Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Side 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988.
Lífsstfll
Ólafur Sigurðsson matvælafræóingur skrifar um Amygdalin:
í Þjóðviljanum fóstudaginn 3.
júní birtist athyglisverð grein um
undraefni sem inniheldur B-17 vít-
amín (sem er reyndar ekki vítam-
ín). Undraefnið, sem um er rætt, á
að geta læknað krabbamein sam-
kvæmt rannsóknum dr. Emst T.
Krebs o.fl. Einnig er vitnað í bók
Jóhannesar Bjöms Lúðvíkssonar,
„Falið vald", þar sem gefið er í skyn
að liklega sé „læknamafían" að
hindra almenna lækningu krabba-
meins með þessu lyfi til að geta
fengið billjónir í einskis nýtar
krabbameinsrannsóknir. Þessi
fullyrðing byggir á því að ef
krabbamein er hörgulsjúkdómur
vegna áðurnefnds „B-17" vítamíns-
skorts þá eru hefðbundnar krabba-
meinsrannsóknir til einskis.
Greinarhöfundur gagnrýnir
einnig þekktan krabbameinslækni
hérlendis fyrir „áhugaleysi á þeim
kenningum að krabbamein stafi af
óheilsusamlegu líferni". Einnig ber
greinarhöfundur fram nokkrar
spurningar til læknisins til fróð-
leiks fyrir almenning. Sú síöasta
þeirra, „Treystir sér einhver til
þess að reka málflutning og tilvitn-
anir Jóhannesar Björns til föður-
húsanna?", er athugunar verð.
í nokkrum yfirlitsgreinum um
óhefðbundnar lækningar er greint
frá fjölda rannsókna á amygdalin.
Greint er frá því að efnið hefur
valdið miklum deilum og virðast
ýmsir reiðubúnir til að leggja á sig
mikið erfiði til að fá það þar sem
það er viða bannað. Sumir hafa
farið til svonefndra „laetrile"
stofnana („krabbameins-klinik") í
öðrum heimsálfum til að fá lækn-
ingu.
Astæðan fyrir vítamín-nafnbót-
inni er talin vera sú að þannig
megi ganga fram hjá lögum sem
takmarka notkun amygdalins (la-
etrils) sem lyfs.
Kenningin á bak við virkni laetr-
ile er sú að í krabbameinsfrumum
er lífhvati (B-glucosidase) sem los-
ar blásýru úr laetrile og drepur þar
Neytendur
með krabbameinsfrumuna. Gall-
inn er bara sá að aðrar frumur
innihalda jafnvel meira af lífhvat-
anum og drepast engu að síður. Eru
fjölmörg dæmi þess að fólk hafi
komið til læknis fársjúkt og nær
dauða en lífi af blásýrueitrun
vegna notkunar „B-17 flörvans"
sem er í amygdalin (laetrile).
Dauðsfóll hafa einnig verið staðfest
og tilraunadýr látast gjarnan í stór-
um stíl.
Allir • sérfræðingar, sem hafa
rannsakað efnið (skv. heimildum
undirritaðs), virðast vera á sama
máli um að það lækni ekki krabba-
mein á nokkurn hátt. Gildir einu
hvort það er í formi apríkósusteina
eða unnið úr amygdalinríkum hrá-
efnum sem nefnast m.a. laetrile.
Einn næringarfræðingur tekur svo
til orða: „Raunverulega harmsagan
á bak við laetrile er sú að fólk með
krabbamein, sem var hægt að
lækna, trúði á og notaði efnið og
hafnaði hefðbundinni meðferð þar
til það var of seint að bjarga því.“
Á öðrum stað er vitnað í virta
breska læknaritið „New England
Journal of Medicine" (Morse, ’79,
301, 892). í grein, sem nefnist
„Meira um blásýrueitranir af völd-
um laetrile", er staðfest aö fólk í
áðurnefndum laetrile-stofnunum
fái blásýrueitranir.
Það er því kannski ekki að
ástæðulausu að rannsóknarmenn
telji sig geta tekið sterkt til orða
þegar þeir fullyrða: „Þegar laetrile
er notað af krabbameinssjúkling-
um lengir það ekki lífið heldur
styttir það.“
Ekki er víst aö þessi grein svari
spurningum áðurnefnds greinar-
höfundar, Sveins Baldurssonar, né
heldur er víst að hún „afsanni
kenninguna”.
