Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1988, Qupperneq 6
42
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 1988.
Bílar dv
Á myndinni má sjá einn af fyrstu T-módelunum, í miðjunni fyrsta bílinn sem Henry Ford smiðaði árið 1896 og loks lengst til hægri T-módel númer 15.000.000 sem kom af færibandinu árið 1927.
Uppfinningin sem lækkaði bílverð um helming:
Færibandið 75 ára
í þessum mánuði, nánar tiltekiö 7.
október, átti uppfmning innan bíla-
iðnaöarins stórafmæli. Þessi nýjung
átti sinn þátt í að gjörbylta þeirri
ungu iðngrein sem baasmíðin var og
jafnframt að gera bílinn að almenn-
ingseign.
Það var 7. október 1913 sem Henry
Ford tók færibandiö í notkun við
smíði T-módelsins. Grindur bílanna
voru dregnar eftir verksmiðjunnni
með reipi. Með þessu tókst að stytta
framleiðslutímann um helming og
einnig að lækka verðið um helming.
Með takomu færibandsins varð
það raunhæft fyrir hvem sem-var
aö eignast bíl. Baiinn varð almenn-
ingseign.
Allt frá þessum degi, 7. október fyr-
ir 75 árum, fóru hjólin að snúast fyr-
ir alvöru. Á næstu 14 árum spúðu
verksmiðjur Ford frá sér meira en
15 miUjónum eintaka af T-módelinu.
Veröldin var svo að segja sett á hjól-
in.
„Það var fyrir sjötíu og fimm ámm
sem langafi minn og félagar hans
tóku í notkun þá tækni sem geröi
þann draum hans að veruleika aö
smíða bíl á viðráðanlegu verði fyrir
fjöldann," sagði Edsel B. Ford II,
sölustjóri Lincoln-Mercury deildar
Ford og sonarsonur stofnandans
Henry Ford. „Hjá Ford er takmarkiö
enn það sama og var á tímum lang-
afa, að mæta kröfum kaupenda með
því að smiða ódýra hágæðabíla sem
eru peninganna virði.“ Edsel B. Ford
lét þessi orð falla í tilefni þessara
tímamóta í móttöku í samsetningar-
verksmiðju Ford í Wayne, þar sem
tímamótanna var minnst á dögun-
um.
A efri myndinni gefur aó líta færibandið í Highland Park árið 1914 og sýn-
ir hún þann hluta þess þar sem vélarnar voru settar í bílana.
Á neðri myndinni er færiband í bílaverksmiðju Ford i Dagenham í Eng-
landi þar sem vélmenni hafa tekið við verki rafsuðumanna í yfirbygginga-
deildinni.
Fyrsta T-módelið frá 1913, sem kom af færibandinu í Highland Park, er á
efri myndinni en á neðri myndinni er einn af Ford-bílum dagsins í dag,
Ford Escort GL.
Einfalt en áhrifaríkt
Færiband Henry Ford var einfalt
en áhrifamikið. Kaöall, sem festur
var við spil, dró bílinn áfram eftir
verksmiðjugólfinu, á meðan þeir sem
unnu við samsetningamar festu hina
ýmsu hluti bílsins við grindina. Með
þessu urðu verkamennirnir sérfræð-
ingar hver á sínu sviði og gæði bíl-
anna jukust snarlega.
Jafnframt þessu lækkaði verð bíls-
ins þvi nú var hægt að setja hann
saman á einum og hálfum klukku-
tíma í staö tólf tíma áður. Verðið féll
hka snarlega, úr 850 niður í 360 doll-
ara.
Þegar hætt var að smíða T-módelið
árið 1927 höfðu alls 15.456.868 bílar
runnið af færibandinu. Þetta met var
fyrst slegið af gamla góöa Volks-
wagen mörgum áratugum síðar.
Færiböndin skipa enn stóran sess
í bílasmíði nútímans, en vélmenni
eða tilberar (eins og félagi minn hér
á DV Bílum vill kalla þá) hafa tekið
við mestu af einhæfu og hættu-
legustu verkunum, eins og til dæmis
sprautun bílanna.
Sumar bílasmiðjur em orðnar svo
sjálfvirkar að hinn venjulegi verka-
maður við færibandið er horfinn, en
í staðinn em komnir eftirlitsmenn
sem fylgjast með vinnu tilberanna.
Vélmenni eða tilberar em ekki aö-
eins notaðir við sjálfa smíði bílanna
heldur notaðir til að setja rúður,
mælaborð, rafgeyma og varadekk á
sinn stað.
í sumum bílasmiðjum, eins og til
dæmis Volvo-verksmiðjunum í
Gautaborg, er hiö eiginlega færiband
horfið en vinnuhópar hafa leyst það
af hólmi aö hluta. Færiböndin sjá
áfram um að færa hlutina til smíð-
innar jafnóðum og þeirra er þörf.
Breytti meiru en margir halda
Tilkoma færibandanna breytti
meiru en margir halda; strax á áran-
um í kringum 1920 voru ýmis heimil-
istæki framleidd á færiböndum.
Þetta er skoðun David A. Hounsell
sem er prófessor í sagnfræði í háskól-
ann í Delaware og hefur rannsakað
sérstaklega bandaríska framleiðslu-
tækni.
„Þaö sem gerðist í Detroit fyrir 75
áram hefur sennilega breytt lífsmáta
á 20. öldinni meira en nokkuð annað
ef atómsprengjan er frátalin," segir
dr. Hounsell.
Það sem dr. Hounsell er að vitna
til er tilkoma færibandanna í verk-
smiðju Ford í Highland Park.
Færibandatæknin náöi strax til
Evrópu. Nokkrum mánuðum eftir
tilkomu þeirra í Highland Park voru
komin færibönd í verksmiðju Ford í
Trafford Park í Manchester á Eng-
landi, og þar með jókst framleiðslu-
getan upp í 150 bfia á dag.
Hafði aukna nýtni í för með
sér
Tilkoma færibandanna hafði einn-
ig í för með sér aukna nýtni í fram-
leiðslunni. Þegar ný verksmiðja Ford
var opnuð í Bordeaux í Frakklandi
1919, og leysti þar með af hólmi eldri
verksmiöju frá 1913, var allt gert til
þess að auka nýtnina 1 verksmiöj-
unni sem smíðaði T-módel á fyrsta
færibandinu í Frakklandi. Kæhvif-
tumar vora stansaðár úr afklippum
og timbrið úr kössunum utan af hlut-
um til smíðinnar var notað í yfir-
bygginguna, en afgangstimbrið fór til
húsgagnasmiða í nágrenninu. Þessi
nýja verksmiðja átti hins vegar við
vanda að stríða sem leiddi af aukinni
afkastagetu. Engin bílastæði vora til
þess að taka við stórauknum straumi
bíla úr verksmiðjunni og því varð
að nota nærhggjandi götur fyrir bíl-
ana.
Tímamótanna var minnst, eins og
fyrr sagði, með hátíðlegri athöfn í
verksmiðju Ford í Wayne í Michigan
í Bandaríkjunum. TU að minnast af-
mæhsins var einu af fyrstu T-módel-
unum ekið af færibandi nútímans,
en í síðustu viku átti T-módehð ein-
mitt 80 ára afmæh. Tn