Dagblaðið Vísir - DV - 21.10.1988, Side 6
,30
FÖSTUDAGUR 21. OKTÖBER 1988.
Kvikmyndir - Kvikmyndir - Kvikmyndir wmmBfflffigr
Laugarásbíó:
I skugga
hrafnsins
A sunnudag verður frumsýnd
kvikmynd Hrafns Gunnlaugsson-
ar, í skugga hrafnsins. Eftir henni
hefur verið beðið með nokkurri
óþreyju, bæði vegna þess að síðasta
leikna kvikmynd Hrafns, Hrafninn
flýgur, fékk góðar viðtökur og mjög
jákvæða gagnrýni og svo er í
skugga hrafnins dýrasta kvikmynd
sem íslendingar hafa gert. Fjár-
magnið kemur að vísu frá Svíum
og er þar af leiðandi er myndin
sænsk-íslensk framleiðsla.
í skugga hrafnsins er saga elsk-
endanna Trausta og ísoldar. Nöfn
þeirra eru sótt í söguna um Tristr-
am og ísönd, elskendur sem var
ekki skapað nema aö skilja.
í byijun kynnumst við Trausta,
aðalpersónu myndarinnar, sem er
á leið heim til íslands frá Noregi
þar sem hann hefur verið við nám
í guðfræði. í fór með honum er ít-
alskur málari sem ætlar að mála
altaristöflu í kirkjuna á Krossi,
bænum þar sem fjölskylda Trausta
býr. Þar stjórnar búi Edda, móðir
Trausta.
Skammt frá þeim stað þar sem
Trausti og menn hans taka land
ríða þeir fram á hafrekinn hval og
eru tveir flokkar að beijast um
eignarrétt yfir honum. Annars veg-
ar heimafólkið á Krossi með Eddu
móður Trausta í fararbroddi og
hins vegar Eiríkur, voldugur höfð-
ingi og menn hans.
I átökunum særist Edda og tii að
leita hefnda er haldið aö bæ Eiríks,
hann felldur og eldur lagður í hús
hans. Trausti bjargar dóttur Eiríks,
ísold, og bami hennar, Sól, úr eld-
inum og tekur þær með sér.
Edda er helsærð en þegar hún
fréttir hver er með syni hennar
segir hún að ísold sé norn og skuli
Trausti láta hana afskiptalausa. í
kirkjunni á Krossi reynir ísold að
vega Trausta og hefna föður síns.
í átökum þeirra á milli vakna heit-
Helgi Skúlason leikur Grim, verkstjóra á Krossi þar sem móðir Trausta ræður ríkjum.
ar tilfinningar í brjóstum beggja
og verður þá ekki aftur snúið...
Leikarar eru íslenskir og sænsk-
ir. Hlutverk Trausta er í höndum
sænska leikarans Reine Brynolfs-
son. Tinna Gunnlaugsdóttir leikur
ísold. Aðrir íslenskir leikarar í
stórum hlutverkum eru Egill Ól-
afsson, Kristbjörg Kjeld, Helgi
Skúlason, Helga Bachmann, Sig-
urður Siguijónsson, Flosi Ólafsson
og Rúrik Haraldsson. Sænskir leik-
arar eru færri. Fyrir utan Brynolfs-
son eru tveir sænskir leikarar í
stóru hlutverki, þau Sune Mangs
og Johann Neuman.
Aðstoðarmaður Hrafns við leik-
stjómina er Daniel Bergman, son-
ur sniilingsins Ingmars Bergman.
Tónhstin er eftir Hans-Erik Philip.
Karl Júlíusson gerir leikmynd og
búninga og hljóð annast Gunnar
Smári Helgason. Allt eru þetta
menn sem hafa unnið með Hrafni
áður. Klippingu annaöist Edda
Kristjánsson.
í skugga hrafnsins lofar góðu.
Sænskir fjölmiðlar hafa fjallað um
myndina á jákvæðan hátt og ekki
spilhr fyrir að tveir íslensku leikar-
anna hafa fengið tilnefningu fyrir
bestan leik á fyrstu Evrópukvik-
myndahátíð sem haldin verður í
nóvember. Það era Helgi Skúlason
og Tinna Gunnlaugsdóttir.
-HK
Athyglisverðar kvikmyndir sem sýndar verða um helgina:
Háskólabíó
Eddie Murphy slær enn einu sinni
í gegn í Prinsinn kemur til Amer-
íku. Hér er hann kominn í hlutverk
prins sem kemur að leita sér að
konu í New York. Hann lendir að
sjálfsögöu í miklum ævintýrum og
era sum atriði bráðfyndinn þótt
Murphy eigi það til að ofleika. Létt
skemmtun í skammdeginu.
Regnboginn
Klíkumar fjallar um tvo lögreglu-
menn í Los Angeles sem eiga í
höggi við unghngaflokka sem lifa
af glæpum. Leikstjóri er Dennis
Hopper og er þetta fyrsta mynd
hans sem leikstjóri í mörg ár. Þrátt
fyrir mikið ofbeldi er hér um
áhrifamikla kvikmynd að ræða og
er leikur þeirra Seans Penn og
Roberts Duvall með miklum ágæt-
um.
Bíóborgin
Óbærilegur léttleiki tilverannar er hrífandi kvikmynd sem lætur engan
ósnortinn. Hún gerist í Tékkólslóvakíu um og eftir innrás Rússa og segir
frá þremur persónum, lækninum Tomas og konunum tveimur sem eru
örlagavaldar í lífi hans. Meö þessari kvikmynd skipar Philip Kaufman sér
í röð fremstu leikstjóra Bandaríkjanna.
Bíóhöllin
Tom Hanks fer á kostum í Þeim stóra og hefur þessi mynd orðiö til þess
að fleyta honum upp á meðal stóra stjamanna í Hollywood. Hann leikur
tólf ára dreng sem óskar sér að verða fuhorðinn. Óskin rætist en að vísu
aðeins líkamlega. Innantil er hann enn sami drengurinn sem hefur mest
gaman af að leika sér með jafnöldrum sínum.