En það sem mest er um vert er
að lesendur geti betur áttað sig á
því'hvað um er að ræða þegar ver-
ið er að hvetja til neyslu apríkósu-
steina, laetrile og fleira í þeim dúr.
Heimildir: M.N.G. Dukes. Remedi-
es used in non-orthodox medicine
1979, vol. 3, bls. 391 og sama 1980
vol. 4, 344-345.
•WÍiliWI*
Enn eru i notkun nokkrar ævagamlar eldavélar hér á landi. Þessi verður þó varla notuð meir.
Seatone:
í Danmörku hafa komið fram há-
værar kröfur um að tekiö verði upp
strangt eftirlit með svokölluðum
náttúrulyfjum. Þettp gerist í kjölfar
þess að 55 ára gömul kona hafði nær
látið lífið vegna neyslu á lyfinu Sea-
tone.
Seatone hefur mjög rutt sér til
rúms í Danmörku að undanfomu.
Það kemur frá Nýja-Sjálandi og mun-
vera unnið úr sérstakri gerö krækl-
inga. Auglýst verkan þess er sú sama
og annarrá áþekkra lyfja. Það á að
vera gott við þreytu og sleni og valda
almennri vellíðan og hressleika.
En lyfið hefur aukaverkanir. 55 ára
gömul kona í Danmörku hóf að taka
lyfið. Ástæðan var þreyta og slapp-
leiki. Eftir að hafa tekið lyfið um
nokkurra mánaða skeiö kom í ljós
að lifur konunnar hafði skaddast
verulega.
Læknir hennar reyndi aö finna
orsökina en gekk illa. Konan hafði
ekki verið á ferðálagi erlendis, ekki
bar á aö aðrir fjölskyldumeðlimir
væm sjúkir og ekki var um misnotk-
un á lyfjum eða áfengi að ræða.
Þegar konan hætti að taka Seatone
batnaði henni skyndilega. Læknar
segja að ef hún hefði ekki hætt að
taka pillurnar hefðu þær dregið hana
til dauða.
Lyfið fæst ekki hér á landi, enn að
minnsta kosti.
-PLP
Náttúrulyfið sem nær varð konu að
bana
Munið að senda inn
upplýsingaseðilinn
Neytendablaðið
Eldavélar
elda og elda
Af þeim Rafha eldavélum sem
orðnar eru 16 ára eða eldri hefur
aldrei þurft að gera við 83%. Rafha
er jafnframt langalgengasta gerð
eldavéla á íslenskum heimilum.
Þetta kemur fram í nýútkomnu
Neytendablaði. í blaðinu eru birtasr
niðurstöður notendakönnunar Neyt-
endasamtakanna á eldavélum. í
könnuninni var rætt við eigendur
1540 eldavéla og þeir inntir eftir
reynslu sinni af eldavélum.
Fimm vörumerki virðast seljast
öðrum betur hér á landi. Þau eru
Rafha, AEG, Siemens, Husqvama,
og Electrolux. Þessar gerðir voru til
á 78% heimila.
í 507 tilfellum var Rafha eldavél á
heimilum aðspurðra. Þetta gerir Raf-
ha að langalgengustu eldavél á ís-
landi. AEG fylgdi langt á eftir, en 252
aðspurðra reyndust eiga slíka vél.
Menn reyndust misánægðir með
vélar sínar. 8% eigenda sögðust ekki
geta mælt með Rafha eldavélum,
meðan 73% vom mjög ánægðir.
Einn af hundraði reyndist óánægður
með þjónustu seljenda.
Af ÁEG eigendum reyndist enginn
óánægður með þjónustu seljenda. Þó
vom 2% óánægð með sína vél, og 5%
sögðust ekki geta mælt með AEG vél.
Allar nánari upplýsingar er að
finna í Neytendablaðinu. -PLP
Upplýsingaseðill
til samanburðar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?.
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnað-
ar fjölskyldu af sömu stœrð og yöar.
Nafn áskrifanda
Heimili
Sími
Fjöldi heimilisfólks______
Kostnaður í júní 1988:
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.