Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1988, Page 1
Jaguar XJ 220, frumgerð nýs tveggja sæta sportbíls sem frumsýnd var í Birmingham í vikunni. Þessi nýi sportbíll kostar skildinginn, eða nærri tuttugu milljónir króna.
Bílasýningin í Birmingham opnuð almenningi í dag:
Nýr Jaguar sem kostar
tuttugu milljónir króna
Ein stærsta bílasýningin í Evrópu
var opnuð almenningi í National
Exhibition Centre í Birmingham í
Bretlandi í dag, laugardaginn 22. okt-
óber. Þeir sem vit hafa á segja París-
arsýninguna á dögunum standa
þessari sýningu langt að baki og að-
eins bílasýningin í Tokýo seinna í
vetur jafnist á við þessa sýningu.
Sýningin var opnuð fyrir bílablaða-
menn og aðra áhangendur bílaiðnað-
arins og þá var meðal annarra bíla
frumsýndur nýr Aston Martin og
eins ný gerð af sportbíl frá Jaguar.
Kostar tæpar tuttugu milljónir
króna
Þessi nýi sportbíll frá Jaguar heitir
XJ 220 og var hulunni svipt af bílnum
í Birmingham á þriðjudaginn. Þetta
er tveggja sæta bíll með 6,2 lítra vél.
Þeir sem áhuga hafa á slíkum bíl
í sýningarbás Ford á bílasýningunni i Birmingham verður aðalathyglinni örugglega beint að þessum tilraunabíl,
Ford Ghia Saguaro, en hann er talinn gott dæmi um það hvernig fjölskyldubíllinn komi til með að líta út á næsta
áratug.
verða að opna budduna upp á gátt
því hann kemur til með að kosta í
kringum 250 þúsund pund, eða um
19,9 milljónir íslenskra króna (án
tolla).
„Hvar sem ríkt fólk er mun það
vilja bíla sem þennan,“ sagði sir John
Egan, stjómarformaður Jaguar, við
opnun sýningarinnar fyrir blaða-
menn í vikunni.
Þessi nýi sportbíll, sem er með yfir-
byggingu úr áli og var smíðaður til
að minnast sigurs Jaguar í 24 stunda
kappakstrinum í Le Mans á þessu
ári, verður ekki tilbúinn fyrr en á
næstu árum.
Egan sagði við sama tækifæri að
væntanlegir kaupendur heíðu þegar
haft samband við verksmiðjurnar út
af þessum hraöskreiða bU sem kemst
upp í 350 km/klst.
Fyrsti nýi Aston Martin í 20 ár
Keppinauturinn Aston Martin
kynnti fyrsta nýja bílinn frá verk-
smiðjunum í 20 ár. Þessi nýja gerð
kallast Virage og er sögð komast á
250 kOómetra hraöa. Hann verður
heldur á viðráöanlegra verði en
Jaguar-bíllinn, í kringum 90 þúsund
pund eða um 7,4 milljónir króna.
Þá notaði Audi tækifærið og fram-
sýndi nýja gerð af Audi Coupé, en
sá bíll fer í sölu á Bretlandseyjum
tveimur vikum áður en ökumenn á
meginlandi Evrópu fá tækifæri til að
reyna gripinn.
Vauxhall, sem er dótturfyrirtæki
General Motors á Bretlandseyjum,
sýnir endurbætta gerð af Cavalier,
en með þeim bíl hyggst GM ná til sín
meginsölunni á bUum í miðlungs-
Uokki á Bretlandi, en Ford Sierra
hefur haldið toppsætinu undanfarin
ár.
Þá kynnti Vauxhall nokkuð sem
kaUað er sérstakur „kvennabU", með
hárþurrku, upplýstum snyrtispegli
og sérstökum búnaði sem léttir
dekkjaskipti ef springur.
Stendur þessa viku
Ef einhver hefði ætlað að heim-
sækja National Exhibition Centre í
Birmingham í dag og skoða dýrðina
þáTiefði aðgangseyririnn verið tíu
pund. Strax á morgun lækkar að-
göngumiðinn niður í 4 pund og tvö
pund fyrir elhlífeyrisþega og böm
yngri en 14 ára. Sýningin er opin frá
klukkan 9.30 tU 19 daglega, nema síð-
asta daginn, sunnudaginn 30. októb-
er, en þá er lokað klukkan 17.30.
Fyrir bUaáhugamenn, sem staddir
verða í London í næstu viku, er upp-
lagt að bregða sér í stutta lestarferð
tU Birmingham og skoða það nýjasta
sem er að gerast í bUaheiminum.
-JR