Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1988, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.09.1988, Page 7
FÖSTUDAGUR 23. SEPTEMBER 1988. 35 Hver hreppir marka- kóngstitilinn? - lokaumferð íslandsmótsins í knattspymu á morgun Síðasta umferð íslandsmótsins í knattspymu verður leikin um helgina í 1. og 2. deild. í báðum deildum em úrslit þegar ráðin, Fram er orðinn íslandsmeistari og ÍA hefur tryggt sér sæti í Evrópu- keppni, auk Vals, og Leiftur og Völsungur eru fallnir í 2. deild. Þá varð ljóst fyrir nokkra að FH og Fylkir leika í 1. deild næsta sumar og KS og Þróttur í 3. deild. Mesta spennan í lokaumferð 1. deildar er fólgin í því hver hreppir markakóngstignina. Þar eru tveir til kallaðir, Sigurjón Kristjánsson úr Val og Guðmundur Steinsson úr Fram. Sigurjón hefur undirtök- in, hefur gert 13 mörk gegn 12 hjá Guðmundi. Síðan koma margir til greina í baráttunni um bronsið, helst þeir Þorvaldur Örlygsson úr KA og Aðalsteinn Víglundsson frá Akranesi, en þeir hafa gert 9 mörk hvor, og Pétur Ormslev sem hefur skorað. átta fyrir Fram. Leikir 1. deildar hefjast allir kl. 14.00 á morgun, laugardag. Völs- ungur og Leiftur eigast við á Húsa- vík, ÍBK og Víkingur í Keflavík, KR og Þór á KR-velli, KA og Valur á Akureyrarvelli og síðast en ekki sist Framarar og Skagamenn í Laugardal en þar taka Framarar við Islandsbikarnum í leikslok. í 2. deildinni er einn leikur kl. 17 í dag, Selfoss og ÍBV mætast þá á Selfossi. Hinir eru kl. 14 á morgun, FH-ÍR í Kaplakrika en þar verður FH afhentur 2. deildar bikarinn, Breiðablik og Tindastóll í Kópa- vogi, KS og Fylkir á Siglufirði og Víöir og Þróttur í Garðinum. Knattspyrnuvertíðinni hérlendis lýkur síðan formlega í Broadway á sunnudagskvöldið en þar halda 1. deildar leikmenn uppskeruhátíð sína og útnefna besta og efnilegasta leikmann deildarinnar. Körfubolti Fjórir leikir í Reykjavíkurmótinu fara fram í Hagaskója á sunnudag- inn. Kl. 17 leika ÍS-a og ÍS-b í kvennaílokki, kl. 18.30 ÍR og ÍS í karlaflokki, kl. 20 KR og Valur í karlaílokki og loks kl. 21.30 ÍR og KR í kvennaflokki. Handbolti Reykjavíkurmótinu lýkur í Selja- skólanum um helgina. Á morgun, laugardag, er byijaö kl. 14. Þá leika fyrst í kvennaflokki Fram-KR og Víkingur-ÍR en síðan í karlaflokki yalur-Fram og Þróttur-Víkingur. Á sunnudag er byrjað kl. 17.30. Þá leika fyrst í kvennaflokki Valur og Fram en síðan í karlaflokki Ár- mann-KR og Fram-Þróttur. Golf Styrktarmót vegna þátttöku Golf- klúbbsins Keilis í Evrópukeppni félagsliða verður haldið á velli klúbbsins á morgun, laugardag. Það nefnist Opna Alohoa ’88 mótið og er kennt við völlinn sem keppt verður á við Marbella á Spáni í lok nóvember. -VS • Hörkubarátta er á milli Sigurjóns Kristjánssonar, Val, og Guðmundar Steinssonar, Fram, um markakóngs- titilinn í 1. deild íslandsmótsins í knattspyrnu 1988. trT» '"" ^ ALASKA Lakkgljái er betra bon ! , Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir ágústmánuð 1988, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 26. þ.m. Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20% en síðan reiknast dráttarvextir til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. október. Fjármálaráóuneytið. NYJA POSTULAKIRKJAN SLANDI HÁALEITISBRAUT 58-60 (MIÐBÆR) Guðsþjónustur: Sunnudaga kl. 11.00. Flmmtudaga kl. 20.00. Þú ert hjartanlega velkomln(n). SPURNINGAR OG SVÖR VID ÞEIM: Hvaó gerlr mannlnn melri en allt það sem Guð hefur skapaö é jörðu? a. Allt var skapað af orði Guðs en Guð myndaöi manninn af leir jarðar. b. Maðurinn var gerður eftir Imynd Guös. c. Guð blés llfsandanum I manninn og maðurinn varð lifandi sál. Þetta gerði manninn að kórónu sköpunar Guðs og voru honum falin yfirráð yfir öllu sem Guð hafði skapað á jörðu. d. Guð myndaöi manninn af kærieika slnum og gaf honum einnig hæfi- leika til þess að endurgjalda honum ást sfna. Guö gaf manninum eigin vilja til þess að ákveða framtlða slna. v Smáauglýsing í Helgarblað þarf að berast fyrir kl. 17 föstudag!!! 27022 í haust verðurskáklíf á íslandi með meiri blórna en nokkru sinni í sög- unni. Hæst ber þar Heimsbikarmót Stövar 2 en það er fleira að gerast. í næstu viku verður boðið upp á skák- veislu í Kringlunni þarsem Helgi Ólafs- son teflir blindfjöltefli og Hannes Hlíf- ar ætlar að leggja fjölda af þekktum alþingisskákmönnum. Meira umskák- ina í helgarblaðinu. Er hugsanlegt að íslenskum stjórn- málamönnum hafi láðst að leita ráða hjá mesta stjórnvitringi allra tíma? Svo virðist vera ef marka má viðtal helgar- blaðsinsviðsjálfan Niccoió Machia- velli, meistara í pólitískum refsskap. „Ég erekki hætturað leika en ég vil ekki vera bundinn einum né neinum að eilífu, amen," segir Jón Sigur- björnsson leikari sem hefur látið af störfum sem fastráðinn leikari í Iðnó eftir 21 ár. Jón segirað margar ástæður liggi að baki og frá þeim og sjálfum sér segir hann í Helgarblaðs- viðtali á morgun. Jón er einnig „bóndi" austur í sveitum þar sem hann býr einn með hrossunum sínum hluta ársins. Þar vill hann vera í róleg- heitum burtu frá hringiðu leikhússins. Hressilegt viðtal við leikarann, bónd- ann og einsetumanninn Jón í helgar- blaðinu á morgun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.