Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.1988, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 30. SEPTEMBER 1988.
22 steina-
teiknarar
- um Tamarind-sýninguna á Kjarvalsstöðum
Allt fr^mundir 1960 mun steinprent
hafa veriö álitiö eins konar stein-
aldariðngrein í Bandaríkjunum.
Sannleikur málsins er hins vegar
sá aö bóndi nokkur í Bæjaralandi,
Alois Senefelder aö nafni, upp-
götvaði tæknina áriö 1798 þegar
hann gekk fram á kalksteinsnámur
í landi sínu. Steinprentið varð síö-
an geysivinsælt í Evrópu á nítjándu
öldinni en frá og með iðnbyltingu
fóru vinsældir þess dvínandi. Tam-
arind-verkstæðið var sett á laggirn-
ar meðal annars til að stuðla að
endurreisn þessarar skemmtilegu
listgreinar í Bandaríkjunum. Fyrir
stofnanda verkstæðisins, June
Wayne, vakti meðal annars að
venja listamenn og prentara við
samvinnu svo þeir gætu lært að
meta hæfileika hvers annars sam-
fara tjáningarmöguleikum stein-
prentsins. Arið 1970 var Tamar-
ind-verkstæðið gert að sérdeild
Tréhestar eftir Robert Vickney.
Myndlist
Ólafur Engilbertsson
innan Háskólans í Nýju-Mexíkó,
Albuquerque. Síðan þá hafa hátt í
sex hundruð listamenn haft þar
viðdvöl og gert að engu orð kalda-
stríðssmartistans Roberts Rausc-
henbergs: „Síðari hluti tuttugustu
aldarinnar er ekki rétti tíminn til
að fara að teikna á steina“.
Á . sunnudag lýkur á Kjarvals-
stöðum yfirlitssýningu á verkum
22 „steinateiknara" sem hafa unnið
á Tamarind-verkstæðinu. Sýningin
er geysifjölbreytt, enda aðeins eitt
eða tvö verk eftir hvern listamann.
Stærsti kostur sýningarinnar er
einmitt þessi fjölbreytni. Það er
nánast ótrúlegt að í öllum tilvikum
skuli sömu aðferð vera beitt. Sumir
beita reyndar hliöaraðferðum eins
og samklippi og samsetningu (Col-
lage og assemblage). Myndir Gail
Gash og Martie Zelt eru sérstaklega
áhugaverðar hvað þetta varðar.
Þarna skiptast á verk íhaldsgaura
eins ög Leonards Lehrer og Philips
Pearlstein annars vegar og hins
vegar nýsköpunarmanna á borð
við Fritz Scholder og Robert Vick-
rey. Ásamt Jaune Quickto-see
Smith eru þeir síöasttöldu mjög
áhugaverðir boðberar endurreisn-
ar í steinprenti. Verk þeirra bera
með sér mikið hugmyndaflug í
notkun tækninnar auk þess sem
steinninn sjálfur er þar ailtaf innan
seilingar. Á meðan steinaríkinu
eru færðar slíkar fórnir þarf ekki
að örvænta um framgang stein-
prentsins.
35
ftn»
Lakkgljái er betra
Laus staða
Staða bókavarðar í Landsbókasafni Íslands er laus
til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknirásamt upplýsingum um menntun og starfs-
feril skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir
20. október næstkomandi.
26. september 1988,
Menntamálaráðuneytið
Lögtaksúrskurður
Að beiðni Gjaldheimtunnar í Hafnarfirði, geta farið
fram lögtök fyrir gjaldföllnum en ógreiddum gjöldum
ársins 1988 álögðum í Hafnarfirði, en þau eru: Tekju-
skattur, eignaskattur, sérstakur eignaskattur, slysa-
tryggingargj. v/heimilisstarfa, iðnlánasjóðs- og iðn-
aðarmálagjald, slysatryggingargjald atvinnurekenda,
lífeyristryggingargjald atvinnurekenda, atvinnuleys-
istryggingagjald, vinnueftirlitsgjald, útsvar, aðstöðu-
gjald, kirkjugarðsgjald og skattur af skrifstofu- og
verslunarhúsnæði. Þá úrskurðast, að lögtök geti farið
fram fyrir gjaldhækkunum sem orðió hafa frá því er
síðasti úrskuður var kveðinn upp, þar með taldar
skattsektir til ríkis- og bæjarsjóðs.
Verða lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara á
kostnað gjaldenda en á ábyrgð Gjaldheimtu Hafnar-
fjarðar að 8 dögum liðnum frá birtingu úrskurðar
þessa, ef full skil hafa ekki verið gerð.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
28. september 1988
saar
Erum að flytja
í Vesturvör 26, Kóp.
Næstu daga verður rýmingarsala að Skemmuvegi 6. Seld
verða járnsmiðatæki, rafm.verkfæri, hleðslutæki, loftverk-
færi, borar, ýmis handverkfæri, hjólbarðar o.fl.
gOPIÐ LAUGARDAGA.
K^Kistill Skemmuvegi L6, Kóp. S. 74320 og 79780.
Kastljósfjölmiðlanna beindust
að Stefáni Valgeirssyni al-
þingismanni í vikunni er ný
ríkisstjórn var mynduð. Stefán
er ýmist sakaður um að vera
siðlaus pólitíkus eða helvíti
klár karl. „Það eru bara hræsn-
arar og aumingjar sem halda
að pólitík snúist um eitthvað
annað en að nýta sér aðstöðu
sína," segir Stefán í helgarvið-
tali á morgun og lætur Ijós
sitt skína sem aldrei fyrr.
Hún nefnist Huggy en heitir réttu nafni
Hugrún Ragnarsdóttir. Huggy starfaði
um langt skeið sem fyrirsæta bæði í
Bandaríkjunum, þarsem hún bjó, og
í Evrópu. Nú er hún gift kona í Lon-
don þarsem hún rekureigin umboðs-
skrifstofu fyrir fyrirsætur ásamt eigin-
mannisínum. Reyndarer Huggy enn
ung að árum en eftir að hún varð
móðir hefur hún falið sig á bakvið
myndavélina. Áhugamál hennar nú er
að gerast Ijósmyndari. Huggy er í við-
tali við helgarblaðið á morgun þar sem
hún segir frá viðburðaríkri ævi sinni.