Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1988, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 1988. Lillian Gish og Bette Davis í hlutverkum sínum. Regnboginn: Svífur að hausti Lengi lifir í gömlum glæðum Leikstjóri: Lindsay Anderson Aóalhiutverk: Bette Davis, Lillian Gish, Vincent Price og Ann Sothern. Gamlar systur hafa eytt saman 30 árum. Þær búa á æskustöðvum sínum, lítilli eyju fyrir utan Boston. Á hverju hausti höfðu þær fylgst meö hvalavöðum synda hjá. Hval- irnir eru hættir aö koma. Það er komið að endalokunum. Það er sjaldgæft að bandarískar kvikmyndir íjalli um gamalt fólk. Enn sjaldgæfara er að reiknað sé með að þetta fólk eigi sér sínar þrár og drauma. Þessi mynd er undantekning. Systurnar eiga sér heitt tilfinninga- líf sem birtist einna helst í sökn- uöi. Allt var betra í þá góðu gömlu daga. Þessi nýja kvikmynd Lindsay Anderson (0 Lucky Man o.íl.) er greinilega byggð á leikriti, allt of greinilega raunar því handrit er í slakara lagi. Það er allt of mikið eftir af sviösverkinu. Þetta birtist einna helst í því að tilfinningaleg átök milli persóna fara fyrir ofan garð og neðan. Á sviði gengur þetta upp vegna tak- markaðs rýmis en í kvikmyndinni er þessi takmörkun ekki til staðar. Einnig hefur byggingu leikritsins verið haldið aö mestu. Þetta gerir það. að verkum að enn er skipt milli atriöa. Þá er lætt inn myndum af fögru landslagi með tilheyrandi spennufalli. Leikur er hins vegar stórkostleg- ur. Bette Davis er kraftmikil í hlut- verki hinnar tannhvössu Libby og Lillian Gish er hreint ómótstæðileg í hlutverki hinnar rómantísku systur. Þarna birtist einnig Vincent Price í hlutverki blásnauðs rússnesks greifa. Hann lék vampírur í Ham- mer-myndum hér áður. Þarna er hann hálfgerð blóðsuga því hann á hvergi heima heldur sest hann upp hjá vinum og kunningjum og býr þar. Góður leikur er hins vegar ekki nóg til að gera góða mynd. Eins og fyrr greinir er handrit slakt. Leik- stjórn er enn slakari og er sorglegt að sjá hve lítið leggst fyrir kappann Lindsay Anderson í ellinni. Þetta gerir það að verkum að persónur eru í of mikilli fjarlægö frá áhorf- anda til að hann fái raunverulega samúö meö þeim. Myndin missir því marks. -PLP Jarðarfarir Fréttir Heimsókn Vigdísar til Þýskalands: Grænfriðungar mótmæltu Steinunn G. Helgadóttir, Silfurgötu 20, Stykkishólmi, áður til heimilis að Heiðmörk 38, Hveragerði, lést þann 29. júní sl. á St. Franciskusspítalan- um í Stykkishólmi. Jarðsett verður frá Hveragerðiskirkju fimmtudaginn 7. júlí kl. 14. Ingvar Þorláksson, Kirkjubraut 6, Höfn, Hornarfirði, verður jarðsung- inn frá Hafnarkirkju fimmtudaginn 7. júlí kl. 14. Útför Aðalsteins Sveinbjörnssonar, Nökkvavogi 11, sem lést á Vífilsstöð- um 27. fyrra mánaðar, hefur farið fram í kyrrþey samkvæmt ósk hins látna. Gunnlaugur Hreinn Hansen lést 17. júni sl. Jarðarfórin hefur farið fram í kyrrþey. Erik Christiansen lést 24. júní sl. Hann var fæddur í Danmörku 27. mai 1911, sonur hjónanna Idu og Hermanns Christiansen. Erik-lærði skipasmíði