Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Page 9
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. 9 IMönd Iranar hóta hefndum íranar hafa heitið stríði gegn Bandaríkjunum fyrir að hafa skotið niðui* íranska farþegaþotu með tvö hundruð og níutíu farþega innan- borðs. Reagan Bandaríkjaforseti kvaðst í gær ekki útiloka hefndarað- gerðir fyrir það sem hann kallaði hörmulegt en skiljanlegt slys. Útvarpið í Teheran í íran sagði aö árásarinnar yrði hefnt á jafnblóðug- an hátt. Khomeini, andlegur leiðtogi írans, sagði í gær að allir Iranar ættu að þyrpast til vígvallarins til þess að heyja stríö við Bandaríkjamenn og stuðningsmenn þeirra. Bandarískir sérfræðingar eru nú á leið til Persaflóa til að rannsaka hvers vegna radar bandarísku frei- gátunnar Vincennes, sem skaut nið- ur írönsku farþegaþotuna í þeirri trú að um orrustuþotu væri' að ræða, skynjaði ekki mun á stórri farþega- þotu og lítilli orrustuþotu. Banda- ríkjamenn fullyrða að farþegaþotan hafi ekki verið á venjulegri flugleið en íranar fullyrða hið gagnstæða. Skipstjóri bandarísku freigátunnar segist einn bera ábyrgð á árásinni og að hann muni það sem eftir er ævinnar þurfa að bera þessa byrði. Hann kvaðst hafa skotið niður þot- una til þess aö vemda skip sitt og áhöfn. Flugmaður, sem oft flaug þeirri vél er skotin var niður, sagðist í gær venjulega láta sem vind um eyrun þjóta köll frá bandarískum herskip- um sem biðja flugmanninn um að gera grein fyrir sér og ferðum vélar- innar. Annar flugstjóri, sem síðast flaug þotunni þann 17.júní síðastlið- inn, sagði í viðtah við breskt blaö í Reagan Bandarikjaforseti kvað á- rásina vera hörmuleg mistök en skiljanleg. Simamynd Reuter gær að skipstjóri freigátunnar hefði átt að vita að um farþegavél var að ræða. Hann sagði að radarsendingar væru svo miklar á þessu svæöi að þeir svöruðu aldrei. í Bretlandi hafa menn áhyggjur af því að árásin á farþegaþotuna geti haft þær afleiðingar að staða þeirra vestrænu gísla, sem era í haldi hjá mancræningjum, versni. Almennt er áhtið að þeir séu í haldi hjá þjóð- varðliðum í Líbanon sem hliöhollir eru írönum. Tveir breskir gíslar og einn bandarískur voru drepnir í Líb- anon eftir að Bandaríkjamenn gerðu loftárás á Líbýu árið 1986. í gær efndu þrjú þúsund þjóðvarð- liðar í Hizbollah samtökunum til mótmælagöngu í borginni Baalbek vegna árásarinnar á farþegaþotuna á sunnudaginn. Ráðamenn í Banda- ríkjunum búast við hefndaraðgerð- um og hafa sent viðvörun til allra sendiráða sinna. Pravda, málgagn sovéska komm- únistaflokksins í Sovétríkjunum, lýsti í morgun árásinni sem hryðju- verki og hræðilegum glæp. Sagði-í blaðinu að komið heföi í ljós hættan af staðsetningu bandarískra her- manna langt fyrir utan landamæri Bandaríkjanna. Skrifin í Pravda voru miklu haröari en þau sem sov- éska fréttastofan Tass birti í gær. íranski fáninn í hálfa stöng fyrir utan sendiráð írans í París. Símamynd Reuter Bandaríkjamenn væru á Persaflóa til að stuðla að friði. Bandarískir stjómmálamenn og báðir forsetaframbjóðendumir virt- ust í gær standa sameinaðir aö baki þeirri skoðun Reaganstjómarinnar að árásin á farþegaþotuna hefði verið hörmuleg mistök en óhjákvæmileg. írönsk yfirvöld hafa farið fram á neyðarfund Alþjóða flugumferðar- ráðsins til að rannsaka aðdraganda árásarinnar. Skipaumferð á Persaflóa lá að miklu leyti niðri í gær þar sem menn óttuðust ný átök milli bandaríska flotans og írana. Mikil spenna ríkti á svæðinu og sagt er aö fleiri herskip en kaupskip hefðu siglt inn í flóann. í Dubai söfnuðust syrgjendur sam- an í gær þegar minnst var þeirra er fómst í flugskeytaárásinni. Mikillar reiði gætti