Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1988, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 1(». NÓVEMBER 1988.
í:í-'&í
19
Stykkishólmur:
Tólf ára
stúlka sigur-
vegari í
hárgreiðslu
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Það var margt til skemmtunar
laugardaginn 12. nóvember í félags-
heimilinu „X“inu í Stykkishólmi á
dansleik fyrir börn og unghnga stað-
arins en „X“nefndin stóð fyrir dans-
leiknum.
Keppt var í hágreiðslu þar sem
fimm pör kepptu. Sigurvegari varð
Hildigunnur Hjörleifsdóttir og sú
sem átti hárið heitir Arna Friðriks-
dóttir. Þær eru báðar 12 ára. Þá bauð
skemmtinefnd nemendafélags
grunnskólans upp á hin líflegustu
skemmtiatriði og dans var að lokum
stiginn til klukkan eitt.
Formaður „X“nefndar heitir Alda
Pálsdóttir og er hún nemandi í 8.
bekk Grunnskólans í Stykkishólmi.
Sigurvegarinn í hárgreiðslukeppn-
inni ásamt módeli sinu. DV-mynd
Róbert
Frönsk vika á fæð-
ingarheimilinu
Það gerist ekki oft hér á landi að
tvær franskar konur eigi stráka sam-
tímis, báðar meö frönsku aðferðinni,
og séu svo saman í herbergi með
bömin. Þessi röð samstæðra tilvilj-
ana átti sér stað á FæðingarheimUi
Reykjavíkur í síðustu viku, þegar
þær Laurence og Ann eignuðust sinn
hvorn myndarstrákinn. Ann hefur
verið búsett hér á landi síðasthðin 4
ár, en Laurence er búin að vera hér
í 1 ár. Þær áttu drengina báðar með
svokallaðri franskri aðferð, en hún
nýtur sívaxandi vinsælda.
Franska aðferðin byggist á því að
ná sem mestri slökun og rólegheitum
meðan á fæðingu stendur. SpUuð er
róleg tónhst, ljósin dempuð og aht
gert til að gera fæðinguna eins eðh-
lega og hægt er. Eftir fæðingu er
barnið sett beint upp á maga mömm-
unnar og hún fær að hafa það hjá sér
í talsverðan tíma áður en barnið er
mælt og þvegið.
„Mér fannst það alveg dásamlegt
að eiga með frönsku aðferðinni. Það
var allt svo afslappað og ég varð ekk-
ert spennt eða hrædd. Eftir fæðing-
una fengum við að vera í rólegheitum
með soninn, og það var komið með
hressingu handa okkur.
Ég er mjög ánægð með dvölina á
fæðingarheimilinu, og svo var auð-
vitað punkturinn yfir iiö að vera meö
annarri franskri konu í herbergi,"
sagði Ann Sigurjónsson eftir ánægju-
lega legu á fæöingarheimUinu.
Þau brosa til hvors annars mæðginin, Ann Sigurjóns-
son og Axel Paul Sigurjónsson, enda búin að hafa það
gott á fæðingarheimilinu.
Laurence Fiévet með soninn sem er dökkur yfirlitum,
enda franskur í húð og hár.
Kirk Douglas
leysir firá
skjóðunni
„Einn morgun þegar móðir mín
var í eldhúsinu að baka brauð sá
hún í gegnum eldhúsgluggan fal-
lega gullkörfu. Hún hljóp út og leit
ofan í körfuna, þar var ég,“ segir
Kirk Douglas. „Hún sagði mig hafa
verið fallegan dreng sem lá þarna
í körfunni, glaöur og hamingju-
samur. Hún tók mig í fangið og
ornaði mér og fór með mig inn í
húsiö.
Þegar ég heyrði söguna fyrst
trúði ég henni tæpast vegna þess
að ég hafði aldrei séð þessa gullk-
örfu. Við því segir móöir mín að
hún hafi verið svo hamingusöm
þegar hún fann mig að hún gleymdi
að hugsa um körfuna og skildi hana
eftir úti.
Ég var mjög ánægður með að
vera móður minni svo mikils virði
að hún gleymdi gullkörfunni. Frá
þeim tima vissi ég að ég myndi ein-
hvem tíma skipta máli.“
Krik er fóstursonur rússneskra
gyðinga. Faðir hans var tamninga-
maður sem drakk mikið og slóst
og gat ekki séð fyrir fjölskyldu
sinni en móðir hans reyndist hon-
um góð.
„Ég varð sjálfur ákveðinn í því
að ef ég eignaðist einhvern tíma
börn þá skyldi ég geta séð fyrir
þeim og það hef ég gert. Ég á fjóra
syni sem ég hef komið öllum til
manns og er stoltur af þeim.“ En
eins og flestir vita er Kirk faðir
Michaels Douglas sem fékk óskar-
inn á siöasta ári fyrir leik sinn í
Wall Street.
„Ég hlýt að vera mikils virði. Þaö
eru ekki allir sem fæðast í gullkörf-
um,“ segir leikarinn.
Górillur veikjast líka
Skyldleiki manna við apa er töluverður og þar sem margt er líkt með skyld-
um geta górillur líka veikst. Górillurnar í dýragarðinum í Frankfurt urðu
fyrir barðinu á flensufaraldri á dögunum. Ekki lagðist flensan mjög þungt
á þær en samt urðu þær að taka lyfin inn reglulega. Górillurnar stilla sér
upp i röð og fá síðan lyfjaskammtinn hver á eftir annarri. Það fylgir sög-
unni að allar séu þær á batavegi.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Iionel Richie
hefur þjáðst af bakverk árum
saman. Hún er stöðugt kvalin í
bakinu en hefur ekki þorað að
fara frá vinnu þann tíma sem
þyrfti til að gangast undir skurð-
aðgerð. En nú er svo komið að
hún þolir ekki við lengur og ætlar
að hætta á að hverfa af sjónar-
sviðinu í hálft ár. Hún óttast þaö
mest að keppinautar hennar fái
yfirhöndina og allir verði búnir
að gleyma henni þegar hún verð-
ur orðin hraust aftur.
vill ættleiöa barn til að bjarga
hjónabandi sínu og Brendu
Richie. Þetta gekk svo langt að
þau voru farin að íjarlægjast
hvort annað mjög mikið og Lionel
farinn að snúa sér að öðru kven-
fólki. En eftir mislukkað hliðar-
spor sá Lionel aö konanhans var
það eina sem skipti hann máli og
gerði allt sem í hans valdi stóð til
að bjarga hjónabandinu. Brenda
tók þó ekki við sér fyrr en hann
talaði um aö þau ættleiddu barn
og svo féll allt í ljúfa löð þegar
Lionel flutti henni lag, sem hann
hafði samið sérstaklega til henn-
ar, við kertaljós og huggulegheit.
Nú vinna þau stöðugt að því að
finna barn.
lisa Bonet
stormaði út úr síðasta Cosby-
þættinum, sem gerður var fyrir
barnsburðarleyfi hennar, vegna
þess að Bill Cosby bað hana að
taka niður giftingarhringinn.
Denise Huxtable, sem Lisa leikur
í Cosby-þáttunum, er ekki gift og
því alveg ófært að Lisa skarti gift-
ingarhring út í bláinn. Þetta er
ekki í fyrsta sinn sem hún stekk-
ur upp á nef sér yfir smámunum
og þykir stúlkan sérvitur úr hófi
fram. Lisa er komin á steypirinn
og ætlar hún ekki að ala barniö
á sjúkrahúsi eins og flestar nú-
tímakonur heldur heima hjá sér
með aðstoð eiginmannsins og
ljósmóður.
Victoria Principal