Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Side 35
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988.
35
Fólk í fréttum
Biigir ísleifur Gunnarsson
Birgir ísl. Gunnarsson mennta-
málaráðherra hefur verið í fréttum
vegna deilna um veitingu lektors-
stöðu við HÍ. Birgir Isleifur er
fæddur 19. júh 1936 og lauk lög-
fræðiprófi frá HÍ 1961. Hann varð
hdl. 1962 og hrl. 1967 og var fram-
kvæmdastjðri Sambands ungra
sjálfstæðismanna 1961-1963. Birgir
rak eigin lögmannsstofu í Reykja-
vik 1963-1972 og var borgarstjóri í
Reykjavík frá desember 1972 til maí
<1978. Hann hefur verið í stjórn
Landsvirkjunar frá 1965 og var
formaður stóriöjunefndar 1983-
1987. Birgir hefur verið í flugráði
frá 1962 og formaður sérstakrar
nefndar til að vinna að áætlun um
uppbyggingu flugvalla 1984-1986.
Hann var formaður Heimdallar,
FUS, 1959-1962 og var í stjórn Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna
1961-1969, formaður 1967-1969.
Birgir var borgarfulltrúi í Reykja-
vík 1962-1982 og jafnframt í borgar-
ráði. Hann hefur verið formaður
framkvæmdanefndar Sjálfstæöis-
flokksins frá 1978 og setið í mið-
stjórn Sjálfstæöisflokksins frá 1973.
Birgir hefur verið alþingismaöur
Reykvíkinga frá 1979 fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og menntamálaráð-
herra frá júlí 1987.
Birgir giftist 6. október 1956 Sonju
Backman, f. 26. ágúst 1938, ritara í
skóla ísaks Jónssonar. Foreldrar
hennar eru Ingimar Karlsson, mál-
arameistari í Reykjavík, og Alda
Carlson, húsmóðir í New York.
Börn Birgis og Sonju eru: Björg
Jóna, f. 24. febrúar 1957, kennari í
Rvík, gift Bjarna Haraldssyni, sem
starfar við flugumferðarstjórn, og
eiga þau tvö börn; Gunnar Jóhann,
f. 19. október 1960, hdl. í Rvík, giftur
Soffiu Thorarensen, og eiga þau tvö
böm; Lilju Dögg, f. 17. október 1970
og Ingunni Mjöll, f. 17. október 1970.
Systir Birgis er Lilja Jóhanna, f.
1. október 1940, gift Stefáni Guð-
laugssyni, kennara í Rvík, og eiga
þau þrjú börn.
Foreldrar Birgis eru Gunnar
Espólín Benediktsson hrl. og kona
hans, Jórunn ísleifsdóttir. Föður-
systur Birgis voru Benedikta og
Margrét, móðir Benedikts Jónsson-
Birgir ísl. Gunnarsson.
ar, byggingastjóra Frjálsrar fjöl-
miðlunar. Föðursystir Birgis, sam-
feðra, var Sigríður, amma Gunnars
Guðmundssonar, prófessors í
læknisfræði, og langamma Guð-
mundar Magnússonar, aðstoðar-
manns menntamálaráöherra. Ann-
ar fóðurbróðir Birgis, samfeðra,
var Hallgrímur, prentslniðjustjóri
hjá Gutenberg.
Faðir Gunnars var Benedikt,
gullsmiður á Laxnesi í Mosfells-
sveit, Ásgrímsson, b. á Laxnesi,
Jónssonar, b. á Laxnesi, Eyjólfs-
sonar. Móðir Benedikts var Sigríð-
ur, systir Jóhanns, fóður Ólafíu,
rithöfundar og kvenréttindakonu.
Sigríður var dóttir Benedikts,
prests á Mosfelli, sem Messan á
Mosfelli eftir Einar Benediktsson
er ort um, bróður Þórdísar,
langömmu Árna, afa Árna Johnsen
blaöamanns. Benedikt var sonur
Magnúsar, klausturhaldara í
Þykkvabæjarklaustri, Andrésson-
ar og konu hans, Helgu Ólafsdótt-
ur, systur Ingibjargar, langömmu
Guðmundar, afa Guömundar í.
Guðmundssonar ráðherra og lang-
afa Davíðs Á. Gunnarssonar, for-
stjóra ríkisspítalanna, og Hauks
Helgasonar, aðstoðarritstjóra DV.
Móðir Gunnars var Lilja Jó-
hanna Gunnarsdóttir, útvegsbónda
í Eyrarkoti í Vogum, Jónssonar og
konu hans, Guðnýjar Guömunds-
dóttur.
Faðir Jörunnar var ísleifur, skip-
stjóri og fiskmatsmaður í Hafnar-
firöi, Guömundsson, b. í ívars-
. húsum í Garði, bróður Gunnvarar,
móður Gunnars M. Magnúss rit-
höfundar. Guðmundur var sonur
Árna, b. og hreppstjóra á Meiða-
stöðum í Garði, Þorvaldssonar.