og hrópuöu menn hefnd- arorð gegn Bandaríkjunum. Mörg fómarlambanna bjuggu i Dubai og missti einn aðili samtals tíu ættingja og annar ellefu. Reuter Breskur sjóliði svipast um eftir tundurduflum á Persaflóa eftir hefndar- hótanir irana. Simamynd Reuter Lögreglumaður f Toronto í Kanada ógnar mótmælanda með kylfu eftir að hafa slegið hann niður. Efnt var til mótmæla í borginni vegna flug- skeytaárásar Bandaríkjanna á ír- anska farþegaþotu. Símamynd Reuter í Pravda sagði að þaö væri fárán- legt að taka góöa og gilda þá fullyrð- ingu Reagans Bandaríkjaforseta að Bandaríkjamenn héldu upp á þjóðhátiðardag sinn i gær með til- heyrandi flugeldasýningum. Símamynd Reuter Viðræður um Aouzousvæðið Tsjad og Líbýa hafa frestaö þang- að til á fimmtudag viöræðum um hvernig leysa megi landamæra- deilu ríkjanna sem staöiö hefur yfir í flmmtán ár. Viöræður þessar era þær fyrstu milli utanríkisráð- herra landanna frá því að Líbýa bauð fram sáttahönd í maí. Við- ræðurnar munu fara fram i Gabon. Báðir deiluaðilar krefjast yfir- ráöa yfir rúmlega hundraö þúsund ferkílóraetra svæði sem kallað er Aouzou. Hermenn frá Líbýu hafa haft aðsetur þar síöan 1973. Flugeldar á þjóðhátíð Bandaríkjamenn skutu flugeld- um á loft í gær, á þjóÓhátíöardegi sínum, þrátt fyrir þurrka sem ekk- ert lát virðist vera á. Reyndar ríkti sums staðar bann við aö kveikja í flugeldum vegna þurrkanna, meðal annars í úthverfum Chicago. Þar um slóðir vom menn ekki í hátíöarskapi því allt útlit er fyrir að enga uppskeru verði að fá ef ekki rignir næstu tvær vikurnar. í Kanada em bændur uggandi þar sem spáö er þurrkum og mikl- um hitum þessa viku. Gaddafi eins og Lurie sér hann. Staðfesta upplýsingafrelsi Lengst til hægrí má sjá Mikhail Gorbatsjov á tali við meðlimi fram- kvæmdastjómar kommúnistaflokksins i Sovétrikjunum. Simamynd Reuter Samkvæmt ákvörðunum, sem birtar vom í gær, staðfestir sovéski kbmmúnistaflokkurinn réttindi allra sovéskra borgara til þess að ræða og birta opinberlega það sem þeim býr í hug. Sovéska fréttastofan Tass skýröi frá því í gær að lögö væri áhersla á að „opnun“ ætti að ríkja á öllum sviðum í Sovétríkjunum. Sérstök áhersla var lögð á hlutverk fjölmiðla. Þaö voru nokkrir fúlltrúar á ráöstefnunni sem tóku upp hlutverk fjöl- miðla. Kvörtuðu þeir undan ónógum og röngum upplýsingum í sovéskum fjölraiðlum. íhaldssamari ræðumenn sökuðu fjölmiðla um ábyrgöarleysi. í ákvörðun kommúnistaflokksins var einnig varaö við misnotkun „opn- unarinnar". Fjöldamorð í Kólumbíu Tvo daga í röð hafa fjöldamorð verið framin í Kólumbíu. í gær fundust ellefu bændur myrtir og fjórir særðir í Boyacahéraöi í norð- austurhluta landsins. Sólarhring áður myrtu byssufnenn sautján bændur í nálægt borginni Castillo í Meta héraði fyrir suöaustan höf- uðborgina, Bogota. Aö sögn embættismanna þar virt- ist sem byssumennimir hafi farið mannavillt. Ekki er vitað um orsakir fjölda- moröanna en stjórnmálasérfræö- ingar segja að margir bændur hafi á þessu ári verið myrtir af dauða- sveitum hægri manna sem gmna bændur um aö styðja flokk þjóð- emissinna sem á upptök sín í röð- um vinstrisinnaðra skæruliða. Mótmæli í Panama Hópur nemenda í Panama efhdi til mótmæla í gáer gegn stefnu stjómar- innar og Bandaríkjunum á meðan Bandaríkjamenn í Panama héldu upp á þjóðhátíöardag sinn i nærliggjandi herstöð. Gengu nemendur eftir breiðgötu og stöðvuðu umferö með þvi að fleygja rasli og grjóti út á götuna. Mótmælin fóra fram um morguninn og stöðvaö- ist umferð í tvær klukkustundir. Lögreglan átti friösamlegar viðræður við mótmælendur sem síðan héldu heim á leið. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.