Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988.
Viðskipti_________________________________________________________________________________dv
Slappt ár hjá tiyggingafélögunum:
Tryggingamiðstöðin græddi mest
en Brunabót var með mesta tapið
Heildarhagnaöur tryggingafélag-
anna á síðasta ári var um 900 þúsund
krónur. Þaö tryggingafélag sem
græddi mest var Tryggingamiðstöðin
hf. en hún skilaði hagnaði upp á 28,9
milljónir króna. Brunabótafélag ís-
lands var með mesta tapið á síðasta
ári eða um 26.9 milljónir króna.
Að sögn doktors Benedikts Jó-
hannessonar. stærðfræðings hjá
Talnakönnun, en fyrirtækið hefur
skoðaö aíkomu og trvggingamarkað-
inn hérlendis á síðasta ári fyrir
tryggingafelögin, eru það fyrst og
fremst bifreiðatryggingarnar sem
valda þessari löku aíkomu trygg-
ingafélaganna á síðasta ári.
„Tapið á bílatryggingunum var um
300 milljónir króna." segir Benedikt.
Á móti högnuðust tryggingafélögin
um 150 milljónir króna á eignatrygg-
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækúrób. 23-26 Sp.lb
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 23-28 Sp.Ab
6mán uppsogn 24-30 Sp.Ab
12 mán uppsogn 26-32 Ab
18mán. uppsogn 39 Ib
Tékkareiknmgar, alm. 9-13 Ib.Sp
Sértékkareikmngar 10-28 Ab
Innlán verðtryggö Sparireikningar
3ja rhán. uppsogn 2 Allir
6 mán. uppsogn 4 Allir
Innlánmeðsérkjörum 20-36 Lb.Bb,- Sp
Innlán gengistryggð
Bandarikjadalir 6-7 Vb
Sterlingspund 7-8 Vb.Ab
Vestur-þýskmork 2,25-3 Ab.Vb
Danskarkrónur 7.25-8.50 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv) 37-39 Vb.Sb,- Úb .
Viöskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 37-41 Sb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 39-42 Lb.Bb,- Sb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 9.25 Vb.lb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 34-41 Vb.Úb
SDR 7.75-8,50 Lb.Úb,- Sp
Bandarikjadalir 9.25-10 Lb.Úb,-
Sp
Sterlmgspund 10-10,75 Úb.Sp
Vestur-þýskmork 5.25-6,00 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 52.8 4.4 á mán
MEÐALVEXTIR
överðtr. júlí 88 38.2
Verötr. júli 88 * 9.5
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala júli 2154 stig
Byggingavísitalajúlí 388 stig
Byggingavisitalajúli 121,3 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 8% 1. júli.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Ávoxtunarbréf 1.5959 .
Einingabréf 1 3.033
Einingabréf 2 1.752
Einingabréf 3 1,901
Fjolþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1.340
Kjarabréf 2,893
Llfeyrisbróf 1.525
Markbréf 1.507
Sjóösbréf 1 1,463
Sjóðsbréf 2 1.283
Tekjubréf 1,428
Rekstrarbréf 1,1571
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 115 kr.
Eimskip . 252 kr
Flugleiðir 231 kr.
Hampiöjan 112 kr.
Iðnaðarbankinn 1 56 kr.
Skagstrendingur hf. 158 kr.
Verslunarbankinn 117 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 123 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavíxla gegn 31 % ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bþ= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir,
Nánari upplýsingar um peningamarkaö-
inn birtast i DV á fimmtudögum.
ingum, sjó- og flugtryggingum, frjáls-
um ábyrgðartryggingum og endur-
tryggingum.
Þá högnuðust tryggingafélögin um
150 milljónir króna vegna lánastarf-
semi á síðasta ári. Þessi hagnaður
vegur upp á móti tapinu og úr verður
900 þúsund króna hagnaður þegar
afkoma allra er lögð saman.
Eigið fé tryggingafélaganna var um
900 milljónir í upphafi ársins 1987 en
hafði skerst lítið eitt í lok ársins
• vegna hinnar lélegu afkomu.
Stærsta tryggingafélagið á íslandi,
Samvinnutryggingar, er með tæp-
lega 22 prósent markaðarins. í næsta
sæti kemur Sjóvá með tæplega 18
prósent og Tryggingamiðstöðin er í
þriðja sæti með um 17 prósent. í
flórða sæti er Brunabót með um 14
prósent. Almennar tryggingar eru í
fimmta sæti með um 12 prósent.
Önnur félög eru með mun minni hlut
af markaðnum. Svona var afkoma tryggingafélaganna á síðasta ári. Fjögur töpuðu, en fimm sýndu hagnað. Stærsta tryggingafélag-
-JGH ið, Samvinnutryggingar, var aðeins með um 200 þúsund króna hagnað. DV-graf Samúel
Afkoma tryggingafélaganna á síðasta ári
milljónir kr.
-30-1-----------------------------------------------.— --------,-----------.----------,-----------,----------
Trygginga- Sjóvá Trygginghf. Reykvísk Samvinnu- Hagtrygging Almennar Abyrgð Brunabót
miðstöðin endurtrygging tryggingar tryggingar
Olís-kort eru ekki
á döfinni
- segir Óli Kr. Sigurðsson
„Þetta er rangt. Ég er ekki að taka
upp nein sérstök kort í bensínvið-
skiptum. Ég hef skoðað þetta dæmi,
eins og menn frá hinum olíufélögun-
um. En það borgar sig ekki. Ég er á
móti öllum kortum," segir Óli Kr.
