Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Qupperneq 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. Sviðsljós Ólyginn sagði... Joan Collins sprakk hreinlega þegar framleið- endur Ðynastyþáttanna til- kynntu að breska leikkonan Stephanie Beacham fengi hlut- verk í þáttunum. Er ætlunin að Stephanie leiki kvenmann sem er svipuð manngerð og Alexis. sem Joan leikur. Hafa vinsældir Dynasty minnkað og halda fram- leiðendur að stríð milli Joan og Stephanie muni aftur laða að áhorfendur. Bruce Willis fyrirskipaði aðstoðarmanneskju aö katipa blóm handa einum mót- leikara sinna þar sem hann var nýkominn úr hjartaaðgerð. Þegar svo reikningurinn fyrir blómun- um kom fauk í Bruce því reikn- ingurinn hljóöaöi upp á 22.500 krónur. Sagði þá eiginkona Bruce að hún hefði ekki viljað að aum- ingja manneskjan héldi að þau væru nisk svo hún lét senda henni sjaldgæf blóm frá Hawaii. Svaraöi þá Bruce að fyrir þennan pening gæti hann flogið til Hawa- ii og ræktaö blómin sjálfur. Elísabet Taylor er nú í skýjunum yfir gjöf frá milljónamæringnum Malcolm Forbes. Mun gjöf sú vera stærri og meiri og jafnframt dýrari en fjólubláa Harley-Davidson mót- orhjóliö sem hann gaf hetmi eitt sinn. Að þessu sinni ætlar hann nefnilega aö gefa henni eyju í Miðjarðarhafinu. Það munar ekki um það! Eiginkona lionels Ritchie handtekin Eiginkona Lionels Ritchie, Brenda, var handtekin af lögreglunni í Los Angeles um þrjúleytið aðfaranótt 29. júní fyrir líkamsmeiðingar og þar á meðal fyrir að sparka í maga eigin- manns síns. Að sögn lögreglunnar var hún köll- uð til fjölbýlishúss í Beverly Hills eftir að nokkrir nágrannar höfðu til- kynnt að þeir heyrðu neyðaróp kven- manns. Þegar lögreglan kom svo á staðinn sá hún Brendu Ritchie og aðra konu, Diane Alexander, veltast um á gólfinu í hörkuslagsmálum og virtist Brenda hafa betur í þeirri við- ureign því hún barði ákaft á Diane. Það var því ekki um annað að gera fyrir lögregluna én að skilja konurn- ar að og tókst það þrátt fyrir litla hjálp frá hendi Brendu. Fórnarlamb Brendu mun hafa kvartað undan verkjum og áverkum á hálsi, andliti og höfði. Ekki mun Brenda hafa látið sér barsmíðarnar nægja heldur mun hún hafa sett íbúðina á annan endann og braut Grammyhafinn Lionei Ritchie með eiginkonu sinni, Brendu, hér við frumsýn- ingu Vesalinganna í Los Angeles. Brenda hefur nú verið ákærð fyrir að hafa sparkað í maga eiginmanns sins og fyrir að hafa barið heldur hressi- lega á tuttugu og tveggja ára konu, Diane Alexander, eftir að hún kom að þeim saman í íbuð Diane. hún meðal annars flestar rúður í henni. Hinn heimsfrægi eiginmaöur Brendu, Lionel Ritchie, en lög hans hafa flest náð hátt á vinsældalistum, hringdi síðar í lögregluna og sagði frá því að hann hefði einnig veriö í íbúð- inni en farið þegar eiginkonan, sem hann er búinn að vera kvæntur í 12 ár, réðst til inngöngu í íbúðina. Hann kvartaöi yfir því að hún heföi spark- að í magann á honum. Brenda Ritchie varð því að láta sér nægja að sitja bak við lás og slá í um fjóra tíma fyrir líkamsmeiðingar, skemmdarverk, að hafa farið í heim- ildarleysi inn á eign annarra og fyrir að hafa veitt viðnám þegar taka átti hana höndum áður en henni var sleppt gegn 225.000 króna tryggingu. Ekki hefur verið ákveðið hvort all- ar þessar ákærur verða notaðar gegn henni eða hvort sumar þeirra verða felldar niður. Ekki hefur heldur komið fram hvað Lionel Ritchie var að gera í íbúð Diane Alexander á þessum ókristilega tíma. Hestaleiga vinsæl í sveitinni Flestir kannast sjálfsagt við Bjarnastaði vegna söngsins um Bjarnastað'abeljurnar. Nú vekur hins vegar hestaleiga, sem þar er staðsett, meiri athygh ferðamanna sem keyra um Borgarfjarðarsýslu. Hestaleigan er eingöngu starfrækt á sumrin og hefur svo verið frá 1970. Hægt er að velja úr 14 hestum og að sögn Hrafnhildar Guðmundsdóttur, sem sér um hestaleiguna, eru það allt saman rólegir og góðir hestar sem henta öllum. Hrafnhildur sagði að margir nýttu sér hestaleiguna og það væri alls konar fólk sem skryppi á bak. Hest- urinn er leigður í klukkutíma og er þjónustan mjög vinsæl af ljölskyldu- fólki, einkum þar sem boðið er upp á barnagæslu á meðan foreldrarnir þeysa út um grænar grundir. Eru börnunum sýnd dýrin á bænum en auk hestanna eru á Bjarnastöðum