í Danmörku og gekk síð- an í danska sjóherinn. Hann fluttist til íslands árið 1936. Eftir margra ára eigin rekstur réðst Erik til Vitamála- stofnunar í Reykjavík og vann þar til dauðadags. Erik var tvíkvæntur. fyrri kona hans var Sigríður Guð- mundsdóttir. Þau eignuðust tvö börn og er ein dóttir á lífi. Seinni kona Eriks var Rósa Guömundsdóttir en hún lést árið 1970. Þau eignuðust tvö börn. Útfór Eriks verður gerð frá Fossvogskirkju í dag kl. 13.30. Nanna Kristín Jakobsdóttir lést 27. júní sl. Hún var fædd 26. október 1937. Nanna stundaði músíknám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og lauk þaðan námi 1961. Síðustu árin starfaði hún sem tónlistarkennari í Mosfellsbæ. Eftirlifandi eiginmaður hennar er Gísli Geir Kolbeinsson. Þau eignuðuðust tvær dætur. Útfor Nönnu verður gerð frá Garðakirkju í dag kl. 13.30. Útfór Jakobs Halldórssonar, Stiga- hlíð 28, veröur gerð frá kapellunni í Fossvogi miðvikudaginn 6. júlí kl. 13.30. Árný Sigríður Jóhannesdóttir, Álf- hólsvegi 125, Kópavogi, lést í Landa- kotsspítala 27. júní. Jarðarfórin fer fram frá Kópavogskirkju miðviku- daginn 6. júlí kl. 15. Guðjón Steingrímsson hæstaréttar- lögmaður, Ölduslóð 44, Hafnarfirði, sem lést 26. júní, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtudag- inn 7. júlí kl. 15. Andlát Kristín Guðjónsdóttir lést í sjúkra- húsinu í Neskaupstað 3. júlí. Hjördís F. Pétursdóttir lést í Land- spítalanum 3. júlí. Wilhelm Holm andaðist fóstudaginn 1. júlí. Þórður Sigurel Kristjánsson, Lindar- götu 54, lést á gjörgæsludeild Land- spítalans 1. júlí. Einar Einarsson, Ljósheimum 20, lést í Landspítalanum 2. júlí. Jóhannes Guðni Jóakimsson frá ísafirði, Hverfisgötu 106, Reykjavík, andaðist í Landakotsspítala að kvöldi 2. júlí. Jóhanna Þorsteina Þorsteinsdóttir, Nýborg, Stokkseyri, lést á heimili sínu 3. júlí. Sigurvin Bergsson frá Krossnesi í Eyrarsveit lést í Borgarspítalanum sunnudaginn 3. júlí. Gunnþóra Guttormsdóttirfrá Gilsár- teigi lést á sjúkrahúsinu á Egilsstöð- um 4. þessa mánaðar. Tilkyimingar Félag eldri borgara Fariö veröur í skemmtiferð um söguslóð- ir Njálu laugardaginn 9. júlí. Lagt af staö frá umferðamiðstöð B.S.I. kl. 9. Viðkomu- staðir: Oddi á Rangárvöllum, Hlíöarendi í Fljótshlíö. Bergþórshvoll í Landeyjum og Keldur á Rangárvöllum. Borðað verö- ur að Skógum undir Eyjaþöllum. Nánari upplýsingar í símum 28812 og 25035. Hæfileikakeppni í hljóðfæra- leik áhugamanna verður haldin á Hótel Borg dagana 5.-7. júlí. Af þeim sem sækja um þátttöku í keppnina verða 20 manns valdir úr sem flytja munu tvö af sínum bestu lögum. Æskilegt er að annað lagið sé frumsamið, þótt þaö sé ekki gert að skilyrði, og mun dómnefnd velja besta frumsamda lagið ásamt hæfileikaríkasta flytjandanum. Undankeppnin verður kvöldin 5. og 6. júli en 7. júlí fer úrslitakeppnin fram. Verðlaun eru í boði. Hótel Borg stendur að þessari keppni en framkvæmdastjóri hennar er Jón Valgeir Bernharösson. Innritun og nánari upplýsingar um keppnina eru í sima 11440. Milljarða ávinningur af friðun