Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Page 7
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988.
39
Blak kvenna - úrslit:
Þær sovésku
grétu í lokin
- eftir 3-2 sigur gegn Perú
Blaklið Sovétríkjanna og Perú í
kvennaflokki bauð flölmörgum
áhorfendúm upp á stórkostlegt blak
í úrslitaleiknum sem fram fór í gær.
Sovésku stúlkumar unnu gullverð-
launin eftir ótrúlega spennandi
keppni í fimm lotum, 10-15, 12-15,
15-13, 15-7 og 17-15.
Leikurinn var sýndur í beinni út-
sendingu í ríkissjónvarpinu um há-
degisbilið í gær og hafa eflaust marg-
ir horft agndofa á tilburði stúlkn-
anna sem voru oft ótrúlegir. Stúlk-
umar frá Perú, sem aldrei hafa unn-
ið til verölauna á ólympíuleikum,
unnu sigur í fyrstu tveimur hrinun-
um og komust í 12-6 í þeirri þriðju.
Þá tóku þær sovésku við sér og unnu
lotuna 15-13, þá fjórðu 15-7 af öryggi
og þá var komiö aö fimmtu og síð-
ustu hrinunni.
Sovésku stúlkurnar byrjuðu mun
betur en hinar fóngulegu Perústúlk-
ur létu sig ekki og jöfnuðu, 10-10. í
lok hrinunnar fékk lið Perú þijú
tækifæri til að gera út um hrinuna
með stig yfir en þaö tókst ekki og þær
sovésku fógnuðu sigrinum.
Þjálfari sovéska liðsins trylltist
hvað eftir annað á meðan á leiknum
stóð og liðsmenn hans hafa greini-
lega verið undir miklu álagi undnfar-
ið. Eftir leikinn grétu allar sovésku
stúlkurnar í kór og vissu hvorki í
þennan heim né annan að því er virt-
ist. Úrslitaleikurinn var hreint stór-
kostlegur eins og áður sagði og eftir
honum verður lengi munaö.
-SK
Öiyggisgseslan
stóraukin
Það kom til óeirða í Seoul í vik-
unni en þá létu námsmenn til
skarar skríða gegn lögreglu.
Voru stúdentarnir vopnaðir
bensínsprengjum og kröfðust
þess að leiðtogi þeirra yrði leyst-
ur úr haldi.
Lögreglumenn svömöu þessum
kröfum með táragasi og börðu
róstur stúdentanna á bak aftur.
Nájnsmennirnir hafa hótað að
trufla síðasta atburð leikanna,
maraþon í karlaflokki, verði
kröfum þeirra ekki sinnt.
Skipuleggjendur leikanna hafa
ákveðið að auka öryggisgæslu
síðustu daga keppninnar enda
geta þeir ekki treyst á að stúdent-
arnir haldi aftur af sér.
Margir af yngri kynslóðinni í
S-Kóreu bera nokkurn kala til
Bandaríkjamanna. Fjöldi ungl-
inga var til aö mynda saman
kominn í undanúrslitum körfu-
knattleikskeppninnar þar sem
Sovétmenn voru ákaft kvattir í
viðureigninni viö Bandaríkja-
menn.
Gríðarlegur fjöldi kvikmynda-
tökufólks er í Seoul sem hefur
ferðast frá N-Ameríku til að sinna
leikunum. Bandaríska ljósvaka-
stöðin NBC hefur sjónvarpsrétt á
leikunum og hafa framkvæmda-
aðilar þeirra ákveðið að standa
vörð um þetta fólk sem kann að
sæta árásum næstu dagana að
þeirra áliti.
-JÖG
Eyjaskegginn
nældi í
nýjan
Eini keppandinn frá Salomonseyj-
um, sem tók þátt í bogfiminni í Seo-
ul, varð langsíðastur í sínum riðli í
keppninni en heldur engu að síður
heim með bros á vör og gott betur
því aö hann hefur nýjan boga í far-
teskinu. .
Jerrick Tenai, sem er 20 ára gam-
all öryggisvöröur, lærði kúnstina að
skjóta af boga þremur mánuðum fyr-
ir leikana. Hann mætti galvaskur
meö bogann sinn undir hendinni sem
aörir keppendur litu strax hornauga.
Suður-kóreskur framleiðandi sá
aumur á eyjaskeggjanum og færði
honum forláta boga að gjöf. Af hon-
um skaut skyttan síðan í keppninni.
boga
„Ég hef aldrei fyrr skotiö af boga
líkum þessum," sagði Tenai í sam-
tali viö blaöamenn. „Þegar ég kem
heim verð ég að biðja stjómina að
kynna bogann í heimalandi mínu.
