Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1988, Blaðsíða 1
Þjóðleikhúsið - Ævintýri Hoffmanns
í kvöld verður frumflutt óperan
Ævintýri Hoffmanns eftir Jacques
Offenbach í leikstjóm Þórhildar
Þorleifsdóttur. Ævintýri Hoff-
manns er árangur samstarfs Þjóð-
leikhússins og Islensku óperunnar.
í sýningunni taka þátt fimmtán
einsöngvarar, sextíu manna kór, á
fimmta tug hljóðfæraleikara og sex
listdansarar. Umgerð sýningarinn-
ar er óvenju íburðarmikil og
skrautleg, sem dæmi má nefna að
um 300 leikbúningar eru notaðir.
Ævintýri Hoffmanns var frum-
flutt í París 1881, fjórum mánuðum
eftir dauða Offenbachs. Hann fékk
því ekki uppfyllta sína heitustu ósk
að sjá Ævintýrið á sviði. En þó tón-
skáldiö fengi ekki að njóta sýning-
arinnar hafa aörir gert það þvi óp-
eran hefur allt frá fyrstu sýningu
notið mikillar hylli áhorfenda.
Yrkisefnið er þrjár sögur skálds-
ins E.T.A. Hoffmans og er Hoff-
mann sjálfur gerður að aðalper-
sónu óperunnar, þannig að skáldið
gengur inn í sinn eigin hugarheim.
Ævintýri Hoffmanns hefur einu
sinni áður verið flutt í Þjóðleik-
húsinu. Var það leikárið 1965-1966
og söng Magnús Jónsson þá Hoff-
mann. Mun minna var lagt í þá
sýningu en nú.
Garðar Cortes fer með hlutverk
Hoffmanns í þetta skiptið. Aðrir
einsöngvarar eru Kristinn Sig-
mundsson, Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir,
Viðar Gunnarsson, Signý Sæ-
mundsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdótt-
ir, Sigurður Bjömsson, Magnús
Steinn Loftsson, Guðjón Óskars-
son, John Speight, Eiður Á. Gunn-
Sviðsmynd úr Ævintýri Hoffmanns. Garðar Cortes lengst til vinstri í hlutverki Hoffmanns.
arsson, Þorgeir Andrésson, Sieg-
hnde Kahmann og Loftur Erhngs-
son.
Erlendir hstamenn hafa verið
fengnir til hðs við Þjóðleikhúsið.
Má þar nefna búningateiknarann
Alexander Vasshiev. Hann hefur
Kristinn Sigmundsson í hlutverki gert búninga fyrir breska þjóöleik-
sínu í Ævintýri Hoffmanns. húsið, ríkisóperuna í Bonn, þjóð-
aróperu Tyrklands,. konunglega
ballettinn í Belgíu og Théatre du
Rond í parís svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er í annaö sinn sem hann
teiknar búninga fyrir Þjóðleik-
húsið. Fyrra skiptið var við Villi-
hunang eftir Tsékhov fyrir tveimur
árum.
Leikmyndateiknarinn Nicholas
Dragan hefur aftur á móti ekki
komið áður til íslands. Hann er
rúmenskur og starfar jöfnum
höndum við leikhús og kvikmynd-
ir. Hann hefur starfað víða utan
heimalands síns og á að baki leik-
myndir við nokkrar kvikmyndir
byggðar á óperum.
-HK
I Koss
kóngulóar-
konunnar
- sjá bls. 20
Hátíða-
tónleikar í
íslensku
óperunni
- sjá bls. 29
Schwarz-
enegger
vin-
sælastur
- sjá bls. 32
listasafn Sigurjóns í
Laugamesi opnað
Siguijón Ólafsson myndhöggvari
hefði orðið áttræður í dag. Lengi bjó
hann og vann á sjávarkambinum viö
Laugames og þar hefur ötullega ver-
ið unnið að framkvæmdum undan-
farin misseri. Vinnustofa hans hefur
verið endurnýjuð og við hana byggt
með það fyrir augum að hstaverk
Sigurjóns fengju varanlegan sama-
stað í hentugri umgjörð á þeim stað
þar sem þau urðu til.
Afmæhs hans verður minnst með
því að vígja safnið í dag. Síðan verð-
ur það opið almenningi um helgar.
„Sá sem ætlar að lifa af högg-
myndalistinni verður að vera sístarf-
andi. Auk þess er ég af alþýðufólki
kominn svo að sjálfsögðu verð ég að
vinna,“ sagði Siguijón einhvern tíma
í blaðaviðtali. Og þótt verk hans séu
víða dreifð, og sum líklega með öllu
glötuð, þá má nú sjá í safninu fjöl-
breytt úrval frá ýmsum tímaskeiðum
í lífi hstamannsins. Nokkur hafa
aldrei sést á íslandi fyrr, eins og
sandsteinsmyndin Kona (1939) sem
fengin er að láni frá Louisiana-safn-
inu danska.
Hugmyndin er að safnið verði
„vettvangur fyrir alhhða menning-
arstarfsemi“ og hefst sú starfsemi
þegar um þessa helgi. Á sunnudag
kl. 15 lesa fjögur ljóðskáld eigin ljóð
og þrír tónhstarmenn leika á hljóð-
Birgitta Spur: breytti lekri og kaidri
vinnustofu Sigurjóns í glæsilegt
safnahús.
færi. Að kvöldi sama dags verða
kammertónleikar og enn aðrir á mið-
vikudagskvöld og loks píanótónleik-
ar á fostudagskvöld eftir viku. Alls
koma fram um tíu hljóðfæraleikarar,
Úr sýningarsalnum sem jafnfran
verður nýttur til tónleika.
DV-myndir S
þar af þrjú af börnum Sigurjóns,
fiðiuleikarinn Hlíf, sehóleikarinn
Ólafur og flautuleikarinn Freyr.
Riki og borg og margir einstakling-
ar hafa með fjárframlögum stuðlað
að uppbyggingu safnsins en fyrir að
hafa eignast þessa perlu á ströndinni
við hafið mega Reykvíkingar þó öh-
um öðrum fremur þakka ekkju Sig-
uijóns, Birgittu Spur, sem ung-að
árum yfirgaf sína bhöu dönsku ætt-
jörð tU að fylgja honum hingað norð-
ur í næöinginn. -ihh
Veitíngahús vikunnar:
Homið
- sjá bls. 18
Kvenna-
kabarett
a Hotel
íslandi
- sjá bls. 19
og synir
- sjá bls. 21.
í skugga
hrafnsins
- sjá bls. 30