Sigurðsson, forstjóri Olís, um þaö
hvort fyrirtækið ætli að setja upp
kortakerfi sem felst í því aö viö-
skiptamenn Olís, noti kort og afgreiði
sig sjálflr og samstundis fari upp-
hæðin út af ávísanareikningi við-
komandi í banka hans.
Að sögn Óla kostar svona kerfi tugi
milljóna króna í uppsetningu. „Þetta
er dýrt og borgar sig ekki að mínu
mati.“
-JGH
Níels Einarsson danskennari og tölvuforritari.
Selur íslenskur
danskennari ensku
stórfyrirtæki forrit?
Níels Einarsson, 43 ára danskenn-
ari hjá Nýja dansskólanum og eig-
andi tölvufyrirtækisins Tollmeistar-
inn, er nú í sambandi við enskt stór-
fyrirtæki sem sýnir innflutnings-
skýrsluforriti hans mikinn áhuga
um þessar mundir.
„Það er verið að ræða málin þessa
dagana og fyrst málin eru ekki kom-
in á hreint vil ég ekki tjá mig frekar
um það,“ segir Níels.
Hann hefur ekki aðeins skrifað for-
rit fyrir innflytjendur heldur er hann
þessa dagana að setja á markaöinn
hér innanlands útflutningsskýrslu-
forrit sem sýnir útflytjendum út-
flutninginn, farmbréf, móttökukvitt-
anir, uppruna vottorðs, útflutnings-
leyfi og hvað viðkomandi hafi flutt
út mikið til A í Ameríku og B í Bret-
landi.
-JGH
Samvinnuhreyfingin
stofnar nýtt greiðslu-
kortafyrirtæki
Samvinriuhreyfingin undirbýr
nú stofnun greiöslukortafyrirtækis
í þessum mánuði. Fyrirtækið hefur
til þessa veriö kallað Samkort. Fyr-
ir í landinu eru tvö greiöslukorta-
fyrirtæki, Visa ísland og Kredit-
kort hf. sem er með Eurocard.
Að sögn Halldórs Guðbjarnar-
sonar viðskiptaflræöings, sem hef-
ur unnið að stofnun fyrirtækisins,
er hugmyndin sú að kortið gildi í
verslunum samvinnuhreyfingar-
innar og fyrirtækjum henni skyld.
„Erlendis eru sérstök kort þekkt
hjá stórum fyrirtækjum sem eru
með margs konar starfsemi. Ég
nefiii fyrirtæki eins og Marks og
Spencer í Englandi."
Halldór segir ennfremur að fyrir-
huguöu kortafyrirtæki sé ætlað að
taka til starfa í haust og að kortin
komi þá á markaðinn.
-JGH
Auglýsingastofur
kynna sig og sína
Samband íslenskra auglýsinga-
stofa, SÍA, hefur gefið út athyglisvert
kynningarrit um þær auglýsinga-
stofur sem eru innan sambandsins.
Ritið er forvitnilegt fyrir stjórnendur
og þá sem með auglýsingamál fara
innan fyrirtækja.
„Upplýsingaskylda SÍA felst meöal
annars í því að koma á framfæri
hvaða fyrirtæki eru í sambandinu,
hvernig þau starfa, hvert umfang
þeirra er og hvers konar verkefni
þau hafa fengist við,“ segir Halldór
Guðmundsson, formaður SÍA, í rit-
inu.
-JGH
Búnaðarbankinn:
Nýir stjórar á Hellu
og í Höfðaútibúi
Pétur Magnússon, sem verið hefur
útibússtjóri Búnaðarbankans á
Hellu síðustu níu árin, er orðinn úti-
bússtjóri í Höföaútibúi bankans á
Ártúnshöfða. Útibúið er í húsakynn-
um Prentsmiðjunnar Odda.
Áður en Pétur hélt til Hellu var
hann útibússtjóri í Melaútibúi á Hót-
el Sögu. Pétur er 49 ára.
Við starfi Péturs á Hellu tekur
Björn Sigurðsson en hann hefur
unnið um árabil í aðalbanka Búnað-
arbankans, síðast sem forstöðumað-
ur lánadeildar. Björn er 41 árs. -JGH
Hótel Saga:
Friðrik í stað Bjama
Friörik Eysteinsson rekstrarhag-
fræöingur hefur verið ráðinn mark-
aðs- og fjármálastjóri á Hótel Sögu.
Friðrik er 28 ára og er hagfræöingur
frá Bandaríkjunum. Hann kemur á
Sögu í stað Bjarna Sigtryggsonar
aðstoöarhótelstjóra sem hefur verið
ráðinn upplýsingafulltrúi fjármála-
ráðuneytisins.
Friðrik hefur að undanfórnu starf-
að við Hótel Óðinsvé sem aðstoðar-
maöur Bjarna Árnasonar, eiganda
hótelsins, en hann er raunar betur
þekktur sem Bjarni í Brauðbæ.