Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1988, Síða 2
30
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1988.
BOar i>v
Isuzu Gemini á íslandi:
Snotur bíll
á snotru verði
Isuzu bílar hafa staðiö sig vel hér-
lendis, einkum trölljeppinn Isuzu
Trooper, svo og sendibílar og litlir
vörubílar. Isuzu býður nú nýjan
fólksbíl hér - Isuzu Gemini. Þetta er
bíll í millistærð, fáanlegur sem fjög-
urra dyra fólksbíll eða tveggja dyra
hlaðbakur, fimm gíra eða sjálfskipt-
ur, með 1300 cc eða 1500 cc vél.
Umboðsaðili Isuzu á íslandi, Bíl-
vangur, kynnti þessa bíla nú á dög-
unum, að viðstöddum erlendum
sölufulitrúum Isuzu.
Adachi, japanskur yfirmaður
þeirrar deildar sem sér um söluna
til íslands og fleiri staða, kynnti bíl-
inn og verksmiðjurnar í heild. Hann
rifjaði upp að Isuzu var brautryðj-
andi í Japan á sviði bílagerðar, með
því að fyrirrennari verksmiðjanna,
Ishikawajima skipasmíðastöðin, hóf
samsetningu á bresku Wolseley bíl-
unum í Japan árið 1916.
Verksmiðja með færibönd og
tilbera
{ framhaldi af því voru Isuzu bíla-
verksmiðjurnar stofnaðar árið 1937 í
Tokýo. Þær voru fyrsti aðilinn sem
DES BENZ O.FL.
Isetning ef óskað er. Ath. verði ð og greiðsluskilmála.
y i c 1. Erlingsson h/f, varahlutir, Hvaleyrarbraut 3, Hafnarf., Ȓmi 651537
þjónusta fyrir allar gerðir
TOYOTA, MITSUBISHI, DAIHATSU O.FL. PERKINS, MERCE-
Isuzu Gemini - nýr fólksbill frá Japan á Islandi. Þessi bill hefur átt velgengni að fagna I Bandaríkjunum en þar
selja General Motors bílinn undir sínu merki og kalla hann Geo Spectrum.
'
-
Turbósett fyrir flestar tegundir véla. Varahlutir og viðgerðar-
Til að vekja athygli á þessum nýja bíl var einum
á gámi við Vesturlandsveginn.
framleiddi dísilvélar í Japan, og
fyrstu árin lögðu Isuzu verksmiðj-
urnar áherslu á framleiðslu dísilvéla
og dísilknúinna vöruflutningabíla.
Upp úr 1960 voru settar upp nýjar
verksmiðjur í Fujisawa og þá kom
röðin hka að fólksbílum. Verksmiðj-
urnar í Fujisawa eru mjög tækni-
væddar, en markviss notkun færi-
banda og tilbera tryggir sem kunnugt
er vandaðri framleiðslu heldur en
þar sem meira er treyst á manns-
höndina.
Gemini bíllinn, sem nú er kominn
hingað, hefur hlotið miklar vinsæld-
ir í Bandaríkjunum, þar sem hann
er seldur undir merkjum Chevrolet
og Pontiac, auk Isuzu merkisins, en
sem kunnugt er eiga General Motors
verksmiðjumar nú verulegan hlut í
Isuzu, eða 42%. Þetta er léttbyggður
bíll, 825-890 kg eftir útfærslu, og virð-
ist við fyrstu sýn vel frágenginn.
Varahlutalager þegar fyrir
hendi
Erlendu fulltrúarnir lögðu áherslu
á að Isuzu bílarnir, ekki síst Gemini,
væm smíðaðir með góða endingu og
lága bilanatíðni í huga. Þar að auki
væri lögð sérstök áhersla á góða
þjónustu við þá og allir nauðsynlegir
varahlutir væru ávallt fyrir hendi.
Til marks um það benti Adachi á að
varahlutasending heföi fylgt hingað
þegar með fyrstu bílunum, og að full-
trúar Isuzu myndu fylgja varahluta-
þjónustunni eftir.
Á sama hátt er með viðgerðaþjón-
slíkum komið fyrir uppi
DV-myndir RS
ustuna. Fulltrúi þjónstudeildar verk-
smiðjanna hefur verið hér á landi
undanfarið til að þjálfa viðgerðaþjón-
ustu Bílvangs í viðhaldi Gemini bíl-
anna. Viðgerðarmenn Bílvangs
fengu til dæmis að rífa einn bílanna
í parta að kalla og setja hann saman
aftur. DV Bílar fékk tækifæri til að
hreyfa þennan bfi og gat ekki betur
fundið en hann væri sómasamlega
samansettur - nema kúplingin tók
fullhátt!
Aflstýrið framúrskarandi
Síðar gefst væntanlega tækifæri til
að segja frá reynsluakstri á þessum
bíl. Við fyrstu kynni virðist hér vera
á ferðinni lipur bíll, þægilegur og vel
búinn. Sérstaka athygli vakti aflstýr-
ið. Það er einstaklega lauflétt en gef-
ur þó góða tilfinningu fyrir bílnum,
og stýrishjólið er af þeirri sveru gerð
sem fer svo vel í hendi.
Verðið ætti ekki að fæla neinn frá
kaupunum, að minnsta kosti ekki á
ódýrustu útgáfunni. Tveggja dyra
hlaðbakur með 1300 cc 72 ha vél, 5
gíra, kostar aðeins 495 þúsund krón-
ur, fyrir utan skráningu, skatt og
ryðvörn. Dýrasti bíllinn, fjögurra
dyra, með 1500 ha vél og sjálfskipt-
ingu, kostar á sama hátt 662 þúsund.
Allar útgáfur bílanna, jafnt ódýr-
asta sem dýrasta, eru með lúxusinn-
réttingu, aflstýri og aflhemlum, út-
varpi og ökuljósum sem með einum
rofa er breytt í gul ljós - ef maður
skyldi nú lenda í þoku.
S.H.H.
Hættulegast að
aka í Portúgal
Ef við ætlum að aka um í umferð-
inni í Portúgal ættum við að vera vel
á verði því landið er það hættuleg-
asta innan Evrópubandalagsins séu
skoðaðar nýlegar tölur um hlutfall
banaslysa í umferðinni.
Nýlega gerð frönsk rannsókn leiddi
í ljós að Portúgal trónaði langefst á
listanum með 108 látna í umferðinni
á hveija 10.000 bíla. Grikkland kom
næst með 81 dauðaslys á hverja 10
þúsund bfia og þar næst Spánn (61),
Belgía (52), Frakkland (48), írland
(46), Luxembourg (45) og Danmörk
(40). England er langöruggasta landið
með aðeins 27 dauðaslys á hverja
10.000 bíla.
í Danmörku urðu hins vegar fæst
umferöaróhöpp miðað við hverja tíu
þúsund bíla, eða 744.
Fiat á nú
90 prósent
í Ferrari
Eftir lát Enzo Ferrari á dögunum
hefur nú orðið sú breyting á högum
Ferrari-fyrirtækisins að sonurinn,
Piero Lardi, á eftir 10 prósent í fyrir-
tækinu, en Fiat-samsteypan getur
bætt 40 prósentum við þau 50% sem
hún átti fyrir. Piero er varformaður
stjómar Ferrari eftir þessa breyt-
ingu.
Þessa dagana eru framleiddir um
4.000 Ferrari-bfiar á ári, en áætlanir
eru uppi um að auka framleiösluna
verulega.
I anddyri verksmiðjanna í Maranello
má sjá þennan fyrsta bíl sem bar
nafn Enzo Ferrari