyrsta sæti í kvennariðli. Stella Jónsdóttir lenti í öðru sæti og Anna Sigrún Jónsdóttir í þriðja. Besta tímann í kvennariðli hafði Freyja. í karlariðli uröu úrslit þau að í fyrsta sæti lenti Jónas Kristjánsson. í ööru sæti lenti Kristján Eggertsson og í þriðja sæti Sigurgeir Höskulds- son. Besta tímann í brautinni hafði Jónas. í hjólreiðakeppninni voru að- eins tveir í yngri riðli og lenti Arnar Þorvarðarson i efra sæti en Rannveig Guömundsdóttir í því neðra. í eldri riðli lenti Sigurður Hrafnkelsson í efsta sæti og hafði hann besta tímann í braut. í öðru sæti lenti Ólafur Jón Aðalsteinsson en í því þriðja Arnar Matthíasson. Ökuleiknin féll niður á Akryeyri vegna veðurs en veröur haldin þess í staö 28. júlí nk. og verður hún aug- lýst betur síöar. -AG Glæsilegur hópur sem tók þátt i hjólreiðakeppninni. DV-mynd Jóhannes. Ragnar Ingólfsson með besta árangur á landinu til þessa Oddný Birgisdóttir sigraði í kvennaflokki Siguijón J. Sigurösson, DV, ísafiröi: Hin árlega ökuleikni Bindindis- félags ökumanna og DV var haldin á ísafirði nýlega. Ellefu manns kepptu í hinni eiginlegu ökuleikni en einnig keppti fjöldi krakka i hjólreiða keppni og þríhjólakeppni. Ragnar Ingólfsson frá ísafiröi sigr- aði í karlariðli. Náði hann besta ár- angri á landinu til þessa og öðrum besta tíma í braut. Brautina fór hann á 89 sekúndum en besti brautartími Oddný Birgisdóttir sigraði í kvenna- flokki. til þessa er 86 sek. sem keppandi á Egilsstööum náði. Ragnar fékk 114 refsistig. í ööru sæti varö Páll H. Halldórsson á 105 sekúndum með 140 refsistig og í þriðja sæti hafnaði Gunnar Þór Sigurðsson sem fór brautina á 194 sek. og fékk hann 194 refsistig því hann fór villulaust í gegnum brautina. Keppendur í karlaflokki voru sex. í kvennaflokki sigraði Oddný Birg- isdóttir frá ísafirði. Oddný fór braut- ina af miklu öryggi og náði næst- besta árangri á landinu til þessa. Hún var aðeins meö eina villu í brautinni sem er villuminnsti akstur á landinu í kvennariðli til þessa. Oddný ók bratina á 158 sek. og hlaut 193 refsi- stig. í öðru sæti varö Svanfríður G. Bjarnadóttir á 159 sek. með 234 refsi- stig. Og í þriðja sæti varö Bergbnd Friðþjófsdóttir á 170 sek. með 275 refsistig. Úrslit í hjólreiðakeppninni urðu þau að í flokki 12 ára og eldri sigraði Sigurður Páll Ólafsson. Tími hans var 56 sek. og fékk hann 66 refsistig. í öðru sæti varð Ægir Örn Valgeirs- son og Haukur Harðarson í því þriðja. í flokki 9-12 ára sigraði Sæþór Ingi Harðarson á 57 sek. með 57 refsistig. Jóhann Hólm Kárason varð annar og Guðbjartur S. Sveinbjörnsson þriðji. Keppnin á ísafirði var sú 18. í röð- inni af 36 sem eru á keppnisáætlun- inni. Páll H. Halldórsson fullur einbeiting- ar. Hann náði ööru sætinu. Þór sýndi hvernig á að keyra braut- ina. DV-mynd Ágúst Ungtemplari sýndi Dalvík- ingum hvem- igáaðkeyra Ökuleikni og hjólreiðakeppni á Dalvík var haldin við kaupfélagið. Of fáar konur mættu til leiks og gengu bara út tvenn verðlaun þar. í fyrsta sæti lenti Emelía Sverrisdóttir og í öðru sæti Svala Stefánsdóttir. Mikil stemning var í karlariðli og var hart barist viö að ná árangri aðkomumanna en allt kom fyrir ekki. í fyrsta sæti lenti Þór Ólafsson ungtemplari úr Mosfellsbæ og var það hæfni hans og þekkingu aö þakka. í öðru sæti lenti Sverrir Torfason og í því þriðja lenti Sindri Heimisson. í hjólreiðakeppninni var slegist um sætin og lentu tveir í yngri flokki í þriðja sæti. í eldri riðli urðu úrslit þannig að í fyrsta sæti lenti Jóhann Jónsson. í öðru sæti lenti Ágúst Jónsson með besta tímann í braut- inni. í þriöja sæti lenti Einar Sveinn Jónsson. í yngri riðli var Heimir Við- ar Hermannson í fyrsta sæti. í öðru sæti lenti Steingrímur Sigurðsson og í þriöja Bergvin Gunnarsson og Benedikt Sigurbjörnsson, báðir með sama villufjölda. Bestu tímana í ökuleikninni höföu Svala og Sverrir. - AG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.