Móðir Jórunnar var Björg, systir
Björns, afa Björgvins bankastjóra
og Björns Vilmundarsona. Björg
var dóttir Gísla, sjómanns á Bakka
við Rvík, Björnssonar, á Bakka,
bróður Jakobs, langafa Birgis
Þorgilssonar ferðamálastjóra og
Sigrúnar, konu Matthíasar Á. Mat-
hiesen ráðherra. Björn var sonur
Guðlaugs, b. á Hurðarbaki í Kjós,
Ólafssonar, b. á Huröarbaki,
ísleifssonar, bróður Jóns í Stóra-
Botni, langafa Vigdísar, ömmu Sig-
mundar Guðbjarnasonar háskóla-
rektors. Jón er einnig langafi Ingi-
bjargar, ömmu Þórðar Harðarson-
ar prófessors og langömmu Flosa
Ólafssonar leikara. Móðir Björns
var Margrét Torfadóttir, b. í Ána-
naustum, Jóhannssonar, bróður
Sigurðar, langafa Klemens landrit-
ara, fóður Agnars, fyrrv. ráðuneyt-
isstjóra.
Afmæli
Olafur Agúst Jóhannesson
Eriingur Guðmund-
ur Axelsson
Ólafur Ágúst Jóhannesson blikk-
smiöur, Heiðargerði 82, Reykjavík,
er sextugur í dag.
Ólafur fæddist að Brekkum í
Mýrdal og ólst þar upp til tíu ára
aldurs er hann flutti að Hvqli í
Mýrdal. Liðlega tvítugur hóf Ólaf-
ur nám í Nýju blikksmiöjunni og
árin 1951-1953 var hann jafnframt
í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann
tók sveinspróf 30. nóvember 1954
og hélt áfram hjá Nýju bhkksmiðj-
unni allt til nóvemberloka 1962 en
tók þá við starfi í Blikk og stál og
var þar í fjögur ár. Ólafur vann um
nokkurra mánaða skeið á árinu
1966 hjá J.B. Péturssyni en stofnaði
Blikksmiöjuna hf. 24. september
sama ár. í ár hætti Ólafur störfum
hjá Bhkksmiðjunni.
Ólafur hefur starfað að félags-
málum á ýmsum sviðum. Hann var
í stjórn Félags blikksmiða í nokkur
ár, var í sveinsprófsnefnd blikk-
smiða, einnig í Iðnráði Reykjavík-
ur. Þá var hann í fræðslunefnd
Félags blikksmiðjueigenda.
Ólafur var sæmdur gullmerki
Félags blikksmiða fyrir stjórnun-
arstörf.
Ólafur kvæntist 12. des. 1965
Ólafur Ágúst Jóhannesson.
Kristínu dóttur Þórarins Dósóþe-
ussonar, bónda í Þernuvík, og
Halldóru Guðjónsdóttur, konu
hans. Börn Ólafs og Kristínar eru
Halldóra, f. 1. maí 1966, og Helga,
f. 25. janúar 1968. Stjúpsonur Ólafs
er Jón Helgi Hjartarson, f. 20. ágúst
1960.
Systkini Ólafs eru: Jóhanna, f.
1919; Jóhannes Óskar, f. 1920; Elín
Ágústa, f. 1921; Guðjón, f. 1922;
Steingrímur, f. 1923; Asdís, f. 1924;
Halldór, f. 1925; Guðlaugur, f. 1927;
Sigurbjartur, f. 1929; Sigurbjörg, f.
1932 og Jóhannes, f. 1933.
Foreldrar Ólafs voru Jóhannes
Stígsson, b. að Brekkum í Mýrdal,
og kona hans, Helga Hróbjarts-
dóttir. Jóhannes var sonur Stígs,
b. að Brekkum, Jónssonar, b. að
Brekkum, Árnasonar. Móðir Stígs
var Ragnhildur, systir Guðnýjar,
langömmu Ragnhildar, móður
Jóns Múla og Jónasar Árnasona.
Ragnhildur var dóttir Jóns, b. í
Höföabrekku í Mýrdal, Jónssonar,
sýslumanns í Holti í Mýrdal, Sig-
urðssonar. Móðir Jóns á Höfða-
brekku var Kristín Eyvindsdóttir
duggusmiös, klausturhaldara á
Kirkjubæjarklaustri, Jónssonar.
Móðir Jóhannesar var Jóhanna
Guðmundsdóttur, b. á Á á Síðu,
Eyjólfssonar og konu hans, Þor-
bjargar Jónsdóttur. Helga var dótt-
ir Hróbjarts Hróbjartssonar, sjó-
manns frá Eyrarbakka, og konu
hans, Bjarghildar Magnúsdóttur.