smáfisks „Meö því að friða þriggja og fjögurra ára Fundir Friðarömmur Munið fundinn á Hótel Sögu í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Allar ömmur velkomnar. Tapað fundið Páfagaukur tapaðist úr Holt- unum Grár dísarpáfagaukur, með gult í framan og á stéli, með kamb, tapaðist þann 15. júní sl. frá Meðalholti. Finnandi vinsam- legast hringi í síma 84786. Góð fundar- laun í boði. DV Halldór Valdimarsson, DV, Bonn: Meðan á dvöl forseta íslands hjá borgarstjóranum í Bonn stóð í gær gerðu Greenpeacesamtökin mátt- litla og nokkuð misheppnaða til- ráun til að vekja athygli á málstað sínum. Forsetinn og borgarstjórinn höfðu gengið út á svalir ráðhús- byggingarinnar, en nokkur mann- fjöldi hafði safnast saman á torginu þar fyrir framan. Meðan forseti og borgarstjóri stóðu á svölunum hlupu tvö ungmenni skyndilega inn á torgið með borða sem á var letrað slagorð gegn hvalveiðumís- lendinga. Lögregla skráir þrjá graenfriðunga, en þeir stóðu að tilraun til að vekja Ungmennin höíðu þó varla náð athygli á málstað sínum fyrir utan ráðhúsið í Bonn. DV-mynd HV að breiða úr borðanum þegar lög- þorsk í tvö ár má auka árlegan þorskafla að jafnaði um 50-60 þúsund tonn að frið- unartímabilinu loknu. Það jafngildir þriggja milljarða króna ávinningi á ári hverju upp frá því.“ Þetta er álit Ragnars Ámasonar, dósents við Háskóla íslands og doktors í fiskifræði, sem birtist í nýút- komnu tölublaði Sjávarfrétta, en hann hefur að beiðni blaðsins lagt mat á þann ávinning, sem þjóðin hefði af því að friöa smáfisk og leyfa honum aö vaxa í sjónum. í Sjávarfréttum er einnig birt mat Haf- rannsóknastofnunar á áhrifum þess að friða smáfisk. Þar kemur fram að með mikilli friðun gefi stórir þorskárgangar af sér yfir 100 þúsund tonnum meiri afla en við þá veiðisókn sem nú stefnir í og meðalárgangar þorsks gefi af sér tæplega 90 þúsund tonnum meiri afla en við nú- verandi sóknarmynstur. Kvikmyndir A bílamarkaði DV á laugardögum auglýsir fjöldi bílasala og bílaumboða fjölbreytt úrval bíla af öllum gerðum og öllum verðflokkum. Auglýsendur, athugið! Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 á fimmtudögum. reglan haföi tekiö hann af þeim og vöölað honum saman að nýju. Unga fólkið fékk að fara leiðar sinnar eftir að nöfn þess höfðu ver- ið tekin niður. Þegar forseti og borgarstjóri gengu skömmu síðar yfir torgið, áleiðis til Beethovensafnsins, dreifði Greenpeacefólk áróöurs- plöggum meðal fylgdarliðs forseta og þeirra sem saman voru komnir til þess að fylgjast með. Lögreglan í Bonn tók ekki harka- lega á þeim sem stóðu að mótmæl- um á ráöhústorginu í gær, en fyrir- mæh munu hafa verið gefin um að beita hörku ef á þyrfti að halda til að koma í veg fyrir truflanir á heimsókn forseta íslands. á laugardögum ■BÍkRBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBIS, 3> 30 03 — < I— 3> 30 OJ I—’ 30 ro i-' > 30 ro r—' 3> 30 00 » r— J> 30 CD ÖC 3.ÁRBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍLARBÍL/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.