bæði kindur og kýr, kanínur og hæn- ur. Það eru íslendingar sem eru iðn- astir við að nýta sér hestaleiguna en þó er eitthvað um að útlendingar njóti krafta þarfasta þjónsins. Auk hestaleigunnar og annars búskapar eru tjaldstæði og sumarhús í landi Bjarnastaða en heimamenn sögðu að bændur færu út í slíkt til að bjarga sér vegna kvótans. -JFJ Hrafnhildur Guðmundsdóttir sér um hestaleiguna á Bjarnastöðum. Hér er hún með einn af gæðingunum sem ferðamönnum er boðið að leigja í klukkutíma. Knáir hestamenn þeysa heim hlaðið á Bjarnastöðum eftir vel heppnaðan útreiðartúr. DV-mynd JAK Móðir Stallones lætur allt flakka Það má með sanni segja að Syl- vester Stallone eigi kjaftagleiða móöur. Hún hefur hingaö til verið óspör á yfirlýsingar um fylgikonur sonar síns og er frægt oröið hvern- ig hún talaöi um fyrrum eiginkonu hans, Brigitte Nielsen. Sagði hún m.a. að hún hefði verið hrædd um að brjóst Brigitte gætu sprungiö ef við þau væri komið. Nú hefur kella upplýst allt um það hvernig hún fylgi stjörnunum og er hún þá komin í hóp ekki ómerkara fólks en forsetahjóna Bandaríkjanna. Jackie Stallone, en það heitir hún, sagði að stjörnurn- ar heföu mikil áhrif á þaö hvort henni félli vel viö fólk eða ekki og trúir hún mjög á mátt stjörnum- erkjanna. Sagði hún t.d. aö ef hún vildi hafa samneyti viö ástríðufull- an mann þá veldi hún mann í sporðdrekamerkinu og ef hún vildi mann sem ekki mundi berja á henni þá veldi hún mann í meyjar- merkinu eða fiskamerkinu. Jackie bætti svo við aö faðir Syl- vesters hefði verið meyja og versti Mörgum finnast mæður þeirra vera afskiptasamar og kjaftagleið- ar en fáir eiga þó mæður sem komast með tærnar þar sem Jackie Stallone hefur hælana og hefur sonur hennar oft mátt liða fyrir yfirlýsingar hennar. elskhugi í heimi. Sylvester Stallone mun þá hafa sagt: „Nú veit ég af hverju pabbi yfirgaf hana. Mér þykir vænt um mömmu en ég hef sagt henni aö halda sig á mottunni í framtíðinni." Borðaðu fleiri borgara strákur! Svokallað ruslfæði ,junk food“ hefur aldrei átt upp á pallboröið hjá matvælafræðingum, en barnalækn- ar á sjúkrahúsi nokkru í London mæla mjög með því við sjúklinga sína. Aaron Cirullo er 15 ára gamall nýrnaþegi og má hann borða eins mikiö af þessu fæði, borgurum og frönskum, og drukkiö eins mikið af gosi og hann getur í sig látið. Þetta er þó allt gert til að auka matarlyst hans, því nýrnaþegar hafa tilhneig- ingu til að borða ákaflega lítiö Stráksi er auðvitað alveg hæst- ánægður með fæðið og sagði að hann mætti jafnvel fá mjólkurhristing til að bæta á sig kílóum. Clint Eastwood sést nú æ oftar með eftirmanni sinum, Jean Grace, hinum 52 ára gamla borgarstjóra í Carmel. Clint er fjórum árum eldri. Astfanginn af eftirmanni sínum Chnt Eastwood er nú kominn með nýja upp á arminn. Er konan sú frá- skilin og þriggja barna móðir og tók við af honum sem borgarstjóri í Car- mel í Kaliforníu. Smám saman hefur verið að kólna milli leikarans fræga og leikkonunn- ar Sondru Locke, sem hann hafði verið með í dálítinn tíma, og nú er svo komið að þau sjást aðeins endr- um og eins. Clint eyðir á hinn bóginn meiri og meiri tíma með konunni sem hann er sagður hafa valiö sem eftirmann sinn í starfi, Jean Grace. Jean þessi er laus við alla tilgerð og prjál sem einkennir svo marga í Hollywood, aftur á móti er hún gáf- uð, áhugaverð, hlý, hefur gott skop- skyn og heldur sig á jörðinni. Hún þykir því hafa einhverja þá kosti sem Clint Eastwood leitar að hjá konum. í byrjun hófst samband þeirra á sam- eiginlegum áhuga þeirri á að gera bæ þeirra betri en það þróaðist svo yfir í ástarsamband. Þegar Clint ákvað að gefa ekki kost á sér aftur sem borgarstjóri Carmel þá veitti hann Jean allan stuðning sinn og er sagt að í raun hafi Clint verið endurkjörinn því hann vildi Jean sem eftirmann sinn. Clint var geysilega vinsæll í embætti og sendi um 2.000 bréf til bæjarbúa þar sem hann lagði áherslu á aö þeir kysu Jean. Hefur því verið sagt aö hún hafi verið kosin í skjóli hans. Clint er sagöur geta valið úr kven- fólki en hann hefur greinilega kosið. Hann hefur nú sést með Jean í ótal veislum og matarboðum og hann kemur og fer með henni. Hún hlýtur því aö hafa eitthvað sem Clint fellur i geð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.