Ólafur tekur á móti gestum í fé-
lagsheimilinu Drangey, Síðumúla
35, síðdegis í dag.
Erlingur Guðmundur Axelsson
sjómaður, Brekkustíg 14, Reykja-
vík, er sextugur í dag.
Erlingur fæddist og ólst upp á
Akureyri, sonur hjónanna Áxels
Péturssonar silfursmiðs og Láru
Imsland. Axel og Lára eru bæði
látin.
Árið 1940 fluttist Erhngur með
foreldrum sínum til Reykjavíkur.
Hann byrjaði ungur á sjónum og
vann hjá Ríkisskip um nokkurra
ára skeið. Erlingur var einnig á
togurum, var lengi á Neptúnusi frá
Reykjavík. Árið 1972 fór Erlingur í
land og hóf störf hjá ÍSAL þar sem
hann vinnur enn við skautasmíðar.
Fyrri kona Erhngs er Þórdís
Rafnsdóttir og eignuðust þau tvö
börn: Lára tækniteiknari, gift og á
þijú börn; Gunnar Rafn sjómaður,
í sambúö og á eitt barn. Erlingur
og Þórdís skildu.
Seinni kona Erlings var Helga S.
Helgadóttir, f. 15.12. 1931, en hún
Erlingur Guðmundur Axelsson.
lést 20. júlí í fyrra.
Systkini Erlings eru Guðbjörg
húsmóðir, gift og á tvö börn; Ric-
hard, býr í Svíþjóð.
Til hamingju með daginn
85 ára____________________
Júlíus Bjarnason, Akurey la, V-
Landeyjum, er áttatíu og fimm ára
í dag.
80 ára_________________________
Óskar Jónsson, Hrafnistu, Reykja-
vík, er áttræður í dag.
Sigurborg Oddsdóttir, Álfaskeiöi
70, Hafnarfirði, er áttræð í dag.
Ingibjörg Sigvaldadóttir, Suður-
götu 13b, Sauðárkróki, er áttræð í
dag.
Þóra Guðmundsdóttir, Strandgötu
59, Eskifirði, er áttræð í dag.
ÓskarStefánsson, Skuggabjörgum,
Hofshreppi, er áttræður í dag.
Vigdís Jóhannesdóttir, Melhaga 8,
Reykjavík, er áttræð í dag.
75 ára______________________
Vilhjálmur Halldórsson, Brekku,
Garði, Gerðahreppi, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Guðrún Ólöf Jónsdóttir, Vallar-
gerði 34, Kópavogi, er sjötíu og
fimm ára í dag. Hún er í dag hjá
dóttur sinni, Melgerði 18, Kópa-
vogi.
Gíslina Sigurjónsdóttir, Urðarteigi
7, Neskaupstað, er sjötíu og fimm
ára í dag.
70 ára_________________________
Sölvey Jósefsdóttir, Sundstræti 27,
ísafirði, er sjötug í dag.
60 ára_________________________
Guðmundur Andrésson, Skeggja-
götu 11, Reykjavík, er sextugur í
dag.
Kristinn Finnsson, Höfðabraut 16,
Akranesi, er sextugur í dag.
Leifur Jónsson, Háarifi 29, Rifi, er
sextugur í dag.
50 ára_________________________
Kristbjörg Ólafsdóttir, Stekkja-
gerði 15, Akureyri, er fimmtug í
dag.
Guðrún Gunnarsdóttir, Vogatungu
18, Kópavogi, er fimmtug í dag.
Þórunn Oddsteinsdóttir, Orms-
stöðum, Eiðum, er fimmtug í dag.
Ólafur Sveinbjörnsson, Illugagötu
73, Vestmannaeyjum, er fimmtug-
ur í dag.
Baldur Jóelsson, Breiðholtsvegi,
Efri Grund, er fimmtugur í dag.
Guðlaugur Guðmundsson, Haöar-
stíg 8, Reykjavík, er fimmtugur í
dag.
Halldór Vilmundur Andrésson,
Brekkugötu 32, Akureyri, er fimm-
tugur í dag.
40 ára_________________________
Auður G. Sigurðardóttir, Birtinga-
kvísl 22, Reykjavík, er fertug í dag.
Eyjólfur Kristófersson, Grettisgötu
76, Reykjavík, er fertugur í dag.
Birgir Símonarson, Vesturbergi 37,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Guðbjörg Magnúsdóttir, Litla-Hofi,
Hofshreppi, er fertug í dag.
Sólveig Jóhannesdóttir, Miðgarði
9, Neskaupstað, er fertug í dag.
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hvetur afmælisbörn
og aðstandendur þeirra til
að senda því myndir og
upplýsingar um frændgarð
og starfssögu þeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að
berast í síðasta lagi tveimur
dögum fyrir afmælið.
Munið að senda okkur myndir