Núna mun ég æfa í fjögur ár og það
er möguleiki að ég mæti á næstu
ólympíuleika," sagði þessi unga
skytta.
En þrátt fyrir þennan góða boga
mátti Salomonseyingurinn sætta sig
viö að sjá mörg skot sin geiga. Hann
nældi í 505 stig en sá sem varö hlut-
skarpastur, Sovétmaðurinn Vladim-
ir Esjev, hreppti hins vegar 1.304 stig.
-JÖG
Q$pSeoul588
Tugþrautarkeppnln:
■■■ * M* ■ | ■
Thompson naði ekki
á verðlaunapallinn
- Christian Schenk ólympíumeistari með 8.488 stig
Austur-Þjóðverjinn Christian
Schenk vann gullverölaunin í tug-
þraut og hlaut 8.488 stig. Heims-
meistarinn, Torsten Voss frá Aust-
ur-Þýskalandi, varð annar með
8.399 stig og Kanadamaöurinn
Dave Steen varð þriöji með 8.328
stig. Bretinn Daley Thompson, sera
flestra augu beindust aö, náði sér
ekki á strik í keppninni og var langt
frá sínum besta árangri í fjórða
sæti með 8.306 stig.
Daley Thompson varð fyrir
hrikalegu áfalli í stangarstökkinu
er stöng hans brotnaði í einni til-
rauninni. Kappinn náði sér þó vel
á strik og náði sfnum besta árangri
í spjótkati er hann kastaði 64,04
metra.
• Fijótlega var Ijóst að Thornp-
son myndi ekki blanda sér í barátt-
una um gullverðlaunin. Thomp-
son, sem vann gullverðlaunin í tug-
þrautinni í Moskvu 1980 og Los
Angeles 1984, var greinilega farinn
aö láta á sjá og yngri mennirnir
blómstruðu.
Söguleg tugþraut
Keppnin í tugþrautinni var söguleg
fyrir margra hluta sakir. Tveir
keppendur náðu undraverðum ár-
angri i tveimur greinum. Austur-
Þjóðverjinn Christian Schenk, sem
vann tugþrautina, stökk2,27 metra
í hástökki sera er frábær árangur
hjá tugþrautarmanni.
Sá sera stal þó senunni i tug-
þrautarkeppninni var Bandaríkja-
maðurinn Tim Bright Hann stökk
5,70 metra í stangarstökki sem er
ótrúlegur árangur hjá tugþrautar-
manni. Keppnin í stangarstökkinu
fór langt fram úr tímaáætlun og
Bright var enn að stökkva í stöng-
inni þegar aðrir keppendur voru
byijaöir keppni í spjótkastinu sem
var næst á eftir stangarstökkinu.
Þess má geta aö 5,80 metrar dugðu
til bronsverðlauna í stangarstökks-
keppni ólympíuleikanna.
• Sigurvegarinn, Christian
Schenk frá Austur-Þýskalandi,
náði eftírtöldum árangri í einstök-
um greinum: Hann hljóp 100 m á
11,25 sek., stökk 7,43 m í lang-
stökki, varpaði kúlu 15,48 m, stökk
2,27 m í hástökki, hljóp 400 m á
48,90 sek., hljóp 110 ra grindahlaup
á 15,13 sek., kastaði kringlunni
49,28 m, stökk 4,70 m í stangar-
stökki, kastaöi spjóti 61,32 m og
hljóp 1500 m á 4:28,95 mín.
• Heimsmeistarinn Torsten
Voss, sem vann silfurverðlaunin,
náði þessum árangri: Hann hljóp
100 m á 10,87 sek., stökk 7,45 m i
langstökki, varpaöi kúlu 14,97 m,
stökk 1,97 m í hástökki, hfjóp 400 m
á 47,71 sek., hljóp 110 m grinda-
hlaup á 14,46 sek., kastaði kringl-
unni 44,36 m, stökk 5,10 m í stangar-
stökki, kastaði spjótinu 61,76 m og
hljóp 1500 m á 4:33,02 mia
• Kanadamaðurinn Dave Steen,
sem vann bronsverðlaunin, fór
þannig aö þvi: Hann hljóp 100 m á
11,18 sek., stökk 7,44 m í lang-
stökki, varpaöi kúlu 14,20 m, stökk
1,97 í hástökki, hljóp 400 m á 48,29
sek„ 110 m grindahlaup hfjóp hann
á 14,81 sek., kastaði kringlunni
43,66 m, stökk 5,20 m í stangar-
stökki, kastaði spjótinu 64,16 m og
hijóp 1500 má 4:23,20 m. *SK